Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. maí 2007 08:01
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 8. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Guðmundur Karl
Grétar Már Sveinsson spilandi þjálfari ÍH.
Grétar Már Sveinsson spilandi þjálfari ÍH.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í áttunda sætinu í þessari spá voru ÍH sem fengu 42 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um ÍH.


ÍH
Búningar: Hvít treyja, hvítar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.ihfotbolti.net

Eftir að hafa haft yfir ágætis liði að skipa undanfarin ár þá komst lið ÍH loks upp í 2. deild á síðustu leiktíð. Liðið lagði Kára að velli í leik um hvort liðið myndi fylgja Magna og Hetti upp. ÍH minnir um margt á lið Léttis sem lék í 2. deild um nokkurra ára skeið. ÍH hefur ekki yfir neinum yngri flokkum að skipa líkt og Léttir á sínum tíma en þar víst að verða breyting á en Heiðar Austmann lét hafa eftir sér við Fótbolta.net fyrr í vetur að menn væru stórhuga hjá ÍH og hyggðust stefna á stofnun yngri flokka. En fyrsta verkefni ÍH í sumar verður að hugsa um það að festa liðið í sessi í 2. deild.

Það er ljóst að liðsins bíður erfitt verkefni á komandi sumri en tveir sterkir leikmenn hafa yfirgefið herbúðir liðsins. Fyrstan ber að nefna fyrrverandi þjálfara liðsins, Mikael Nikulásson, en hann gekk í raðir Álftaness og mun leika með þeim í 3. deildinni í sumar. Hann var meiddur lengi vel á síðustu leiktíð og lék aðeins fjóra leiki í riðlakeppninni og skoraði ekki mark í þeim fjórum leikjum. Í úrslitakeppninni skoraði hann sitt eina mark á tímabilinu, í jafnteflisleik gegn Magna í undanúrslitum. Þrátt fyrir að hafa ekki náð sér nægilega vel á strik með liðinu í fyrra er ljóst að Mikael er leikmaður sem kann að skora mörk og því gæti brotthvarf hans haft einhver áhrif á liðið.

Einn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð, Daníel Einarsson, ákvað að ganga til liðs við Fram. Daníel kom sem lánsmaður frá Haukum á síðasta tímabili og reyndist liðinu afar dýrmætur. Þrátt fyrir að leika sem miðjumaður var Daníel markahæsti leikmaður liðsins í riðlakeppninni en hann skoraði 7 mörk í 9 leikjum. Brotthvarf hans veikir liðið talsvert enda átti hann mjög gott tímabil í fyrra.

Til að fylla skörð þessarra manna hefur liðið fengið nokkuð óþekktar stærðir og spennandi verður að sjá hvernig þessir nýju leikmenn munu nýtast ÍH í baráttunni í sumar. Aðrir leikmenn sem komið hafa til liðsins eru nokkuð óþekkt andlit þannig að það verður að koma betur í ljós hvernig þeir eiga eftir að reynast liðinu.

ÍH hefur tekið framförum á síðustu árum og þær framfarir hafa skilað liðinu í 2. deild árið 2007. Hvort framfarir ÍH haldi áfram í sumar skal ósagt látið en ljóst er að liðsins bíður erfitt en krefjandi verkefni handan við hornið. Liðið tryggði sér sæti í 2. deild verðskuldað en á leið sinni lagði liðið meðal annars Gróttu sem talið var eitt allra sterkasta liðið í 3. deildinni í fyrra. Það er undir leikmönnum liðsins komið að sýna það og sanna að árangur liðsins í fyrra hafi ekki verið nein tilviljun, og ef leikmenn ná að þjappa sér saman er ljóst að liðið getur bitið frá sér og haldið sér í hæfilegri fjarlægð frá fallsvæðinu.

Styrkleikar: Það verður seint sagt að það sé auðvelt að leika gegn ÍH og það ætti að vera þeirra helsti styrkur í sumar. Leikmenn liðsins leggja sig iðulega alla fram í verkefnið og fylgir hugur yfirleitt máli á þeim bænum. Oftar en ekki er liðið mikið stemningslið og ætti það að geta hjálpað þeim í þeirri erfiðri baráttu sem framundan er í sumar.

Veikleikar: Það er ljóst að ákveðið áhugaleysi er í kringum liðið enda skyldi engan undra, félagið hefur ekki yfir yngri flokkum að skipa og stuðningsmennirnir eru ekki margir. Þetta helgast auðvitað af því að félagið er ungt en vissulega á uppleið. Umgjörðin í kringum leiki liðsins er ekki spennandi og slíkt gæti haft slæm áhrif.

Þjálfari: Grétar Már Sveinsson. Grétar hefur litla reynslu af þjálfun í meistaraflokki en hann stýrði liðinu á síðustu leiktíð ásamt Mikael Nikulássyni. Grétar hefur mikinn metnað og hefur náð góðum árangri með liðið. Ásamt því að þjálfa þá leikur hann með liðinu og er gífurlega mikilvægur fyrir liðið. Grétar þekkir knattspyrnuna út og inn og veit nákvæmlega hvað þarf til þess að liðið haldi sæti sínu í deildinni.

Lykilmenn: Grétar Már Sveinsson, Sigurður Steinsson og Birgir Rafn Birgisson.


Komnir: Viðar Guðmundsson úr Leikni, Ríkharð Óskar Guðnason úr Fylki, Már Valþórsson úr Hrunamönnum, Ingi Þór Arnarson úr Stjörnunni, Eiður Ottó Bjarnason úr Markaregni, Haukur Ársælsson úr Markaregni, Eiríkur Egilsson úr Markaregni, Árni Henry Gunnarsson úr Markaregni, Ingvar Magnússon úr Markaregni.

Farnir: Daníel Einarsson í Fram, Mikael Nikulásson í Álftanes, Björgvin Helgi Stefánsson í Álftanes, Ingólfur Stefán Finnbogason í Álftanes, Leon Einar Pétursson í Álftanes.



Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig
Slapp
banner