Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. maí 2007 08:00
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 9. sæti
Mynd: magnifc.is
Mynd: Víðir Örn Jónsson
Mynd: Kristján Blöndal
Mynd: magnifc.is
Mynd: Víðir Örn Jónsson
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í níunda sætinu í þessari spá voru Magni Grenivík sem fengu 37 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Magna.


Magni
Búningar: Svört og hvít treyja, svartar buxur, svartir og rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.magnifc.is

Loksins! Magni frá Grenivík tryggði sér á síðustu leiktíð rétt til að leika í 2. deild á komandi leiktíð. Eftir þessu hafa menn beðið á Grenvík í langan tíma en áhuginn fyrir liðinu er gífurlegur í bæjarfélaginu. Eftir nokkur mögur ár þar sem liðinu mistókst að tryggja sér sæti í 2. deild er liðið nú loksins komið þar sem heimamenn telja að félagið eigi heima. Frá árinu 2002 hefur liðinu einungis mistekist einu sinni að komast í úrslitakeppnina en það var árið 2005.

Til þess að ljúka verkinu og koma liðinu upp í 2. deild var fenginn Atli Rúnarsson, fyrrum markvörður Þórs til margra ára. Og undir hans stjórn tókst liðinu að tryggja sér sæti í 2. deild og það gerðu þeir á heimavelli. 2-2 jafntefli heima dugði liðinu til að leggja ÍH að velli, samanlagt 4-3. Vonbrigði áranna á undan hurfu eins og dögg fyrir sólu í Grenivík þann 5. september 2006 þegar 2. deildarsætið var loks í höfn. Það er ekki hægt að segja annað en að 2. deildarsætið hafið verið verðskuldað. Liðið lagði öflugt lið Hvatar að velli á dramatískan hátt í 8-liða úrslitum og ÍH var svo engin hindrun í vegi þeirra í undanúrslitum.

En núna eru nýjir tímar framundan og nýtt tímabil er að hefjast. Árangurinn í fyrra telur ekkert í ár og ljóst er að leikmenn Magna þurfa að undirbúa sig undir erfitt en jafnfram skemmtilegt sumar. Liðið varð fyrir blóðtöku þegar Ásgeir Örn Jóhannsson hvarf á braut en hann skoraði 10 mörk í 15 leikjum fyrir liðið á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í góðu gengi liðsins. Sökum vinnu sinnar sem lögfræðingur þá mun Ásgeir að öllum líkindum búa á Blönduósi og mun hann því leika með Hvöt í sumar.

Magnamenn hafa fengið til sín nokkra leikmenn og meðal annars hefur Stefán Ingi Gunnarsson gengið í raðið liðsins frá Leikni Reykjavík. Það er stutt í mót en það eru ekki blikur á lofti að liðið muni styrkja sig fyrir komandi átök. En til þess að liðið lendi ekki í miklum vandræðum í sumar þarf ansi margt að ganga upp hjá nýliðunum.

Styrkleikar: Það er alveg ljóst að helsti styrkur Magna verður heimavöllur liðsins. Stuðningurinn við liðið er mjög góður en talið er að 200-300 manns mæti á heimaleiki liðsins. Áhuginn í bænum og sveitunum í kring er mikill og ljóst er að spennandi sumar er framundan hjá félaginu. Liðið hefur á að skipa einum allra besta markverði deildarinnar, Atla Þór Rúnarssyni, en það mun mikið mæða á honum í sumar.

Veikleikar: Þunnskipaður hópur og varnarleikurinn eru helstu veikleikar liðsins. Árangurinn í vormótunum hefur ekkert verið til að hrópa húrra fyrir. Það er erfitt að manna öflugan 16-manna hóp í eins litlu bæjarfélagi og Grenivík er þannig að erfitt sumar bíður þeirra. En með samstöðu og samheldni er allt hægt og ætla liðsmenn Magna eflaust að blása á þær hrakspár að liðið verði í fallbaráttunni í sumar.

Þjálfari: Atli Már Rúnarsson. Atli sem var markvörður Þórs til margra ára tók við Magnamönnum fyrir síðasta tímabil og á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari kom hann liðinu upp í 2. deild. Hann leikur stórt hlutverk á milli stanganna hjá liðinu en það mun mikið mæða á honum, innan vallar sem utan.

Lykilmenn: Atli Már Rúnarsson, Ingvar Már Gíslason og Stefán Ingi Gunnarsson.


Komnir: Stefán Ingi Gunnarsson frá Leiknir R., Þorsteinn Eyfjörð Jónsson frá Fjölni, Sinisa Pavlica frá Þór, Víðir Örn Jónsson frá Gróttu, Logi Ásbjörnsson frá KA, Michael H. W. Hanssen frá HK, Jón Geir Árnason frá Dalvík, James Bóas Faulkner frá Völsungi, Gunnar Torfi Hauksson frá Hömrunum, Áskell Jónsson frá Eflingu, Eiður Arnar Pálmason frá Þór, Eiríkur Páll Aðalsteinsson frá Einherja.

Farnir: Ásgeir Örn Jóhannsson í Hvöt, Lárus Viðar Stefánsson í KFR,
Ágúst Ingi Ágústsson í Tindastól, Arnar Geir Rúnarsson í Hamrana.



Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig
Slapp