Vikulega mun þekkt fólk svara nokkrum spurningum um fótboltaferil sinn og ýmsu tengt fótbolta hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það vaxtarræktargarpurinn og fjölmiðlamaðurinn Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger sem segir okkur frá fótboltaferli sínum.
Hvernig var fótboltaferill þinn? Hann byrjaði þegar ég var svona 5-6 ára og ég var að sjálfsögðu settur í Blikana enda kominn af Blikafamilíu. Ég var strax gríðarlega mikið efni og það var alltaf sagt við mig og Marel (Baldvinsson) að ég væri efnilegi góði gæinn en hann væri bara svona allt í lagi. Ég var í Breiðablik upp alla yngri flokkana og alveg upp í meistaraflokk þar sem Siggi Grétars var að þjálfa. En maður flosnaði eitthvað aðeins upp úr þessu þá og byrjaði eitthvað í íshokkí og fór að sjálfsögðu beint í landsliðið þar.
En hápunkturinn á fótboltaferli mínum var MK-deildin. Við vorum allir félagarnir saman í MK og vorum besta lið í sögu MK deildarinnar. Þetta lið getur unnið hvaða lið sem er á lítinn völl. Ég var í að sjálfsögðu í senternum, Marel var á miðjunni bakvið mig, síðan var bónerinn Kristján Óli Sigurðsson á hægri kantinum, Magnús Páll Gunnarsson var í baráttunni á miðjunni fyrir aftan Malla, kynlífsfíkillinn Kristinn Páls á vinstri kantinum, Hjörvar Hafliða var í markinu. Síðan vorum við með þrjá varnarjaxla, þá Sigurður Grétar Ólafsson, Garðar Grjón og Ómar Valur Mokk. Við vorum þarna einhverjir pjakkar og rúlluðum MK deildinni upp allan tímann sem við vorum þarna og vorum fyrir vikið ekkert alltof vinsælir. Ég var að sjálfsögðu markahæsti maður MK deildarinnar frá upphafi, það er skráð.
Síðan fór maður í Haukana þegar Willum var að þjálfa þá og þá var ég bara svona venjulegur 70 kílóa fótboltastrákur. Willum sagði við að ég væri gríðarlega mikið efni og ég væri á leiðinni út í atvinnumennskuna ef ég myndi kannski styrkja mig aðeins. Hann sagði mér að kíkja aðeins í lyftingasalinn og rífa aðeins í lóðin. Ég er ennþá að lyfta í dag og hætti í fótbolta og það er því honum að kenna að ég sé hrikalegur og ekki atvinnumaður í dag. Ég var líka eitthvað að sprikla með ÍH í utandeildinni í fyrra en ég sá þá að ég er bara of hraustur fyrir íslenskan fótbolta. Ég veit ég gæti alveg farið í hvaða deild sem er í dag og sett lágmark 12-15 mörk. Þetta er fótboltaferillinn minn í grófum dráttum.
Fylgistu ennþá með fótboltanum í dag? Já, já. Ég reyni að fara á alla leiki sem ég kemst á og ég elti auðvitað Blika hvert sem
Hvenær fórstu seinast á völlinn? Ég skellti mér á völlinn í gær, fór til Keflavíkur á Keflavík - Breiðablik. Ég lagði bílnum fyrir framan völlinn og Keflvíkingarnir voru ekki búnir að merkja gamla innganginn þar þannig að ég þurfti að labba í korter til að finna völlinn og þá var staðan orðinn 2-0 fyrir Keflavík. Ég þurfti að borga mig inná völlinn því offitusjúklingurinn Geir Þorsteinsson vill ekki láta mig fá fréttamannapassa því hann vill ekki að Gilzeneggerinn fjalli um íslenska fótboltann. Hann neitaði DV þegar þeir sendu beiðni um hvort ég mætti fá blaðamannapassa og þess vegna eru menn að velta fyrir sér hvort að KSÍ megi ráða hverjir fjalli um íslenska fótboltann. Ég reif því bara upp veskið og borgaði og fékk að launum hörkuleik. Menn geta nefnilega bókað það að þeir fá mörk þegar þeir fara á Blikaleiki.
Ertu búinn að fylgjast með HM í sumar? Já auðvitað! Maður er bara HM sjúklingur og getur ekki annað en horft á þetta.
Hvað er þitt lið þar? Ég hef taugar til Englands (viðtalið var tekið sl. fimmtudag) og Þýskalands. Félagar mínir Becks, G.Neville og Rooney eru náttúrulega þarna í Englandi og það er ekki hægt að
Hver er uppáhaldsfótboltamaðurinn þinn? Marel Baldvinsson er í uppáhaldi og Becks líka hann er þarna auðvitað og síðan Phil Neville. Það eru eiginlega þessir þrír sem eru í miklu uppáhaldi.
Áttu einhverja skemmtilega fótboltasögu af ferli þínum? Já það gerðist margt skrautlegt í fótboltanum á sínum tíma. Þegar ég var hjá Willum þegar hann var hjá Haukum komu KRingar upp á Ásvelli og við tókum æfingaleik við þá. KRingar hafa náttúrulega aldrei verið sterkir og við jörðuðum þá í öllum návígum. Í eitt skipti þegar Gunnar Einarsson varð undir í baráttunni þá horfði hann á okkur félagana og öskraði: Fokking áhugamenn! Þetta fannst okkur mjög fyndið og sérstaklega í dag því núna er Gunnar Einarsson varamaður í einu lélegasta liðinu í Landsbankadeildinni. Hann er þvílíkur atvinnumaður, fór til Hollands í tvo mánuði og skeit þar á sig. Það var því mjög gaman að því að hann kallaði okkur áhugamenn.
Ég er líka með eina aðra. Þegar við strákarnir vorum í 2.flokki í Breiðablik fórum við til Grindavík að keppa og mig minnir að dómarinn sem dæmdi þennan leik heitir Eyjólfur Magnússon, dómari frá Grindavík. Í lok leiksins slapp bónerinn (Kristján Óli) einn í gegn og var búinn að sóla markmanninn og var að renna boltanum í netið þegar gæinn flautar leikinn af og staðan var 1-1! Við fjölmenntum svo allir í bíla og ætluðum að berja dómarann því við fundum út hvar hann átti heima en hættum síðan við.




