Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 09. maí 2007 08:00
Magnús Már Einarsson
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 3. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fjórða sætinu í þessari spá var Afturelding sem fékk 127 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Afturelding.


Afturelding
Búningar: Rauð treyja, svartar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.afturelding.is

Afturelding úr Mosfellsbæ er það lið sem oftast hefur valdið vonbrigðum á undanförnum árum í 2. deildinni. Væntingarnar til liðsins hafa verið miklar undanfarin ár en ávallt hafa þeir fallið á prófinu þegar sjálft Íslandsmótið byrjar. Núna mæta þeir fullir sjálfstrausts til leiks enda vann liðið á dögunum Lengjubikar karla eftir góðan 2-0 sigur á Fjarðabyggð. Í fyrra fór liðið í undanúrslit en beið þar lægri hlut fyrir Leikni, 1-0. Liðið þótti leika vel á undirbúningstímabilinu og virtist til alls líklegt. En þegar í tímabilið var komið fór allt í baklás og liðið byrjaði alveg herfilega og beið nokkra stóra skelli. Eftir það náði liðið sér aldrei almennilega á strik og barðist í neðri hluta mótsins lengst af.

Nú á hins vegar að blása til sóknar og til að tryggja það að liðið verði í baráttunni í efri hlutanum hefur Ólafur Ólafsson fengið til sín þó nokkur ný andlit. Liðið hefur misst tvo leikmenn frá því í fyrra, þá Beiti Ólafsson sem var á láni frá HK og Anton Ástvaldsson sem ákvað að halda í heimahagana.

Til að fylla skarð Beitis fékk Ólafur þjálfari, Christopher Mccluskey sem lék með Reyni Sandgerði á síðustu leiktíð. Þrír leikmenn hafa gengið í raðir félagsins frá Hvíta Riddaranum. Það eru þeir Rúnar Birgisson, Guðjón Frímann Þórunnarson og Magnús Einarsson sem hafa leikið stórt hlutverk með liðinu undanfarin ár. Torfi Geir Hilmarsson kemur frá Val að láni en hann kom einnig að láni á síðustu leiktíð. Önnur andlit sem hafa gengið í raðir félagsins eru Ómar Ingi Guðmundsson frá HK, Gestur Ingi Harðarson frá Fram, Gunnar Steinn Ásgeirsson og Gunnar Davíð Gunnarsson. Það er því ljóst að mikill fjöldi leikmanna hefur gengið í raðir félagsins og ætti leikmannahópurinn því að vera ansi þéttur í sumar.

Núna er einfaldlega komið að því. Annað árið í röð gefa efstu þrjú sætin sæti í 1. deild á næstu leiktíð. Slíkt verður ekki í boði endalaust og því er kominn tími til að Afturelding nái að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til liðsins. Liðið hefur á stórum hópi leikmanna að skipa og hefur liðið styrkst til muna frá því í fyrra. Það er því ekkert til fyrirstöðu að liðið nái markmiðum sínum og leiki í 1. deild á næstu leiktíð. Nú þurfa leikmenn að standa saman og stefni allir að því markmiði að gera Aftureldingu að 1. deildarfélagi á nýjan leik.

Styrkleikar: Helstu styrkleikar liðsins eru þeir að liðið er afar fljótt fram á við með Atla Heimisson fremstan í flokki. Ágætis stemning er í hópnum enda leikmenn liðsins farnir að þekkja æ betur inn á hvern annan. Það styrkir liðið að blandan í liðinu er vel samsett, leikmenn liðsins eru flestir ungir að árum með reynslubolta í bland.

Veikleikar: Árangur liðsins á heimavelli undanfarin ár hefur ekkert verið frásögu færandi. Ef liðið ætlar sér að blanda sér í baráttuna um efstu sætin þá þarf árangur liðsins á heimavelli að vera mun betri. Varnarleikur liðsins í fyrra var afar slakur og upp í þau göt þarf að stoppa. Áhugaleysi í kringum liðið hefur oftar en ekki verið þeim fjötur um fót enda mætingin á völlinn verið döpur.

Lykilmenn: Atli Heimisson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Þórarinn Máni Borgþórsson.


Komnir: Torfi Geir Hilmarsson frá Val (Í láni), Unnar Hólm Ólafsson frá KFS, Daði Már Steinsson úr Huginn, Ómar Ingi Guðmundsson úr HK, Magnús Einarsson úr Hvíta Riddaranum, Geir Rúnar Birgisson úr Hvíta Riddaranum, Gunnar Davíð Gunnarsson úr Reyni S., Guðjón Frímann Þórunnarson úr Hvíta Riddaranum, Christopher Mccluskey frá Reyni Sandgerði, Gestur Ingi Harðarson frá Fram.

Farnir: Beitir Ólafsson í HK (Var á láni), Anton Ástvaldsson í Hött.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. Afturelding 127 stig
4. ÍR 123 stig
5. Höttur 87 stig
6. Völsungur 85 stig
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig
Slapp
banner
banner