Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í tíunda sætinu í þessari spá voru Sindri sem fengu 33 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Sindra.
Sindri
Búningar: Rauð treyja, rauðar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.hornafjordur.is/sindri
Það má með sanni segja að lið Sindra sé eitt allra stærsta spurningamerkið í 2. deildinni í ár. Liðið hefur misst tvo sterka leikmenn frá því á síðustu leiktíð, þá Matjaz Kastelic og Alfreð Elías Jóhannsson. Kastelic varði mark Sindra í fyrra en í hans stað mun koma ungur strákur að nafni Denis Cardaklija en hann er sonur Hajrudin Cardaklija sem varði mark liðsins og fleira liða hér á landi á árum áður.
Takmark liðsins fyrir tímabilið hlýtur einfaldlega að vera að halda sæti sínu í deildinni en liðið hafnaði í 9. sæti á síðustu leiktíð. Sigur á Aftureldingu í lokaumferðinni gerði það að verkum að Sindri hélt sæti sínu í deildinni á kostnað Huginn.
Deildabikarinn fór betur en margir þorðu að vona en þar lagði liðið meðal annars 1. deildarlið Víkings Ólafsvíkur að velli. Stórt tap leit hins vegar dagsins ljós gegn Aftureldingu, 9-0, en liðið laut einnig í lægra haldi fyrir 3. deildarliði Kára og Reyni Sandgerði.
Það mæðir mikið á heimavellinum hjá Sindra en árangurinn þar bjargaði liðinu frá falli í fyrra. Allir sigrar liðsins unnust á heimavelli en liðið fékk aðeins 1 stig af 27 mögulegum á útivelli. Fjölgun liða í 1. deild gerði það að verkum að 9. sætið dugði Sindra til að halda sæti sínu í deildinni en slíkt fyrirkomulag verður einnig uppi á teningnum í ár.
Miðað við stöðu liðsins er ljóst að Sindramenn munu glaðir taka það sæti. Það tekur tíma fyrir bæjarfélagið að byggja aftur upp sterkt lið en slík vinna krefst þolinmæði. Liðið getur vel við unað að halda sæti sínu í deildinni og gætu því byggt ofan á það á næsta tímabili.
Styrkleikar: Eins og áður segir er það heimavöllur liðsins sem verður þeirra aðalstyrkleiki. Sindravellir hafa ávallt verið erfiðir heim að sækja og það verður engin undantekning á því í ár. Liðið er þekkt fyrir sinn sterka heimavöll og ef liðinu tekst að landa nokkrum sigrum á heimavelli er aldrei að vita nema liðið geti endað um miðja deild.
Veikleikar: Árangur liðsins á útivelli í fyrra var vægast sagt slakur en liðinu tókst einungis að krækja í eitt stig í níu leikjum. Slíkt er óásættanlegt og ef liðið ætlar að forðast fall þarf liðið að reyta fleiri stig á útivelli í sumar. Varnarleikurinn var ekki upp á marga fiska í fyrra og ljóst er að það þarf að stoppa upp í þau göt í sumar.
Þjálfari: Árni Rúnar Þorvaldsson. Árni þekkir innviðið afar vel enda fyrrum leikmaður liðsins til margra ára. Hann hefur einnig verið í stjórn félagsins og verið stoð og stytta í rekstri liðsins undanfarin ár. Reynsla hans gæti nýst liðinu vel en þjálfarareynsla hans í meistaraflokki er vissulega takmörkuð. Sumarið verður þungur róður fyrir Árna en hann veit hins vegar mætavel hvað liðið þarf að gera til að halda sér uppi enda er hann eldri en tvævetur í faginu
Lykilmenn: Halldór Steinar Kristjánsson, Jón Haukur Haraldsson og Björn Pálsson.
Komnir: Enginn.
Farnir: Matjaz Kastelic til Slóveníu, og Alfreð Elías Jóhannsson til Njarðvíkur.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Sindri 33 stig

