Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 10. maí 2007 09:35
Magnús Már Einarsson
Fótboltinn minn: Eiríkur Hauksson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: .
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þá er komið að liðnum fótboltinn minn þar sem þekktur einstaklingur úr þjóðfélaginu segir okkur frá fótboltaferli sínum og svarar nokkrum spurningum um fótbolta. Að þessu sinni er það enginn annar en hinn eini sanni Eiríkur Hauksson.

Eiríkur mun stíga á svið í Finnlandi í kvöld og taka þar þátt í undankeppni Eurovision en vonandi er að hann komist í aðalkeppnina sem er á laugardag.

Eiríkur er mikill fótboltaaðdáandi og þótti hann efnilegur í boltanum á sínum tíma, áður en hann lagði skóna á hilluna og lagði fyrir sig tónlistina.

Aðrir sem hafa setið fyrir svörum í "Fótboltinn minn"


Hvernig var fótboltaferill þinn? Hann var þannig að ég hélt með Fram þegar að ég var 11-12 ára gamall og þá flutti Þróttur inn í Sæviðarsund. Ég var dreginn á æfingu þangað og gerðist þar með Þróttari. Ég spilaði með Þrótti í öllum yngri flokkunum, sem sagt 5,4,3 og 2.flokki.

Ég hætti sama dag og ég var valinn í meistaraflokksliðið í einhvern æfingaleik áður en að keppnistímabiliði byrjaði. Ég var þá byrjaður að vinna það mikið í músík að ég var að spila sama kvöld og leikurinn átti að vera.

Þróttur var mjög öflugt lið í yngri flokkunum á þessum tíma og ég get grobbað mig af því að við urðum Íslandsmeistarar í öllum flokkum, 5.flokk og upp úr. Það voru margir þekktir þarna eins og Palli Ólafs sem var landsliðsmaður í handbolta og fótbolta, Siggi Sveins, Sverrir Einars sem var síðan í Fram og fleiri. Ég man að ég var að keppa við stráka eins og Pétur Ormslev og Atla Eðvalds.

Hvaða stöðu spilaðir þú? Þetta eru tvö ár í hverjum aldursflokki og þegar ég var í öðrum flokki þá var ég yfirleitt notaður sem hægri kantmaður fyrra árið en síðara árið var ég annað hvort miðframherji eða hægri innherji eins og það var kallað þegar allir spiluðu 3-2-5.

Skoraðir þú mikið? Ég var markheppinn segir fólk sem man eftir þessu. Ég var mjög sprettharður, við erum að tala um sjöunda áratuginn þegar ennþá var verið að spila 3-2-5. Fyrirmynd allra kantmanna þá var Elmar Geirsson sem spilaði með Fram en þá var sagt: "Kýlið hann upp kantinn, Elmar stingur þá alla af." Boltinn var spilaður mikið þannig, kantarnir voru mikið notaðir.

Fylgist þú ennþá með fótboltanum í dag? Já ég geri það. Ég fæ allar fréttir þegar að íslenski boltinn er kominn í gang, þá er ég með tvo náunga hérna heima sem senda mér sms með öllum úrslitum og fleiru. Ég fylgist auðvitað mikið með Þrótturum og er að vonast til að þeir nái að rífa sig upp.

Þetta er síðan eins og hjá flestum, maður fylgist með enska boltanum. Ég er reyndar í svolítið slæmum málum þar núna því ég er Leedsari. Það var fyrsta liðið sem ég byrjaði að halda með, ég held að það hafi verið 1969 sem ég byrjaði að fylgjast með. Þá voru þeir eitt af stórveldunum með Billy Bremner og alla þessa gömlu kalla.

Fótboltinn er þannig fyrir mig að þú skiptir ekki um lið. Þú getur skipt um kærustu en þú skiptir ekki um fótboltalið þannig að ég verð Leedsari fram í rauðan dauðann.

Hver er uppáhaldsfótboltamaðurinn þinn í heiminum? Ég er að opna augun fyrir honum Ronaldo í United. Hann er að breytast úr því manni sem fannst hann vera, vælukjói og leikari í að verða alveg þrusugóður leikmaður.

Hann er ennþá bara 22 ára og það verður mjög gaman að fylgjast með honum. Síðan eru snillingar eins og Ronaldinho sem er alltaf gaman að fylgjast með. Hann hefur reyndar verði mjög misjafn á þessu tímabili en þegar hann nær sér á strik er hann að gera hluti sem fáir aðrir leika eftir.

Hvenar fórst þú síðast á völlinn? Ég hefði farið síðast á völlinn á mánudaginn, þá byrjaði norska deildin en þá var ég leiðinni hingað þannig að ég missti af þeim leik (Viðtalið er tekið á Íslandi í Apríl). Ég hef ekki farið á völlinn síðan að keppnistímabilinu lauk á Noregi. Síðasti leikurinn sem ég fór á var úrslitaleikurinn í bikarnum í Noregi en þá urðu mínir menn í Fredrikstad bikarmeistarar.

Ferðu á marga leiki með Fredrikstad?
Ég fer á bókstaflega alla leiki sem ég kemst á en ég er stundum á ferðalögum vegna spilamennsku. Ég ætla pottþétt á völlinn á laugardaginn þegar að fyrsti heimaleikurinn er (Viðtalið er tekið í apríl).

Áttu einhverja skemmtilega sögu/r af fótboltaferli þínum? Sem dæmi má nefna að Siggi Sveins var mikill húmoristi og ærslabelgur. Hann var ekki mikill snillingur í knattspyrnu, allavega ekki neitt á við það sem hann var í handboltanum. Hann var meira í boltanum á sumrin til að halda sér í formi.

Ég man að við spiluðum eitt sinn leik með Þrótti og unnum 6-1. Ég skoraði fimm mörk og Siggi eitt. Hann sagði við alla eftir leikinn: "Þetta var hörkuleikur, við unnum 6-1 og ég og Eiki skoruðum öll mörkin."
Slapp
banner