Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. júní 2006 11:46
Hörður Snævar Jónsson
Fótboltinn minn: Egill Helgason
Egill var hress þegar Fótbolti.net hitti á hann.
Egill var hress þegar Fótbolti.net hitti á hann.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Vikulega mun þekt fólk svara nokkrum spurningum um fótboltaferil sinn og ýmsu tengt fótbolta hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það Egill Helgason sem stórnar þættinum Silfur Egils sem svarar nokkrum spurningum um feril sinn á vellinum.



Hvernig var fótboltaferill þinn? Hann var nú ekki merkilegur, ég æfði með KR í yngri flokkunum. Var nú aldrei sérstaklega góður, en var að sparka með vinum mínum alveg til 25 ára aldurs, og var svolítið í innanhúsfótbolta . Ég held að ég sé kominn yfir þann hjalla, að ég byrji aldrei aftur. Því miður.

Hvaða stöðu spilaðirðu? Ég var frammi, ég hafði gaman af því skora mörk en var liðónýtur varnarmaður.

Fylgistu ekki vel með boltanum í dag? Ég fylgist bæði með enska og íslenska boltanum sko, í enska er ég Liverpool maður og er alveg búinn að vera það síðan Liverpool spilaði gegn KR í Evrópukeppninni, 64 (1964). Þá var ég reyndar bara fjögurra ára, en pabbi fór með mig á leikinn svo voru Liverpool náttúrulega frá Bítlaborginni, og svo er ég fæddur í KR hverfi þannig að það var aldrei nein spurning um að verða KR-ingur.

Hvenar fórstu seinast á völlinn? Ég fór á KR – FH hérna um daginn, það var ekkert sérstaklega gaman. FH-ingar tóku okkur alveg í bakaríið, ég er hræddur um að þeir verði ekki stöðvaðir í ár.

Hver er uppáhalds fótboltamaðurinn þinn? Veistu það í dag er uppáhalds fótboltamaðurinn minn í dag kona, það er hún Ásthildur Helgadóttir. Mér finnst hún bara frábær íþróttamaður, en svona í gegnum tíðina af Íslendingum hélt ég alltaf mikið uppá á Pétur Pétursson, hann var svona skemmtilegur leikmaður svona sókndjarfur framherji. Af útlendingum, veit ég ekki. Maradona var náttúrulega bara bestur en ég nefni Michael Platini, ég hélt ofboðslega mikið upp á hann.

Ætlaru að fylgjast með HM í sumar? Já, ég verð niðri í Grikklandi í allt sumar. Er þar á sumrin og þar setja menn sjónvarpstækin bara út undir bert loft, ef það rignir ekki. Ætli að ég sitji ekki bara með köllunum á kaffihúsunum og horfi á bolta. Verst að Grikkirnir eru ekki með, ég var nefnilega í Grikklandi þegar þeir urðu Evrópumeistarar fyrir tvemur árum það var ofboðsleg stemmning. Af því að ég lærði í Frakklandi, þá hef ég nú eigilega alltaf haldið með Frökkum nema þegar Grikkirnir voru að spila og ætli að ég haldi ekki með þeim líka í keppninni en ég held að Brasilía vinni.

Áttu einnhverja skemmtilega fótboltasögu af ferli þínum? Hann var nú ekki svo merkilegur, ég var nú bara svona guttlari og alltaf að spila einnhverja svona alvöru leiki. En við vorum orðnir svo góðir í svona innanhústbolta og littlum velli, ég og vinir mínir. Við spiluðum alltaf við skólann eins og á sparkvöllum, að einnhvertíman komu nokkrir meistaraflokksmenn úr Val og við vorum þá löngu hættir að spila sjálfir en við tókum þá algjörlega í bakaríið af því að við vorum orðnir svo góðir á svona littlum og þröngum völlum. Þetta voru held ég þrír meistaraflokks menn úr Val. Eftirminnilegast er þó þegar að öllum var smalað inn í KR-heimilið til að horfa á HM 1966 en það var fyrir tíma sjónvarpsins.
Slapp
banner
banner