|
Sérfræðingarnir sem spáðu eru: Atli Eðvaldsson, Ásgeir Elíasson, Guðmundur Hreiðarsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Ólafur Kristjánsson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason, Þorvaldur Örlygsson.
H vað segir Ólafur? Ólafur Helgi Kristjánsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ólafur hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og hefur gríðarmikla þekkingu á boltanum. Hann hefur starfað við þjálfun hér á landi hjá Fram og var í mörg ár aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku. Hér að neðan má sjá hans álit á ÍA.
Um ÍA Það er kúltúr fyrir því að spila fótbolta uppi á Skaga. Skaginn spilar eins og Skaginn hefur alltaf spilað. Það er mikill kraftur í þeim, mikill vinnuvilji og fullt af ungum leikmönnum sem eru mjög sprækir. Svo eru þeir með sterkan karakter sem þjálfara sem pískar þá áfram og veit alveg hvað þarf til að ná árangri. Í fyrra fannst mér hann ná mjög vel að koma því til skila til liðsins.
Stundum spiluðu þeir mjög einfaldan fótbolta og aðra stundina náðu þeir að spila mjög áferðarfallegan bolta. Fyrst og fremst finnst mér vera einkennandi þessi mikli kraftur sem er í Skagaliðinu sem ég hef hrifist af, og þá sérstaklega í fyrra.
Styrkleikar: Skytturnar þrjár eru komnar aftur. Þeir eru búnir að fá fjóra mjög góða leikmenn til sín. Þeir hafa misst Gulla, Finnboga og Reyni, þar af tvo hafsenta sem var kjölfestan í liðinu í fyrra. Þegar brann á hjá þeim þá voru þeir tveir að spila vel. Voru búnir að spila saman lengi. Það er spurning hvernig þeir leysa þær stöður núna.
Bjarni hefur verið að spila þarna og þeir fengu Árna Thor frá HK sem er mjög sterkur leikmaður. Ég hef trú á að hann geti komið þarna inn og leyst þessa stöðu mjög vel. Helgi Pétur Magnússon hefur verið að spila þessa stöðu líka hann er sterkur og stór strákur. Þeir gætu líka myndað gott miðvarðarpar.
Veikleikar Það er erfitt með þá eins og flesta aðra að tala um veikleika eftir að hafa bara séð æfingaleiki og deildabikar. Það gæti verið veikleiki að Gulli og Reynir eru farnir, og þar með reynsla úr liðinu en þar á móti kemur að Þórður, Bjarni og Arnar eru með gríðarlega reynslu. Veikleikarnir gætu orðið miðvarðarstaðan og varnarleikurinn. Fram á við eru þeir alveg nógu sterkir. Það hefur alltaf loðað við Skagann að spila öflugan varnarleik og ég hef trú á að þeir nái að kítta í að Gulli, Reynir og Finnbogi eru farnir.
Gaman að fylgjast með Það verður gaman að sjá Bjarna, Þórð og Arnar aftur, engin spurning. Ég held að Arnar komi til með að eiga gott tímabili uppi á Skaga ef hann sleppur við meiðsli. Svo eru ungir strákar þarna. Ellert Jón, Hafþór Ægir og Helgi Pétur. Þeir unga út leikmönnum á Skaganum og það er engin tilviljun. Dean Martin á sínum góðu dögum er mjög öflugur líka.
Lykilmaður Það segir sig sjálft að Þórður, Bjarni og Arnar koma til með að verða lykilmenn í þessu liði en ef við tökum það sem við köllum stjörnur í burtu tel ég að Árni Thor komi til með að skipta miklu máli, hann á að vera lykilmaður í þessu liði. Svo er það markvarslan hjá Bjarka.
Þjálfarinn: Gamli jaxlinn Óli Þórðar hefur komið víða við á sínum ferli en þrátt fyrir það hefur hann verið gallharður Skagamaður allan tímann. Hann hóf sinn þjálfunarferil hjá Fylki en þar þjálfaði hann við góðan orðstír 1998-1999. Ólafur tók síðan við þjálfun ÍA fyrir síðasta leik liðsins haustið 1999 og hefur hann verið þjálfari liðsins síðan þrátt fyrir ótal gylliboða ár eftir ár frá öðrum liðum. Undir hans stjórn hefur ÍA einu sinni orðið Íslandsmeistari, tvisvar sinnum bikarmeistari og deildabikarmeistari.
Líklegt byrjunarlið ÍA:
Völlurinn: Akranesvöllur tekur í heildina um 6000 áhorfendur. Stúkan sem er öðrum megin við völlinn tekur 570 í sæti en auk þess er pláss fyrir áhorfendur allt í kringum völlinn meðal annars í grasbrekkum. Talan 6000 er kannski ekki alveg rétt þó því árið 1996, á lokaleik umferðarinnar í leik ÍA og KR voru 7700 áhorfendur.
Stuðningsmenn: Meðal þekktra stuðningsmanna ÍA eru: Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttamaður á NFS, Jóhann Ársælsson alþingismaður, Gísli Gíslason framkvæmdastjóri Faxaflóahafna, Óli Palli dagskrárgerðarmaður á Rás 2, Gunni Sig bakari, Valdimar K Friðriksson þingmaður, Árni Ibsen rithöfundur, Jakob Einarsson leikari, Gísli S. Einarsson, Benedikt Helgason bílasali í Reykjavík. Arnór Pétursson fyrrum formaður Sjálfsbjargar, Helgi B. Daníelsson.
| |
|
Um félagið |
|
Íþróttabandalag Akranes Stofnað 1946 Titlar: Íslandsmeistarar: 1951, 1953, 1954, 1957, 1958, 1960, 1970, 1974, 1975, 1977, 1983, 1984, 1992, 1993, 1994, 1995, 1996, 2001. Bikarmeistarar: 1978, 1982, 1983, 1984, 1986, 1993, 1996, 2000, 2003. Deildabikarmeistarar: 1996, 1999, 2003. Búningar: Gool Aðalbúningur: Peysa: Gul og svört / Buxur: Svartar / Sokkar: Gulir og svartir
Varabúningur: Peysa: Hvít og blá / Buxur: Hvítar / Sokkar: Hvítir og bláir Opinber vefsíða: ÍA.is/KIA
Stuðningsmannasíða Skagamenn.com
|
|
Komnir og farnir |
| Nýjir frá síðasta sumri: |
Þórður Guðjónsson frá Stoke City Bjarni Guðjónsson frá Plymouth Arnar Gunnlaugsson frá KR Árni Thor Guðmundsson frá HK |
| Farnir frá síðasta sumri: |
Gunnlaugur Jónsson í KR Finnbogi Llorens í HK Reynir Leósson til Trelleborg Þorsteinn Gíslason í Þrótt Guðmundur Páll Hreiðarsson í Huginn Andrés Vilhjálmsson í Þrótt Águst Örlaugur Magnússon í Víking Unnar Örn Valgeirsson hættur Sigurður Ragnar Eyjólfsson - meiðsli óvíst hver hann fer. |
| Komnir til baka úr láni: |
| . |
|
Leikmenn ÍA |
| nr. |
Nafn |
Staða |
| 1. |
Bjarki F. Guðmundsson |
Markvörður |
| 2. |
Kristinn Darri Röðulsson |
Varnarmaður |
| 4. |
Bjarni E, Guðjónsson |
Varnarmaður |
| 5. |
Ellert Jón Björnsson |
Miðjumaður |
| 6. |
Helgi Pétur Magnússon |
Varnarmaður |
| 7. |
Dean Edward Martin |
Miðjumaður |
| 8. |
Pálmi Haraldsson |
Miðjumaður |
| 9. |
Hjörtur Júlíus Hjartarson |
Framherji |
| 10. |
Þórður Guðjónsson |
Miðjumaður |
| 11. |
Kári Steinn Reynisson |
Varnarmaður |
| 12. |
Páll Gísli Jónsson |
Markvörður |
| 13. |
Arnar B. Gunnlaugsson |
Framherji |
| 15. |
Jón Vilhelm Ákason |
Miðjumaður |
| 16. |
Skarphéðinn Magnússon |
Markvörður |
| 17. |
Guðmundur Guðjónsson |
Varnarmaður |
| 18. |
Guðjón Heiðar Sveinsson |
Varnarmaður |
| 19. |
Heimir Einarsson |
Varnarmaður |
| 20. |
Andri Júlíusson |
Framherji |
| 21. |
Igor Pesic |
Miðjumaður |
| 25. |
Árni Thor Guðmundsson |
Varnarmaður |
| 27. |
Hafþór Ægir Vilhjálmsson |
Miðjumaður |
| 30. |
Þórður Þórðarson |
Markvörður |
|
Leikir ÍA |
| Dags: |
Tími |
Leikur |
| 14. maí |
16:00 |
Grindavík - ÍA |
| 20. maí |
16:00 |
ÍA - KR |
| 25. maí |
20:00 |
FH - ÍA |
| 29. maí |
19:15 |
Valur - ÍA |
| 5. júní |
19:15 |
ÍA - Fylkir |
| 8. júní |
19:15 |
Keflavík - ÍA |
| 15. júní |
19:15 |
ÍA - Breiðablik |
| 22. júní |
19:15 |
ÍBV - ÍA |
| 28. júní |
19:15 |
ÍA - Víkingur R. |
| 7. júlí |
19:15 |
ÍA - Grindavík |
| 17. júlí |
19:15 |
KR - ÍA |
| 31. júlí |
19:15 |
ÍA - FH |
| 10. ágúst |
19:15 |
ÍA - Valur |
| 20. ágúst |
18:00 |
Fylkir - ÍA |
| 28. ágúst |
18:00 |
ÍA - Keflavík |
| 10. sept |
14:00 |
Breiðablik - ÍA |
| 17. sept |
14:00 |
ÍA - ÍBV |
| 23. sept |
14:00 |
Víkingur R. - ÍA | |