Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um fyrstu deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu í þessari spá var Þór sem fékk 131 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Þórsara.
Þór
Þjálfari: Lárus Orri Sigurðssonm
Búningar: Hvít treyja, rauðar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.thorsport.is
Þórsarar hafa misst talsvert marga leikmenn en fengið nokkra athyglisverða leikmenn úr neðri deildum. Helgi Jones snýr aftur frá Fjarðabyggð reynslunni ríkari en hann spilaði vel fyrir liðið sem kom á óvart í 2. deildinni í fyrra. Víglundur Páll Einarsson kemur einnig frá Fjarðabyggð en hann var til reynslu hjá Crystal Palace í vetur. Þá hefur liðið fengið varnarmanninn Sigmund Birgi Skúlason frá Tindastóli og markvörðinn Árna Kristinn Skaftason sem mun veita Gunnari Líndal samkeppni um stöðu í liðinu.
Þórsarar fengu 34 mörk á sig í fyrra sem er fullmikið miðað við að vörn þeirra er ansi sterk. Það vantar allavega ekki reynsluna í öftustu línu með þá Lárus Orra Sigurðsson og Hlyn Birgisson. Lárus tók við sem spilandi þjálfari liðsins eftir síðasta sumar sem kom kannski fáum á óvart. Flestir sem bjuggust við að þetta myndi gerast eftir að Lárus kom heim úr atvinnumennskunni. Hlynur ætlaði að leggja skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en var fljótur að skipta um skoðun, 37 ára gamall. Vörnin hefur verið sterkari í vetur en í fyrra og Þórsarar náðu meðal annars í undanúrslit í deildabikarnum.
Síðustu tímabil hefur liðinu vantað alvöru markaskorara og virðist ekki vera búið að finna lausn á því. Pétur Heiðar Kristjánsson og Sigurður Donys Sigurðsson eru báðir farnir frá liðinu svo breiddin í sóknarlínunni hefur minnkað talsvert þó báðir þessir leikmenn hafi ekki getað beitt sér að fullu vegna meiðsla síðasta sumar. Ibra Jagne hefur ekki verið á skotskónum þrátt fyrir lipur tilþrif í fremstu víglínu en þær sögur heyrast frá Akureyri að hann þjáist af heimþrá.
Veikleiki: Breiddin framar á vellinum er ekki mikil og eins og áður sagði þá er Þór enn að glíma við það vandamál að vanta alvöru markaskorara. Ef engin skakkaföll verða þá ætti liðið þó að geta blandað sér í baráttuna í efri helmingnum.
Lykilmenn: Lárus Orri Sigurðsson, Hlynur Birgisson og Ibra Jagne.
Komnir: Árni Kristinn Skaftason frá Leiftur/Dalvík, Daði Kristjánsson frá Víkingi, Sigmundur Birgir Skúlason frá Tindastól, Helgi Jones frá Fjarðabyggð, Víglundur Páll Einarsson frá Fjarðabyggð.
Farnir: Zeljko Gavrilovic til Serbíu og Svartfjallalands, Albert Brynjar Ingason til baka í Fylki úr láni, Arnljótur Ástvaldsson í Þrótt, Atli Már Rúnarsson í Magna, Pétur Heiðar Kristánsson í Vini, Dragan Simovic í Serbíu og Svartfjallaland, Hallgrímur Jónasson til Keflavík, Sigurður Donys Sigurðsson til Huginn.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. Fram 160 stig
2. Þór 131 stig
3. Þróttur 118 stig
4. HK 114 stig
5. KA 86 stig
6. Stjarnan 75 stig
7. Fjölnir 74 stig
8. Víkingur Ólafsvík 65
9. Leiknir 50 stig
10. Haukar 27 stig






