Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu í þessari spá var Höttur sem fékk 87 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Hött.
Höttur
Búningar: Hvít treyja, svartar buxur, svartir sokkar.
Heimasíða: http://www.hottur.is og http://www.hottur.blogdrive.com
Höttur frá Egilsstöðum er nú loks komið í 2. deild eftir 11 ára útlegð. Liðið lék síðast í 2. deild árið 1996 en liðið féll þá eftir að hafa gert jafntefli í hreinum úrslitaleik við Ægi í lokaumferðinni. Liðið staldraði við í tvær leiktíðir á árunum 1995 og 1996 í 2. deild en nú er ljóst að stefnan er sett hærra. Til að stýra skútunni hefur verið fenginn reynsluboltinn Njáll Eiðsson, sem hefur verið í fríi frá þjálfun síðan hann var látinn fara frá Val árið 2004. Þar er óþarfi að kynna Njál enda hefur hann gert mjög góða hluti á sínum þjálfaraferli. Hans síðasta verk sem þjálfari var að koma Valsmönnum upp í Landsbankadeildina á nýjan leik en hann var látinn fara þrátt fyrir það. Njáll hóf þjálfaraferilinn fyrir rúmum 20 árum síðan þegar hann tók við Einherja á Vopnafirði en á sínum langa ferli hefur hann þjálfað lið eins og Val, FH, KA, Víði, ÍBV og ÍR.
Lið Hattar er nokkuð breytt frá því sem var þegar liðið vann 3. deildina með glæsibrag á síðustu leiktíð. Liðið hefur misst fimm fastamenn sem léku flesta leiki liðsins á síðustu leiktíð og munar um minna. Hallur Kristján Ásgeirsson sem skoraði 24 mörk í 19 leikjum í fyrra mun ekki leika með liðinu í ár en það er mikil blóðtaka fyrir nýliðana. Allir erlendu leikmenn liðsins sem léku í fyrra eru horfnir á braut en þeir Kristian K. Pedersen, Gorazd Mihailov og Gjosko Ilijovski léku meirihluta leikja liðsins í fyrra. Einnig er alls kostar óvíst hvað Jón Karlsson gerir en hann mun ekki leika með liðinu á þessari leiktíð.
Menn hafa ekki setið auðum höndum á Egilsstöðum til að fylla skarð þessarra leikmanna en liðið mun tefla fram fimm útlendingum í sumar. Félagið hefur samið við þrjá slóvenska leikmenn en einn af þeim, Aljosa Gluhovic, var til reynslu hjá liðinu í aprílmánuði. Hann þótti feykilega sterkur og leist Njáli Eiðssyni það vel á hann að félagið ákvað að semja við hann. Með honum koma tveir aðrir landar hans, þeir Denis Curic og Uris Hoja. Ef þeir eru í líkingu við Gluhovic er ljóst að liðið hefur heldur betur dottið í lukkupottinn.
Liðið hefur aukinheldur samið við tvo aðra erlenda leikmenn frá Írlandi og Noregi. Geir Arnar Kaspersen kemur fyrir tilstilli Ólívers Bjarka Ingvarssonar, fyrirliða Hattar, sem hefur leikið í Noregi. Og að endingu mun Francis McBearty, 18 ára gamall Íri, leika með þeim í sumar. Liðið hefur einnig endurheimt Anton Ástvaldsson sem söðlaði um á síðustu leiktíð og lék með Aftureldingu. Hann er nú kominn aftur heim og mun án efa styrkja vörn þeirra Hattarmanna til muna. Liðið hefur einnig fengið nokkra unga og efnilega stráka sem hafa fengið eldskírn á þessu undirbúningstímabili.
Lið Hattar mun án efa bíta vel frá sér í sumar enda hefur stjórn liðsins verið dugleg við að styrkja liðið nú rétt fyrir mót. Ef erlendu leikmenn liðsins reynast liðinu vel er ljóst að efri hluti deildarinnar er alls ekkert svo fjarlægur. Fyrir eru hjá liðinu nokkrir öflugir leikmenn þannig að ljóst er að Hattarliðið gæti komið verulega á óvart í sumar.
Styrkleikar: Heimavöllur liðsins, Vilhjálmsvöllur, á eftir að reynast þeim drjúgur í sumar. Liðið hefur einungis tapað 1 leik af síðustu 15 á heimavelli. Sá tapleikur kom árið 2005 þegar liðið beið lægri hlut gegn Gróttu í úrslitakeppninni. Heimavöllur liðsins gæti því orðið mikilvægur í sumar. Það er mikill styrkur fyrir liðið að hafa fengið Njál Eiðsson, en hann veit nákvæmlega hvað liðið þarf að gera til þess að blanda sér í efri hluta deildarinnar og í baráttuna um sæti í 1. deild.
Veikleikar: Það er ávallt erfitt að vera með liðið á æfingum á tveimur stöðum en við það hafa Hattarmenn þurft að búa í vetur. Einhver hluti hópsins hefur verið við æfingar í Reykjavík á meðan aðrir æfa fyrir austan. Það gæti tekið liðið einhvern tíma til að stilla sína strengi enda eru fimm erlendir leikmenn að koma til liðsins nú rétt fyrir mót. Ef það tekur strengina of langan tíma að stillast er ljóst að liðið gæti lent í eltingarleik strax í byrjun móts. Það er því mikilvægt fyrir liðið að byrja af krafti og vona að samhæfingin komi fljótt.
Þjálfari: Njáll Eiðsson. Það þarf ekki að kynna Njál neitt frekar en hann er gífurlega reyndur þjálfari. Hann stýrði liði ÍBV til 2. sætis í efstu deild karla árið 2001 og stýrði svo Val til sigurs í 1. deild karla árið 2004. Hann hefur verið í fríi frá þjálfun síðastliðin þrjú ár en mætir eflaust ferskur til leiks með lið Hattar.
Lykilmenn: Aljosa Gluhovic, Ólíver Bjarki Ingvarsson og Stefán Þór Eyjólfsson.
Komnir: Aljosa Gluhovic frá Slóveníu, Denis Curic frá Slóveníu, Uros Hojan frá Slóveníu, Geir Arne Kaspersen frá Noregi, Francis McBearty frá Írlandi, Steinar Ingi Þorsteinsson frá Huginn, Anton Ástvaldsson frá Aftureldingu, Hafliði Bjarki Magnússon frá Leikni Fáskúðsfirði.
Farnir: Halldór Skarphéðinsson í BÍ/Bolungarvík, Óttar Steinn Magnússon í Keflavík, Högni Helgason í Keflavík, Hallur Kristján Ásgeirsson verður ekki með liðinu í sumar, Kristian K. Pedersen, Gorazd Mihailov og Gjosko Ilijovski.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. Höttur 87 stig
6. Völsungur 85 stig
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig




