Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu í þessari spá var Þróttur sem fékk 118 stig af 162 mögulegum og var þar með næstum fjórum stigum á undan HK sem er í spáð fjórða sætinu. Kíkjum á umfjöllun okkar um Þróttara.
Þróttur R.
Þjálfari: Atli Eðvaldsson
Búningar: Rauð og hvít treyja, hvítar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.trottur.is
Gríðarlega miklar breytingar hafa orðið á liði Þróttar síðan það féll úr Landsbankadeildinni síðasta sumar. Þar kom það berlega í ljós að margir af leikmönnum liðsins voru einfaldlega ekki í úrvalsdeildarklassa og því fór sem fór. Margir leikmenn yfirgáfu skútuna og sögðu ástæðuna fyrir því vera þjálfarinn Atli Eðvaldsson. Það er væntanlega enginn eins ákveðinn í því að svara gagnrýnisröddum inni á sjálfum vellinum eins og Atli en hann þekkir mótlæti vel.
FH hefur lánað Þrótti leikmenn og einn af þeim er markvörðurinn Ólafur Þór Gunnarsson sem á að leysa Fjalar af. Ólafur hefur átt við meiðsli að stríða en ef hann verður í formi er ljóst að Fjalars verður ekki mjög sárt saknað. Baldvin Jón Hallgrímsson, Þórhallur Hinriksson og Jóhann Hreiðarsson komu allir frá Val svo einhverjir séu nefndir en þeir eru allir prýðilegir leikmenn sem styrkja Þrótt.
Veikleikar: Eins og áður hefur komið fram eru breytingarnar á liðinu miklar á skömmum tíma og er það hlutverk Atla Eðvaldssonar að stilla saman strengi og móta liðsheild. Mórallinn innan liðsins hefur verið nokkur brothættur en vonandi fyrir Þrótt eru þeir tímar að baki enda ljóst að liðið er ekki að fara að komast upp ef liðsandinn er skaddaður. Nokkrir leikmenn innan liðsins sem geta talist ofmetnir og á eftir að koma í ljós hvort þeir nægja til að koma liðinu upp aftur.
Lykilmenn: Jóhann Hreiðarsson, Halldór Hilmisson og Magnús Már Lúðvíksson.
Komnir: Andrés Vilhjálmsson frá ÍA, Birkir Pálsson frá Huginn, Arnljótur Ástvaldsson frá Þór, Baldvin Jón Hallgrímsson frá Val, Óskar Snær Vignisson frá Hvöt, Jón Ragnar Jónsson á láni frá FH, Þórður Steinar Hreiðarsson frá Val, Þorsteinn Gíslason frá ÍA, Orri Rúnarsson frá Leiftur/Davík, Gunnar Freyr Róbertsson frá Víkingi R.,
Farnir: Fjalar Þorgeirsson í Fylki, Jens Elvar Sævarsson í Fylki, Páll Einarsson í Fylki, Sævar Eyjólfsson í ÍBV, Þórarinn Brynjar Kristjánsson í Keflavík, Ólafur Tryggvason til ÍR á láni, Jozef Maruniak til Slóvakíu, Kristinn Hafliðason í Val, Guðfinnur Þórir Ómarsson til ÍR, Freyr Karlsson í Fram.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. Þróttur 118 stig
4. HK 114 stig
5. KA 86 stig
6. Stjarnan 75 stig
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig


