Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 12. maí 2006 08:02
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 3. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá KR 3. sæti í Landsbankadeild karla 2006.  Tíu sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig.  KR fékk 74 stig út úr þessu.

Sérfræðingarnir sem spáðu eru:
Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.



Hvað segir Ólafur?
Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum.  Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku.  Hér að neðan má sjá hans álit á KR.

Um KR
Þeir eru búnir að fá tvo mjög öfluga leikmenn. Ef maður dæmir KR sem lið þá fannst mér þeir ekki spila góðan fótbolta í fyrra og heldur ekki árangursríkan. Þeir voru í vandamálum langt fram eftir móti og það var eitthvað sem var ekki að ganga. Hvað það var get ég ekki sagt um en mér fannst á viðhorfinu í liðinu að eitthvað væri ekki í lagi.

Nú eru þeir komnir með nýjan þjálfara líka sem hefur látið þá æfa öðruvísi en þeir hafa gert áður. Ég vona þeirra vegna að það sé nóg til að snúa þessu við hjá þeim og að það komi sú festa í Vesturbæinn sem KR á skilið að hafa. Þeim hefur ekki gengið vel á undirbúningstímabilinu, en FH gekk ekki vel á undirbúningstímabilinu 2003 en gekk svo vel í deildinni.

Teitur hlýtur að vita hvað hann er að gera með alla þá reynslu sem hann hefur sem þjálfari. Það getur vel verið að þeir eigi eftir að koma inn í mótið af miklum krafti og toppa á réttum tíma. Ef þjálfarinn sér að það sem verið er að gera á undirbúningstímabilinu eru réttir hlutir þó úrslitin liggi ekki, þá er maður oft sáttur sem þjálfari. Ef maður veit að maður er á réttri braut þá trúir maður því að úrslitin komi.

Á sama hátt geturðu unnið fullt af leikjum á undirbúningstímabilinu en verið mjög óánægður með spilamennskuna. Þá skiptir það engu. Þá eru úrslitin að gefa þér kannski sjálfstraust sem getur fleytt þér eitthvað.

En ef allt gengur rétt en úrslitin detta ekki og þú finnur að þau eru að koma þá er mikilvægt að þjálfarinn berji það í hausinná mönnum að þeir séu á réttri braut. Svo ég held að menn eigi ekki að leggja of mikið í það að KR hefur ekki verið að fá góð úrslit í undanförnum leikjum.

Styrkleikar:
Styrkleikarnir hjá KR eru klúbburinn að mörgu leiti. Umgjörðin. En það hefur virkað mjög þrúgandi á marga leikmenn undanfarin ár og þeir hafa ekki þolað þá pressu sem er alltaf á leikmenn hjá KR. Styrkleikarnir á vellinum finnst mér núna vera framherjarnir Grétar og Garðar, Rógvi og Takefusa. Þeir eru allir í fínu lagi og Grétar einn besti framherjinn í deildinni. Annar styrkleiki í liðinu er að markmaðurinn er með gríðarlega reynslu og Gulli er kominn í vörnina. Þeir eru með gríðarlega öflugt miðvarðarpar.

En ég set ennþá svolítið spurningamerki við bakverðina. Bjarni Þorsteinsson hefur ekki skilað því nógu vel eins og hann er góður leikmaður. Gunnar Einarsson er meiri miðvörður en bakvörður og Gunnar Kristjánsson getur leyst vinstri bakvarðarstöðuna. Ég vil sjá mann eins og Sigmund spila hægri bakvörð, mér finnst hann góður þar.

Það er fullt af góðum fótboltamönnum þarna sem er styrkleiki.

Veikleikar 
Ef ég á að taka veikleikana hjá KR þá er það gengi þeirra undanfarin ár sem gæti setið svolítið á sálinni á þeim og pressan. Ég sé enga veikleika á liðinu sem slíku en finnst þó vanta hraða á miðjuna. Mér finnst þeir hafa verið lengi að athafna sig með boltann á miðjunni og oft hafa spilað of þvert. Það var erfitt að sjá hvað þeir voru að reyna í fyrra. Það vantar leikstíl. Ef Teitur nær að koma því inn eiga þeir að eiga gott tímabil.

Gaman að fylgjast með
Kristján Finnbogason og Gunnlaugur Jónsson eru lykilleikmenn. Bjarnólfur þarf að stýra skapinu og fækka spjöldunum og spila eins og hann getur best, þá er hann öflugur og lykilmaður. Grétar verður að eiga gott tímabil í fyrra eftir að hafa ekki staðið undir væntingum í fyrra sem fylgdi gengi liðsins. 

Lykilmaður
Mér finnst alltaf gaman að fylgjast með Takefusa. Gunnar Kristjáns er mjög öflugur leikmaður sem getur spilað bakvörð ogk kant. Liðið ætti að geta orðið mjög massíft



Þjálfarinn:
Teitur Þórðarson er nýr þjálfari KR en hann samdi við félagið í lok síðasta tímabils og tók svo við liðinu að tímabilinu loknu.  Teitur er menntaðasti íslenski fótboltaþjálfarinn en hann hefur  lokið UEFA-Pro þjálfaranámskeiði í Noregi sem  veitir Teiti m.a. réttindi til að þjálfa félög í efstu deild í öllum löndum Evrópu sem eiga aðild að þjálfarasáttmála UEFA (39 lönd).

Er hann gekk í raðir KR nú í fyrrahaust hafði hann verið í 29 ár í útlöndum sem leikmaður og þjálfari.  Hann þjálfaði landslið Eitslands og nokkur lið í norsku deildinni og Svíþjóð.

Líklegt byrjunarlið KR:

 

Völlurinn:
Aðstæða áhorfenda á KR velli hefur verið bætt til muna og nú er öll stúkan búin sætium.  Auk þess er umgjörðin í kringum leiki liðsins oft hvað flottust í deildinni á KR-velli. Alls komast 3500 áhorfendur á KR völlinn en þar af eru um 1600 sæti.


 
Stuðningsmenn:
Meðal þekktra stuðningsmanna KR eru: Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor, Bubbi Morthens poppstjarna, Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsstjarna, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaþingkona, Bogi Ágústsson fréttamaður, Þröstur Emilsson fréttamaður, Mörður Árnason þingmaður, Egill Helgason, Haukur Hólm, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Óli Björn Kárason, Gunnar Smári Egilsson ritstjóri, Bjarni Felixson íþróttafréttamaður. 

Spáin

nr. Lið Stig
1 FH 97
2 ÍA 83
3 KR 74
4 Valur 73
5 Keflavík 65
6 Fylkir 46
7 Víkingur 33
8 ÍBV 30
9 Grindavík 25
10 Breiðablik 24

Um félagið

Knattspyrnufélag Reykjavíkur
Stofnað 1899

Titlar:
Íslandsmeistarar:
1912, 1919, 1926, 1927, 1928, 1929, 1931, 1932, 1934, 1941, 1948, 1949, 1950, 1952, 1955, 1959, 1961, 1963, 1965, 1968, 1999, 2000, 2002, 2003
Bikarmeistarar:
1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, 1967, 1994, 1995, 1999
Deildabikarmeistarar

1998, 2001
Búningar:
Prostar

Aðalbúningur:

Peysa: Svört og hvít / Buxur: Svartar / Sokkar: Hvítir

Varabúningur:
Svört treyja, svartar buxur, svartir sokkar

Varabúningur 2:
P: Hvít / B: Hvítar / S: Hvítir

Opinber vefsíða:
KR.is

Stuðningsmannasíða
KRReykjavik.is


Komnir og farnir

Nýjir frá síðasta sumri:
Gunnlaugur Jónsson frá ÍA
Björgólfur Takefusa frá Fylki
Teitur Þórðarson þjálfari frá Noregi
Farnir frá síðasta sumri:
Arnar Bergmann Gunnlaugsson í ÍA
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson hættur
Helmis Matute til Danmerkur
Sigurvin Ólafsson í FH
Jökull I Elísabetarson í Víking
Magnús Gylfason þjálfari í Víking
Erik Krzisnik til Slóveníu
Ólafur Páll Johnson í Fjölni
Gestur Pálsson til OB
Pétur Már Pétursson í Breiðablik
Komnir til baka úr láni:
Vigfús Arnar Jósepsson frá Leikni
 

Leikmenn KR

nr. Nafn Staða
1. Kristján Finnbogason Markvörður
2. Bjarni Óskar Þorsteinsson Varnarmaður
3 Tryggvi Sveinn Bjarnason Varnarmaður
4. Gunnlaugur Jónsson Varnarmaður
5. Kristinn J. Magnússon Varnarmaður
6. Bjarnólfur Lárusson Miðjumaður
7. Ágúst Þór Gylfason Miðjumaður
8. Garðar Jóhannsson Framherji
9. Sölvi Davíðsson Framherji
10. Björgólfur H. Takefusa Framherji
11. Grétar Ólafur Hjartarson Framherji
13. Gunnar Einarsson Varnarmaður
14. Sigmundur Kristjánsson Miðjumaður
15. Skúli Jón Friðgeirsson Miðjumaður
16. Atli Jónasson Markvörður
17. Dalibor Pauletic Varnarmaður
18. Halldór Ágúst Ágústsson .
19. Brynjar Orri Bjarnason .
20. Tómas Agnarsson .
21. Vigfús Arnar Jósepsson Varnarmaður
23. Guðmundur Gunnarsson Miðjumaður
24. Sölvi Sturluson Varnarmaður
25 Eggert Rafn Einarsson .
26. Skúli Jónsson .
27. Gunnar Kristjánsson Varnarmaður
28. Björn Ívar Björnsson .
29. Rógvi Jacobsen Framherji
 

Leikir KR

Dags: Tími Leikur
14. maí 20:00 KR - FH
20. maí 16:00 ÍA - KR
24. maí 19:15 KR - Fylkir
28. maí 19:15 Keflavík - KR
6. júní 19:15 KR - Breiðablik
10. júní 16:00 ÍBV - KR
15. júní 19:15 KR - Víkingur R.
22. júní 19:15 Grindavík - KR
29. júní 19:15 KR - Valur
6. júlí 14:00 FH - KR
17. júlí 19:15 KR - ÍA
30. júlí 19:15 Fylkir - KR
9. ágúst 19:15 KR - Keflavík
21. ágúst 18:00 Breiðablik - KR
27. ágúst 18:00 KR - ÍBV
10. sept 14:00 Víkingur R. - KR
17. sept 14:00 KR - Grindavík
23. sept 14:00 Valur - KR

Slapp
banner
banner