Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 12. maí 2006 08:00
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 3.sæti
Mynd: Merki
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í þriðja sætinu í þessari spá var Afturelding sem fékk 121 stig af 162 mögulegum eða fimm stigum meira en ÍR sem spáð er fjórða sætinu. Kíkjum á umfjöllun okkar um Aftureldingu sem myndi með því að ná þriðja sætinu fara upp um deild þar sem tólf lið leika í fyrstu deild á næstu leiktíð.


Afturelding
Þjálfari: Ólafur Ólafsson
Búningar: Rauð treyja, svartar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.afturelding.is

Afturelding olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili en liðið ætlaði sér stóra hluti. Fljótlega fór að halla undan fæti og liðið lék verr með hverjum leiknum. Sumir vildu meina að þjálfarinn, Ólafur Geir Magnússon, ætti einhverja sök á gengi liðsins þar sem leikmenn liðsins virtust í afar slöku formi þegar leið á sumarið. Stjórn Aftureldingar ákvað á endaum að láta Ólaf fara og réð í hans stað Lárus Grétarsson. Hann kom með þá fersku vinda sem liðið þurfti á að halda og liðið önglaði saman nægilega mörgum stigum og bjargaði sér frá falli. En Lárus hélt ekki áfram með liðið og í hans stað réð liðið Ólaf Ólafsson, aðstoðarmann Ólafs Kristjánssonar hjá Fram. Með honum kom ákveðin festa og smám saman hefur hann styrkt leikmannahóp liðsins.

Til að fylla skarð Hannesar Þórs Halldórssonar, sem fór í Stjörnuna, ákvað Ólafur að fá Beiti Ólafsson að láni frá HK. Hann hefur fallið vel inn í liðið og staðið sig vel á undirbúningstímabilinu. Þórarinn Máni Borgþórsson ákvað að leika á nýjan leik með Aftureldingu eftir að hafa leikið með Huginn. Hann er mikill styrkur fyrir liðið enda fjölhæfur leikmaður. Anton Ástvaldsson á að koma í stað Albert Högna Arasonar sem gekk í raðir Hauka. Anton er stór og stæðilegur leikmaður en vantar reynslu enda leikið í 3.deild með Hetti á undanförnum árum. Arnar Steinn Einarsson kemur frá Haukum þar sem hann lék í fyrra. Arnar er fljótur kantmaður sem hefur einnig leikið með Víking og Val en hann er uppalinn á Hlíðarenda.

Afturelding þótti leika vel á undirbúningstímabilinu og mikill stígandi var í þeirra leik. Liðið vann sinn riðil í Deildabikarnum og lagði meðal annars að velli 1.deildarlið Hauka. Liðið lék til undanúrslita gegn Leikni þar sem liðið beið lægri hlut, 1-0. Liðið þykir vel spilandi og undir stjórn Ólafs hefur liðið tekið miklum framförum. Leikmenn liðsins eru flestir hverjir ungir að árum en þá þyrstir í toppbaráttuna. Hins vegar er spurning hvort reynsluleysi muni hrjá liðið í sumar en liðinu vantar tilfinnanlega reynslumikinn leikmann sem gæti dregið vagninn á erfiðum tímum. Leikmenn liðsins myndu glaðir sætta sig við 3.sætið en það er ljóst að ef liðið ætlar sér það sæti, þá þarf liðið heldur betur að bíta frá sér og sýna stöðugleika því það eru mörg lið sem gera tilkall til sæti í 1.deild að ári.

Styrkleikar: Sóknarlína liðsins ætti að geta valdið varnarlínum andstæðinganna usla í sumar. Atli Heimisson er í fantaformi og með Arnar Stein og Þórarinn eða Einar Óla Þorvarðarson á köntunum ætti Afturelding að vera í góðum málum. Hungrið, metnaðurinn og ákafinn gæti komið liðinu langt í sumar.

Veikleikar: Reynsluleysi liðsins gæti komið liðinu um koll í sumar. Leikmenn liðsins eru fljótir að æsa sig ef illa árar og mótlætið er mikið. Varnarlína liðsins er stórt spurningamerki en miðverðir liðsins eru reynslulitlir. Fyrir aftan þá stendur reynslulítill markvörður. Þá hefur Afturelding misst þrjá sterka leikmenn í Alberti, Hannesi og síðan Þorvaldi Árnasyni sem skoraði fjórtán mörk í annarri deildinni í fyrra og var markahæstur ásamt Guðjóni Baldvinssyni með fjórtán mörk.

Lykilmenn: Atli Heimisson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Arnar Steinn Einarsson.


Komnir: Anton Ástvaldsson frá Hetti, Arnar Steinn Einarsson frá Haukum, Beitir Ólafsson á láni frá HK, Einar Óli Þorvarðarson frá Val, Gunnar Steinn Ásgeirsson á láni frá Víkingi, Hörður Ingþór Harðarson frá ÍH, Hörður Jens Guðmundsson frá Stjörnunni, Sigfús Heimisson frá Fjölni, Ómar Örn Ólafsson frá Þrótti, Svanur Freyr Árnason frá Leikni F. og Torfi Geir Hilmarsson frá Val.

Farnir: Albert Högni Arason í Hauka, Björn Sigurbjörnsson í Leikni, Hannes Þór Halldórsson í Stjörnuna, Þorvaldur Árnason í Stjörnuna, Jón Orri Ólafsson aftur til Fram úr láni, Jónas Guðmannsson hættur, Andri Már Óttarsson hættur.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. Afturelding 121 stig
4. ÍR 116 stig
5. Selfoss 93 stig
6. KS/Leiftur 83 stig
7. Völsungur 79 stig
8. Reynir Sandgerði 53 stig
9. Sindri 43 stig
Slapp
banner
banner