Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fjórða sætinu í þessari spá var ÍR sem fékk 116 stig af 162 mögulegum eða fimm stigum minna en liðið sem spáð er þriðja sæti. Kíkjum á umfjöllun okkar um ÍR-inga.
ÍR
Þjálfari: Magnús Þór Jónsson
Búningar: Hvít treyja, bláar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.ir-sport.is
Eftir tvö mögur ár er ljóst að ÍR-ingar eru stórhuga í ár en þeir hafa gefið það út að þeir ætli sér ekkert annað en 1.deildarsæti. Til að sýna metnaðinn í verki þá hafa þeir fengið til sín 10 nýja leikmenn fyrir átökin í sumar. Helstan ber að nefna Guðfinn Þórir Ómarsson sem hefur leikið vel fyrir Þrótt undanfarin ár en koma hans styrkir lið ÍR töluvert. Einnig endurheimtu þeir Trausta Björn Ríkharðsson sem kom frá HK.
Koma reynsluboltanna Þorvaldar Guðmundssonar og Brynjólfs Bjarnasonar, ætti einnig að styrkja liðið í þeirri harðri baráttu sem framundan er. Hinir nýju leikmennirnir eru dálítið óskrifað blað og á eftir að koma í ljós hversu mikið þeir styrkja liðið. Þrátt fyrir töluverðan fjölda leikmanna sem hefur komið til liðsins þá hefur liðinu tekist að halda í þá leikmenn sem fyrir voru. Það gefur í skyn að ákveðinn stöðugleiki sé að myndast í leikmannahópinn í Mjóddinni, stöðugleiki sem hefur ekki verið til staðar í mörg ár hjá félaginu. Stöðugleikinn er nauðsynlegur ætli liðið sér að gera tilkall til 1.deildarsætis eftir að hafa bjargað sér frá falli í 3.deild tvö ár í röð.
Liðið lék ágætlega á undirbúningstímabilinu og lenti í 2.sæti í sínum riðli í Deildabikarnum. Urðu meðal annars fyrir ofan HK en voru tveimur stigum á eftir Leikni sem vann riðilinn. Á meðan liðið hefur bætt sinn leik smám saman á undirbúningstímabilinu hefur þjálfarinn styrkt lið sitt fyrir átökin í sumar. Ernest Essombe var fenginn til félagsins en þessi stóri og stæðilegi miðvörður á ættir sínar að rekja til Kamerún. Hann hefur leikið með liðum á borð við Lens og Strasbourg í Frakklandi. Hann var í leikmannahópi Lens, aðeins 18 ára gamall, þegar liðið mætti Arsenal árið 1998. Það verður athyglisvert að fylgjast með þessum leikmanni í
Styrkleikar: Styrkur liðsins felst í afar öflugri sóknarlínu en liðið leikur yfirleitt 4-3-3 með Guðfinn Ómarsson, Kristján Ara Halldórsson og Guðmund Pétursson í fremstu víglínu. Kantmennirnir tveir, Guðfinnur og Kristján eru öskurfljótir og mun eflaust halda flestum varnarmönnum 2.deildarinnar við efnið. Hópurinn virðist þokkalega breiður, ólíkt því sem hefur verið undanfarin ár. Í ár virðist liðið ætla að geta verið með fimm frambærilega leikmenn á bekknum. Skiptir miklu fyrir ÍR að hafa fengið Brynjólf og Þorvald en þeir hafa mikla reynslu og hún kemur að góðum notum í sumar.
Veikleikar: Miðsvæði liðsins er stórt spurningamerki. Trausti Björn Ríkharðsson mun eflaust leika á miðjunni en hann skortir reynslu. Hann hefur prófað Brynjólf Bjarnason og Helga Örn Gylfason á miðsvæðinu og því verður forvitnilegt að sjá hverjum Magnús mun stilla upp á miðsvæðinu. Ef liðið byrjar mótið illa er hætta á taugaveiklun grípi um sig. Heimavöllur liðsins hefur verið afspyrnuslakur undanfarin ár.
Lykilmenn: Helgi Örn Gylfason, Ernest Essombe og Guðfinnur Þórir Ómarsson.
Komnir: Brynjólfur Bjarnason frá Selfossi, Björgvin Már Þorvaldsson frá Val, Þorvaldur Már J. Guðmundsson frá Haukum, Guðfinnur Þórir Ómarsson frá Þrótti, Lárus Guðmundur Jónsson frá Aftureldingu, Óli Geir Stefánsson frá Augnablik, Trausti Björn Ríkharðsson frá HK, Sigurður Heiðar Höskuldsson frá Breiðablik, Srdan Skoric frá Bolungarvík, Leo Sankovic frá Grindavík, Ólafur Tryggvason frá Þrótti.
Farnir: Ernhad Mehic til Afríku, Ragnar Mar Konráðsson til Huginn, Valur Úlfarsson til Víkingi, Valdimar Sigurðsson til Skallagrím,
Tinni Kári Jóhannesson til ÍA, Óskar Örn Steindórsson til Gróttu.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ÍR 116
5. Selfoss 93 stig
6. KS/Leiftur 83 stig
7. Völsungur 79 stig
8. Reynir Sandgerði 53 stig
9. Sindri 43 stig


