Fótboltinn minn er kominn aftur eftir stutt sumarfrí. Í hverri viku fáum við til okkar þekktan einstakling úr þjóðfélaginu og fáum hann til segja okkur frá fótboltaferli sínum og ýmsu öðru tengdu fótbolta. Í þessari viku er það borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson sem svarar nokkrum spurningum.
Hvernig var fótboltaferillinn þinn? Hann var stuttur en skemmtilegur. Ég er að vísu ennþá í fótbolta með félögunum einu sinni í viku, undir merkjum Ungmannafélagsins Rögnunnar. Ég byrjaði með Leikni í Breiðholtinu, en fór svo í Fram, einsog svo margir vinir mínir úr Breiðholtinu. Ég æfði þó aldrei af neinu viti hjá Fram, en var viðloðandi klúbbinn og eignaðist fjöldan allan af góðum félögum í þessum ágæta félagsskap. Ég hélt svo eitthvað áfram hjá Leikni uppí 3. flokk minnir mig, en bæði voru allar aðstæður erfiðar hjá Leikni, og áhugi minn kominn meira í félagslífið í skólanum, þannig að ferillinn reis aldrei hærra.
Hvaða stöðu spilaðirðu? Ég var ýmist frammmi eða á kantinum. Þótti sæmilega fljótur, en ekkert mjög líkamlega sterkur.
Fylgistu ennþá með fótboltanum í dag? Já, ég er jafnvel ennþá betri í að horfa á fótbolta en spila hann. Ég mæti á alla heimaleiki KR sem ég mögulega kemst á, og kíki stundum með tengdaföður mínum í Kaplakrikann. Þá hef ég farið á nokkra leiki hjá Leikni, þegar ég hef átt leið í Breiðholtið. Þannig að það má segja að ég fylgist nokkuð vel með. Síðan er ég ákafur stuðningsmaður Liverpool og fylgist alltof vel með þeim rauðu.
Hvenær fórstu seinast á völlinn? Ég fór á KR-Akranes í síðustu viku, og fer aftur í kvöld á KR-ÍBV í bikarnum.
Fylgdistu með HM í sumar? Já, ég horfði á eins marga leiki og ég komst í. Frábær skemmtun.
Hvað var þitt lið þar? England.
Hvað er þitt lið erlendis? Liverpool í Englandi, Bayern Munchen í Þýskalandi og ég held maður verði með ansi sterkar taugar til Barcelona í vetur þegar okkar maður byrjar að brillera.
Hver er uppáhalds fótboltamaðurinn þinn í dag? Það væri hægt að nefna svo marga fína íslenska fótboltamenn. Fyrir utan Eið Smára og Pétur Marteinsson, sem eru náttúrulega á heimsmælikvarða, þá nefni ég Tryggva Guðmundsson, Viktor Bjarka og Sigmund Kristjáns. Allir mjög hugsandi, skapandi og skemmtilegir leikmenn.
Áttu einhverja skemmtilega sögu af fótboltaferli þínum? Nei, þær eru nú flestar frekar sorglegar.


