Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjötta sætinu í þessari spá var Völsungur frá Húsavík sem fékk 85 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Völsung.
Völsungur
Búningar: Græn treyja, hvítar buxur, græniir sokkar.
Heimasíða: http://www.volsungur.is og http://www.123.is/volsungur
Það er ljóst að það er ákveðin uppbyggingarstarfsemi í gangi á Húsavík. Leikmenn liðsins eru flestir ungir að árum og eiga sannarlega framtíðina fyrir sér. Þolinmæði er dyggð segir einhversstaðar og það er ljóst að þjálfari, leikmenn og stjórn liðsins þurfa að sýna þolinmæði næstu 2-3 ár. Hópurinn er efnilegur og ljóst er að félagið þarf að hugsa til lengri tíma og hlúa vel að þeim hópi sem er nú hjá félaginu. Leikmenn liðsins hafa sýnt það að þeir geta bitið hressilega frá sér en ljóst er að sumarið verður lærdómsríkt fyrir þá.
Tveir af máttarstólpum liðsins sem gengu í raðir félagsins síðastliðið sumar hafa yfirgefið félagið á nýjan leik, en þeir Andri Valur Ívarsson og Sigþór Júlíusson hjálpuðu liðinu mikið á síðustu leiktíð. Núna verða ungu leikmennirnir að axla ábyrgð og taka í sameiningu skref fram á við sem lið. Það mun mikið mæða á fyrirliðanum, Guðmundi Óla Steingrímssyni, en hann hefur oftar en ekki dregið vagninn hjá liðinu enda hörkuleikmaður. Nú þarf hann að stíga upp og axla ábyrgð sem fyrirliði en hann er einungis 21 árs gamall. Liðið endaði í 6. sæti deildarinnar og sigldi lygnan sjó á síðustu leiktíð og stefnan hlýtur að vera tekin upp á við hjá liðinu og gera betur í ár.
Liðið hefur fengið nokkra leikmenn fyrir komandi átök í sumar og ber þá helst að nefna tvímenningana, Rodney Perry og Uche Asika, en þeir félagar léku báðir hér á landi í fyrra, Uche með Þrótti í 1. deildinn og Rodney Perry með Víkingi í Landsbankadeildinni. Perry hefur leikið hér síðastaliðin tvö ár en hann kom fyrst hingað til lands og lék með Haukum. Uche kom með Perry hingað til lands í fyrra og reyndi fyrir sér hjá nokkrum liðum áður en Atli Eðvaldsson ákvað að semja við kappann.
Núna eru þeir sameinaðir og hafa eflaust í hyggju að hjálpa hinu unga liði Völsungs að berjast í efri hluta deildarinnar. Perry er afar hraður og á hann eflaust eftir að nýtast liðinu afar vel í sumar. Hann lék ekki stórt hlutverk með Víkingum á síðustu leiktíð en þegar hann fékk loks tækifærið þótti hann standa sig með ágætum. Uche lék svipað hlutverk hjá Þrótti en hann var sjaldnast byrjunarmaður hjá liðinu í 1. deildinni á síðustu leiktíð. Aðrir leikmenn sem komið hafa til liðsins eru óskrifað blað en þó hefur Jón Indriðason varið mark liðsins á undirbúningstímabilinu en hann kemur frá fyrrum dótturfélagi Völsungs, Boltafélagi Húsavíkur.
Styrkleikar: Samheldnin í liði þeirra Húsvíkinga ætti að vera þeirra sterkasta vopn í sumar. Liðið hefur á að skipa ungum og ferskum strákum sem vilja ólmir sanna sig í efri hluta deildarinnar. Stærstur hluti liðsins er við nám fyrir norðan þannig að þjálfari liðsins, Róbert Skarphéðinsson, hefur haft yfir stórum hópi leikmanna að ráða í allan vetur og munar um minna. Liðið er nánast óbreytt frá því í fyrra og því er ljóst að það er óneitanlega styrkur að leikmenn liðsins hafa leikið mikið saman og þekkja hvorn annan, út og inn.
Veikleikar: Árangur liðsins á heimavelli í fyrra hlýtur að teljast vonbrigði. Liðið hlaut aðeins 11 stig af 27 mögulegum sem er langt frá því að vera ásættanlegt ætli liðið að blanda sér í efri hluta deildarinnar. Það hefur iðulega verið talið erfitt að heimsækja Húsavík en í fyrra var þetta sterka vígi þeirra algjör kettlingagryfja. Þessu þarf að breyta og eru leikmenn eflaust staðráðnir í að breyta heimavelli sínum aftur í algjöra ljónagryfju í sumar.
Þjálfari: Róbert Ragnar Skarphéðinsson. Róbert er reynslubolti mikill en hann tók við þjálfun liðsins fyrir síðustu leiktíð eftir að Zoran Daníel Ljubicic hætti með liðið. Hann náði ágætis árangri á sinni fyrstu leiktíð og 6. sætið varð staðreynd. Hann byggir liðið upp á ungum heimamönnum og virðist ætla að byggja upp flott lið á uppöldu strákunum. Róbert veit að það tekur tíma að búa til gott lið en hann þarf að nota alla sína reynslu í sumar, innan vallar sem utan, til að liðið nái að bæta árangur sinn frá því í fyrra.
Lykilmenn: Rodney Perry, Guðmundur Óli Steingrímsson og Róbert Ragnar Skarphéðinsson.
Komnir: Rodney Perry frá Víkingi, Uche Asika frá Þrótti, Andri Freyr Arnarsson frá Fram, Björgvin Sigurðsson frá Danmörku, Jón Indriðason frá Boltafélagi Húsavíkur.
Farnir: Sigþór Júlíusson KR, Andri Valur Ívarsson (Var á láni), James Bóas Faulkner í Magna.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Völsungur 85 stig
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig



