Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjöunda sætinu í þessari spá voru KS/Leiftur sem fengu 70 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um KS/Leiftur.
KS/Leiftur
Búningar: Hvít treyja, hvítar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.leiftur.is og http://www.siglo.is/ks
Það hefur orðið stór breyting á liði KS/Leifturs sem teflir fram töluvert breyttu liði frá því í fyrra. Marko Tanasic hætti þjálfun liðsins eftir að hafa stýrt liðinu í fyrra en hann þjálfaði KS fyrir það og vann meðal annars 2. deildina árið 2004. Við starfi hans tekur maður sem er staðarháttum kunnugur en það er Ragnar Hauksson. Hann þarfnast vart kynningar en hann hefur verið þeirra besti maður undanfarin ár. Ragnar er reynslulítill þjálfari en honum er annt um liðið og ætlar sér eflaust stóra hluti í sumar.
Liðið hefur misst nokkra fastamenn sem hafa róið á önnur mið. Sigurbjörn Hafþórsson gekk í raðir Keflavíkur, William Geir Þorsteinsson hélt austur og mun leika með Fjarðabyggð á komandi sumri, Hjalti Þór Hauksson ákvað að ganga í raðir KA og sömu sögu er að segja af Inga Freyr Hilmarssyni. Síðast en ekki síst missti liðið einn af sínum allra mikilvægustu leikmönnum, Stefán Loga Magnússon, sem skrifaði undir samning við KR. Það er ljóst að með brotthvarfi þessara leikmanna veiktist liðið mikið. Fjórir heimamenn horfnir á braut sem er afar slæmt fyrir þetta sameinaða lið. William, Sigurbjörn, Hjalti og Stefán Logi spiluðu stórt hlutverk á síðustu leiktíð þannig að skarð þeirra verða vandfyllt.
Til að fylla skörðin sem þessir leikmenn skildu eftir sig hefur liðið fengið nokkra leikmenn. Þorvaldur Þorsteinsson hefur ákveðið að leika með liðinu í sumar en kappinn er öllum hnútum kunnugur enda lék hann með Leiftri á árum áður. Til gamans má geta að Þorvaldur hefur afrekað það að hafa leikið í öllum deildum íslenskrar knattspyrnu. Eftir að hafa misst Stefán Loga þá fékk liðið Þorvald til að leysa hann af hólmi og er það mikill styrkur fyrir liðið enda Þorvaldur mjög reyndar og öflugur markvörður.
Guðjón Þór Ólafsson gekk í raðið liðsins nú í apríl mánuði frá HK. Guðjón er reynslulítill leikmaður enda hefur hann ekki leikið leik í Íslandsmóti í meistaraflokki. Hann er hins vegar staðráðinn í að öðlast reynslu og nýta tækifærið fyrir norðan. KS/Leiftur samdi við ungverskan leikmann, Ferenc Berec, sem kom til reynslu hjá Víkingi Reykjavík. Þeir sáu ekki not fyrir leikmanninn og voru forráðarmenn KS/Leifturs ekki lengi að klófesta kappann. Hann mun án efa styrkja liðið mikið.
Styrkleikar: Það er alveg ljóst að styrkleiki liðsins er sá að liðið hefur reynslubolta innan sinna raða og heimamenn sem fórna sér fyrir málstaðinn. Það er mikill styrkleiki að hafa menn sem þekkja leikinn út og inn og er annt um liðið. Undanfarin ár hefur sóknarleikur liðsins verið sterkur með Ragnar Hauksson innanborðs og finni þeir öflugan mann með honum er ljóst að sóknarlínan verður ekki óárennileg. Heimavöllur liðsins hefur yfirleitt verið talin mjög sterkur og t.a.m. fékk KS 25 stig af 27 mögulegum árið 2004 þegar liðið vann 2. deildina. En fyrsta árið undir sameiginlegum merkjum var ekki gæfuríkt á heimavelli því liðið fékk aðeins 8 stig af 27 mögulegum. Slíkt er óásættanlegt og ef liðið ætlar sér betri árangur í sumar er ljóst að liðið þarf að hala fleiri stig inn á heimavelli.
Veikleikar: Það er ljóst að veikleikar liðsins í fyrra voru þeir að liðið fékk of mörg mörk á sig og einnig gekk liðinu illa á útivelli. Liðið fékk á sig 34 mörk á síðustu leiktíð sem er alltof mikið ætli liðið sér að gera tilkall til sætis í efri hluta deildarinnar. Stigin á útivelli þurfa að vera fleiri í sumar en liðið fékk 8 stig af 27 mögulegum í fyrra og ljóst er að liðið þarf að reyta fleiri stig í sumar á ferðum sínum um landið.
Þjálfari: Ragnar Hauksson. Ragnar sem var lykilmaður í liði KS/Leifturs í fyrra og þar áður í liði KS mun í ár þjálfa liðið í fyrsta sinn. Ragnar sem er sterkur framherji þreytir þar frumraun sína sem meistaraflokksþjálfari en hann þekkir liðið vel frá fyrri árum og það mun hjálpa honum.
Lykilmenn: Ragnar Hauksson, Forizs Sandor og Ferenc Beres.
Komnir: Þorvaldur Þorsteinsson tekur skóna af hillunni, Guðjón Þór Ólafsson frá HK, Ferenc Beres frá Ungverjalandi, Árni Einar Adolfsson frá Tindastóli, Jóhann Már Sigurbjörnsson frá Neista Hofsósi, Ægir Svanholt Reynisson frá Vinum.
Farnir: Stefán Logi Magnússon í KR, Sigurbjörn Hafþórsson í Keflavík, William Geir Þorsteinsson í Fjarðabyggð, Hjalti Már Hauksson í KA, Ingi Freyr Hilmarsson í KA, Orri Rúnarsson í Þrótt, Kristófer Beck Elísson í Dalvík/Reyni.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig



