Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 24. ágúst 2006 13:12
Hafliði Breiðfjörð
Myndband af hrottalegu broti Ben Tatcher
Gert að meiðslum Mendes í gær.
Gert að meiðslum Mendes í gær.
Mynd: Getty Images
Nú er hægt að nálgast myndband af hrottalegu broti Ben Tatcher leikmanns Manchester City á Pedro Mendes leikmanni Portsmouth í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær en Mendes missti meðvitund við höggið og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gisti í nótt.

Myndbandið má sjá neðst í þessari frétt.

Bæði enska knattspyrnusambandið og lögreglan á Bretlandi eru komin í málið og ljóst að Tatcher á harða refsingu yfir höfði sér.

,,Við erum að skoða hvort þetta gæti hugsanlega verið óvenjulegt mál og hvaða möguleikar eru í boði samkvæmt agareglum okkar," sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins í dag en Tatcher fékk gula spjaldið fyrir brotið hrottalega.

Það nýjasta í málinu er svo það að lögregla hefur staðfest að rannsókn sé hafin á atvikinu og en talsmaður þeirra sagði þá hafa fengið margar ábendingar frá almenningi vegna atviksins.

Sjá einnig:
Myndband af atvikinu

Athugasemdir
banner
banner
banner