Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 18. október 2006 07:51
Magnús Már Einarsson
Fótboltinn minn: Auðunn Blöndal (Auddi)
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Þá er komið að liðnum fótboltinn minn þar sem þekktur einstaklingur úr þjóðfélaginu segir okkur frá fótboltaferli sínum og svarar nokkrum spurningum um fótbolta. Að þessu sinni er það Auðunn Blöndal sem stjórnar nú þættinum Tekinn á Sirkus. Þekktastur er hann þó fyrir að vera einn af Strákunum sem voru að Stöð 2 en hafa nú hætt sýningum.



Hvernig var fótboltaferill þinn?
Hann var styttri en ég bjóst við en samt mjög skemmtilegur. Byrjaði 5 ára með Leiknir í Breiðholtinu og var einmitt að æfa þar með Hrefnu markaskorara KR í kvennaknattspyrnuni. Hún fékk að æfa með okkur strákunum. Svo var spilað 2 ár með Stars í Bandaríkjunum og ég er ekki frá því að Pétur Jóhann Sigfússon sem að byrjaði ekki að labba fyrr en 4 ára hefði komist í það lið. Og svo var það Tindastóll í 8 ár þar til að maður tók 2 tímabil með Skallagrími. Spilaði svo kveðjuleikinn með Nördunum gegn FH fyrir framan 8000 manns sem að var alveg geggjað. Á þessum ferli skoraði kallinn í öllum deildum nema úrvalsdeildini en setti hann á móti FH með nördunum þannig að það bætir það upp

Hvaða stöðu spilaðir þú?
Var aðalega framherji en datt á hægri kantinn af og til.

Fylgist þú ennþá með fótboltanum í dag?
Já alveg á kafi.

Hvert er þitt lið heima?
Valur hér heima og Tindastóll í neðri deildunum.

Hvert er þitt lið erlendis?
Það er Man.Utd sem að eru efstir í deildini þegar að þetta er skrifað!

Hvenar fórst þú síðast á völlinn?
Fór á Ísland Danmörk um daginn og Valur-Víkingur í bikarnum þar á undan og fóru báðir leikirnir illa !!!

Hver er uppáhaldsfótboltamaðurinn þinn í heiminum?
Eric Cantona var goð í mínum augum á yngri árum og er enn. En í dag er það sennilega Rooney og hlunkurinn sem að ber fyrirliðaband Íslands.

Áttu einhverja skemmtilega sögu/r af fótboltaferli þínum?
Já þegar að ég var í 5 flokki með Tindastól og upp á mitt tapsárasta að þá var ég einusinni rekinn útaf á móti Hvöt á Blönduósi. Þjálfari minn trompaðist við mig og sagði mér að drulla mér útí rútu og vera þar. Þegar að ég kom að rútuni að þá tók ég stein og byrjaði að berja hnéð á mér á fullu þar til að það byrjaði að blæða úr því og fór svo aftur til þjálfarans og sýndi honum hvað fíflið hefði gert við mig í einu horninu og þess vegna hefði ég slegið hann....maður var ferskur !!
Slapp
banner