Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 08. maí 2007 08:00
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 4. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Ásgeir Elíasson og Sigurður Þórir Þorsteinsson.
Ásgeir Elíasson og Sigurður Þórir Þorsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Jón Örvar Arason
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fjórða sætinu í þessari spá voru ÍR-ingar sem fékk 123 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um ÍR-inga.


ÍR
Búningar: Hvít treyja, bláar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.ir-sport.is

Það var ljóst strax á haustmánuðum í fyrra að ÍR-ingar ætluðu sér stóra hluti í ár. Liðið réð Ásgeir Elíasson sem þjálfara liðsins og honum til aðstoðar verður Sigurður Þórir Þorsteinsson. Afar sterkur dúett sem getur reynst ÍR-ingum ansi drjúgur þegar uppi er staðið í haust. Annað árið í röð gefur 3. sætið 1. deildarsæti og því hefur ÍR blásið í herlúðrana og hlutverkið sem þeir fólu Ásgeiri Elíassyni var einfalt, hann á að koma liðinu upp, sama hvað það kostar. Eitt er víst að leikkerfið 3-5-2 mun ekki vera langt undan. Það kerfi hefur Ásgeir notast við síðan Ingólfur nam land og miðað við undirbúningstímabilið er ljóst að hann hefur ekki tapað trúnni á því kerfi.

Til þess að takast ætlunarverk sitt hefur Ásgeir fengið til sín nokkur ný andlit. Andlitin eru misþekkt en meðal þeirra þekktustu eru Baldin Jón Hallgrímsson en hann var fenginn nú á dögunum. Hans hlutverk er að binda vörn liðsins saman í sumar en ekki er vanþörf á því ef marka má síðustu þrjú tímabil hjá liðinu. Liðið hefur fengið á sig yfir 30 mörk síðustu þrjár leiktíðir og slíkt gengur ekki upp ef liðið ætlar sér að eiga möguleika á sæti í 1. deild að ári. Þorsteinn V. Einarsson gekk í raðir ÍR frá Breiðabliki en honum var ætlað að fylla skarð Kjartans V. Þórarinssonar, sem flutti til Hollands. Kjartan kom hins vegar aftur nú í vetur og ljóst er Þorsteinn fær mikla samkeppni frá Kjartani um markmannstöðuna í sumar. Þorsteinn hefur hins vegar sýnt það í vetur að hann er afar öflugur markvörður þannig að það er ekki ólíklegt að hann standi á milli stanganna í fyrsta leik.

Ásbjörn Jónsson kom frá Hvíta Riddaranum þar sem hann hefur leikið stórt hlutverk undanfarin ár. Hann hefur sýnt gamalkunna takta í framlínu ÍR-inga á undirbúningstímabilinu og virðist til alls líklegur. Einnig hafa þeir Róbert Óli Skúlason og Sigurjón Magnús Kevinsson gengið í raðir liðsins. Sigurjón lék með Stjörnunni á síðustu leiktíð eftir nokkur mögur ár hjá Fylki. Hann átti ágætis spretti með liði Stjörnunnar en ákvað að söðla um og ganga í raðir ÍR. Róbert hefur lítið leikið undanfarin ár en hann hefur æft með Valsmönnum í vetur. Það er ljóst að þeir munu styrkja framlínu ÍR enda ekki um auðugan garð að gresja á þeim bænum.

Í raun má segja að Ásgeir hafi verið nauðugur einn sá kostur að ná í töluverðan fjölda leikmanna enda hefur liðið misst nokkra leikmenn. Guðmundur Pétursson sem fór á láni til KR í lok júlí í fyrra gekk í raðir KR síðastliðið haust. Kristján Ari Halldórsson ákvað að ganga í raðir HK en hann hefur verið einn helsti markaskorari liðsins í 2. deildinni undanfarin ár. Ennfremur yfirgáfu varnarmennirnir Ernest Essombe og Ólafur Tryggvason liðið. Ólafur lék reyndar lítið með liðinu í fyrra en Ernest lék stórt hlutverk hjá liðinu.

Styrkleikar: Það er ljóst að reynsla og færni Ásgeirs Elíassonar er þeirra helsti styrkleiki. Hann veit nákvæmlega hvað þarf til að liðið nái markmiði sínu en hann stýrði liði Fram til sigurs í 1. deildinni á síðustu leiktíð. Liðið er vel mannað á milli stanganna enda eru þar tveir öflugir markverðir. Sóknarleikur liðsins hefur verið ágætur undanfarin ár en liðið hefur ávallt skorað mörk, 36 talsins á síðustu leiktíð sem gera tvö mörk að meðaltali í leik.

Veikleikar: Varnarleikurinn hefur verið töluvert veikur undanfarin ár en liðið hefur fengið fleiri en 30 mörk á sig undanfarin þrjú tímabil. Slíkt er óásættanlegt og sérstaklega ef liðið ætlar sér sæti í 1. deild. Mörkunum þarf að fækka ef liðið ætlar að eiga raunhæfa möguleika á efstu sætunum. Áhugaleysi í kringum liðið hefur ekki haft góð áhrif undanfarin ár. Áhorfendur eru sárafáir og stemningin á heimavelli liðsins lítil. Það kemur því lítið á óvart að heimavöllur liðsins hefur verið lítil gryfja undanfarin ár. Á síðustu leiktíð gaf heimavöllur liðsins 15 stig af 27 mögulegum og árið en árið 2005 gaf hann einungis 9 stig af 27 mögulegum. Árangur liðsins á heimavelli þarf að vera betri ætli liðið sér að gera tilkall til sætis í 1. deild.

Þjálfari: Ásgeir Elíasson. Ásgeir er svo sannarlega eldri en tvævetur í faginu en hann hefur náð góðum árangri hvert sem hann hefur farið. Hefur gert Fram að Íslandsmeisturum, náði einum besta árangri landsliðsþjálfara með íslenska landsliðið í knattspyrnu, kom Þrótti upp í Landsbankadeildina og stýrði svo liði Fram til sigurs í 1. deild karla á síðustu leiktíð. Með honum er síðan Sigurður Þórir Þorsteinsson sem er einnig þaulreyndur þjálfari og var hann einnig með Ásgeiri hjá Fram. En getur Ásgeir gert það sem öðrum hefur mistekist, en það er að koma liði ÍR upp í 1. deild á nýjan leik? Svarið við því kemur í ljós á haustmánuðum.

Lykilmenn: Helgi Örn Gylfason, Trausti Björn Ríkharðsson og Baldvin Jón Hallgrímsson.


Komnir: Ásbjörn Jónsson úr Hvíta Riddaranum, Dusko Dimitrijevic frá Afríku, Þorsteinn V. Einarsson frá Breiðabliki, Sigurjón Magnús Kevinsson frá Stjörnunni, Hörður Sturluson frá Þrótti, Bjarni Þór Scheving frá Leikni F., Baldvin Þór Hallgrímsson frá Þrótti, Róbert Óli Skúlason frá Val, Ari Gunnar Gíslason frá Þrótti, Þorvaldur Ásgeirsson Byrjaður aftur, Jón Hafsteinn Jóhannsson frá Völsungi.

Farnir: Tinni Kári Jóhannsson í ÍA, Ólafur Tryggvason í Þrótt, Kristján Ari Halldórsson í HK, Guðmundur Pétursson í KR, Ernest Essombe til Kýpur, Bogi Ragnarsson í Álftanes, Brynjar Þór Gestsson í Álftanes, Brynjólfur Bjarnason hættur.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ÍR 123 stig
5. Höttur 87 stig
6. Völsungur 85 stig
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig
Slapp
banner
banner