Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 29. maí 2006 08:08
Hörður Snævar Jónsson
Fótboltinn minn: Dagur B. Eggertson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net mun nú byrja með nýjan lið á mánudögum sem nefnist fótboltinn minn en þar fáum við þekkta einstaklinga úr þjóðfélaginu til að segja frá fótboltaferli sínum og ýmsu tengdu fótboltanum. Dagur B. Eggertsson ríður á vaðið en þessi oddviti Samfylkingarinnar er í nýrri borgarstjórn Reykjavíkur.



Hvernig var fótboltaferill þinn? Hann einkenndist af einu orði sem er Fylkir. Ég var sem sagt uppalinn í Árbænum og var í fyrsta árganginum hjá Fylki sem varð Íslandsmeistari. Þetta voru síðar margir úr þessu liði sem báru uppi Fylkis liðið síðustu ár. Kristinn Tómasson, Finnur Kolbeinsson, Gunnar Þór Pétursson og Þórhallur Dan (Jóhannsson). Ég hætti um sextán, sautján ára aldur ég lagðist í flakk eitt sumarið og þá flosnaði einhvern veginn upp úr þessu. Þetta var hörku lið, ég var nú alger tittur fram eftir aldri en hinir strákarnir bættu það upp með því að vera mjög miklir lurkar og það var mikil samheldni í Árbænum og þetta var svona byrjunin af stórveldistíð Fylkis í yngri flokkunum. Það var ofboðslega vel haldið utan um þetta allt saman þannig að við tókum þó nokkuð marga titla.

Hvaða stöðu spilaðirðu? Hægri bakvörð, alltaf. Ég er einn af þeim fáu sem hafa orðið fyrirliði þrátt fyrir knattspyrnuhæfileika, það er af því að ég talaði mest og þurfti stundum að hvetja áfram hina snillingana.

Fylgistu ennþá með fótboltanum í dag? Jú jú ég reyni að fara á völlinn alltaf þegar ég get. Reyndar er það orðið þannig með sjónvarpsfótboltann að það er orðið svo svakalega mikið framboð að maður treystir sér varla til að fylgjast almennilega með ensku. Það er frekar að maður horfi á Meistaradeildina og svona toppleiki.

Hvenar fórstu seinast á völlinn? Ég er búinn að vera mjög duglegur núna, ég er búinn að sjá báða leikina hjá Fylki í deildinni og svo er nú stórleikur í kvöld KR - Fylkir í Vesturbænum (Viðtalið er tekið síðastliðinn miðvikudag). Ég kíki þangað. En ég er líka bæði búinn að sjá KR og Val tapa fyrir FH sem gengur ekki að láta undanbæjar menn valta yfir mannskapinn. Mér líst ekkert illa á deildina, mér finnst vellirnir vera nokkuð góðir. Þótt að það sé alltaf einhver vorbragur þá finnst mér þetta fara bara ágætlega af stað, slatti af mörkum.

Á ekki að fylgjast með HM í sumar? Já heldur betur, þótt að það sé gaman í kosningarbaráttu þá er það ekkert sem jafnast á við HM. Það er náttúrlega algjör hátíð.

Hvað er þitt lið þar? Ég hef alltaf verið hrifinn af Frökkum og Hollendingum útaf fótboltanum sem þeir spila, enn ætli að maður haldi ekki með Norðurlandaþjóðunum og svo hugsa ég að Brasilíumenn verði alveg fanta góðir. Það þarf eitthvað mjög mikið að gerast þannig að þeir fari ekki alla leið með þetta.

Hvað er þitt lið Erlendis? Það er Liverpool. Það hefur verið alveg frá því að ég byrjaði í fótbolanum, þegar ég var sjö ára eitthvað svoleiðis. Kannski útaf því að þeir voru svo góðir þá. Liverpool í ensku, Barcelona í spænsku og ég hef nú ekkert verið mjög heitur í ítölsku en einhvertímann hélt maður nú með AC Milan, enn það eru enginn trúarbrögð í því.

Hver er uppáhalds fótboltamaðurinn þinn í dag? Heiðar Helguson er maður frænku minnar, ég held gríðarlega mikið upp á hann af því að hann er svo ofboðslega öflugur og mikill baráttumaður. Ég kann alveg svakalega vel við fóboltamenn sem gefa ekkert eftir og hafa rosalega skýrt markmið. Eiður Smári er náttúrulega heimsklassaleikmaður sem er ekki hægt annað hægt enn að dást af. Þú veist hann setur menn beinlíns í vandræði þegar hann spilar á móti Liverpool af því að ósjálfrátt heldur maður svolítið með honum. Hann er reyndar frændi konunnar minnar líka þannig að þetta er svolítið fótboltafjölskyldur.

Áttu einhverja skemmtilega sögu af fótboltaferli þínum? Við töpuðum úrslitaleik þegar ég var fyrirliði í fimmta flokki. Úrslitaleik Íslandsmótsins þá voru ekki komnar svona stafrænar myndavélar þannig að hver mynd var mjög dýrmæt og þannig háttaði til að þegar við heilsuðumst fyrirliðarnir þá sá ég greinilega ástæðu til að laga stuttbuxurnar með hinni hendinni. Þannig að toppmyndin sem ég á frá fyrirliðaferli mínum er mynd þar sem ég virðist vera að klóra mér í rassinum. Ég veit ekki
hvort það segi allt um minn fótboltaferil en ég á engar myndir af mér
vera að taka hjólhestaspyrnu.
Slapp
banner
banner
banner