Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í öðru sætinu í þessari spá var Fjarðabyggð sem fékk 135 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Fjarðabyggð sem spáð er upp úr annarri deildinni.
Fjarðabyggð
Þjálfari: Þorvaldur Örlygsson
Búningar: Rauð treyja, dökkbláar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.kff.is
Þorvald þjálfara þarf vart að kynna. Hann lék mestan sinn feril sem atvinnumaður á Englandi með liðum á borð við Oldham, Notthingham Forrest og Stoke. Flutti heim og tók við þjálfun KA en lét af störfum í fyrra vegna veikinda dóttur sinnar. Náði góðum árangri hjá KA og kom
meðal annars liðinu í bikarúrslit árið 2003.
Koma þessara sterku leikmanna mun án efa hjálpa þessu unga Fjarðabyggðarliði í baráttunni í 2.deildinni í sumar. Liðið tapaði ekki leik í Deildabikarnum en fóru þrátt fyrir það, ekki upp úr riðlinum. Það er ljóst að liðið kemur reynslunni ríkari til leiks eftir tímabilið í fyrra þegar liðið lenti í 4.sæti. Liðið hefur misst fáa leikmenn og náð að styrkja lið sitt gífurlega.
Veikleikar: Veikleikar liðsins í fyrra var án nokkurs vafa heimavöllur liðsins. Þrátt fyrir að það kunni að hljóma einkennilega þá er það staðreynd. Liðið náði "einungis" í 15 stig á heimavelli í fyrra af 27 mögulegum og það er ljóst að liðið má ekki við slíkum stigafjölda í ár. Að öllu jafna ætti heimavöllur liðsins að gefa þeim mun fleiri stig. Náðu í 14 stig á útivelli sem er fínn árangur en liðið þarf að fækka jafnteflisleikjum á heimavelli. Það er spurning hvernig Þorvaldur stillir upp varnarlínu liðsins en liðið missti þá Helga Jones og Víglund Pál Einarsson. Að sama skapi hefur liðið fengið Andra Hjörvar og Hauk Ingvar Sigurbergsson.
Lykilmenn: Elmar Dan Sigþórsson, Haukur Ingvar Sigurbergsson, Andri Hjövar Albertsson,
Komnir: Andri Hjörvar Albertsson frá Grindavík, Jóhann Ingi Jóhannsson í láni frá HK, Elmar Dan Sigþórsson frá Víkingi R., Haukur Ingvar Sigurbergsson frá KA, Ingimar Guðmundsson frá Leiknir F., Andri Bergmann Þórhallsson frá Huginn.
Farnir: Helgi Jones í Þór, Víglundur Páll Einarsson í Þór og
Matthías Spencer Heimisson í Leikni F.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. Njarðvík 153 stig
2. Fjarðabyggð 135
3. Afturelding 121 stig
4. ÍR 116 stig
5. Selfoss 93 stig
6. KS/Leiftur 83 stig
7. Völsungur 79 stig
8. Reynir Sandgerði 53 stig
9. Sindri 43 stig
10. Huginn 24 stig


