Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í öðru sætinu í þessari spá voru Selfyssingar sem fengu 127 stig af 162 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Selfyssinga.
Selfoss
Búningar: Vínrauð treyja, hvítar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.umfs.is
Útlegð Selfyssinga hefur verið löng frá 1. deild karla en liðið lék þar síðast fyrir 13 árum síðan. Á undanförnum árum hefur markið verið sett hátt en án árangurs. Ávallt hefur liðið brotnað á ögurstundu og ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar hafa verið til liðsins. Á síðustu leiktíð voru miklar vonir bundnar við sæti í 1. deild, en á lokasprettinum gaf liðið eftir og tapaði tveimur mikilvægum leikjum, gegn Njarðvík og Reyni á útivelli og þar með var draumuinn úti.
Starfið í kringum félagið er afar gott og stjórn liðsins hefur tekist að byggja upp góða umgjörð í kringum liðið. Nú er komið að leikmönnum að endurgjalda stjórninni þann stuðning sem hún hefur sýnt undanfarin ár. Stjórn liðsins hefur ekki setið auðum höndum á Suðurlandinu í vetur og þeirra fyrsta verk var að klófesta Sævar Þór Gíslason frá Fylki. Sævar sem er uppalinn hjá félaginu hefur verið orðaður við liðið undanfarin tvö ár en loksins tókst liðinu að sannfæra hann um að leika með liðinu. Ingólfur Þórarinsson hefur einnig gengið í raðir félagsins frá Fram og þar með hefur stjórnin krækt í tvo uppalda leikmenn og það feykisterka.
Njörður Steinarsson mun einnig leika með liðinu í sumar en hann lék með Árborg á síðustu leiktíð. Liðið varð hins vegar fyrir miklu áfalli á dögunum þegar í ljós kom að Ingþór Guðmundsson mun ekki leika með liðinu í sumar, en hann sleit krossband fyrir skemmstu. Það þarf ekki að taka fram hve mikið áfall þetta er fyrir liðið enda Ingþór verið fastamaður hjá þeim undanfarin ár.
Selfoss virðist koma nokkuð vel undirbúið til leiks. Liðið vann sinn riðil í Lengjubikarnum án þess að tapa leik. Í undanúrslitum tapaði liðið svo fyrir Fjarðabyggð. En hvað þarf Selfoss að gera svo liðið nái loks markmiðum sínum og leiki í 1. deild eftir 13 ára útlegð? Í fyrra var það heimavöllur liðsins sem gerði útslagið. Aðeins þrír sigurleikir á heimavelli og 13 stig er eitthvað sem Selfyssingar geta ekki sætt sig við. Liðið náði fleiri stigum á útivelli og ljóst er að heimavöllur liðsins þarf að gefa meira af sér. Ef slíkt gerist er ljóst að Selfoss gæti loksins leikið í 1. deild á næstu leiktíð.
Styrkleikar: Liðið er afar öflugt fram á við með Sævar Þór Gíslason fremstan í flokki. Mikilvægt er að hann haldist heill þar sem Ingþór Guðmundsson mun ekkert leika með liðinu í sumar. Stemningin í kringum liðið er góð og það mun hjálpa liðinu í sumar. Leikmenn liðsins þekkja hvern annan vel og hver veit nema árið 2007 verði ár Selfyssinga.
Veikleikar: Undanfarin ár hefur heimavöllur liðsins ekki gefið nægilega vel af sér en slíkt er algjört lykilatriði ætli liðið sér eitt af þremur efstu sætunum. Leikmannahópur liðsins er nokkuð þunnur og má lítið út af bregða. Meiðsli hjá liðinu gætu sett strik í reikninginn eins og þau hafa nú þegar gert.
Lykilmenn: Sævar Þór Gíslason, Ingólfur Þórarinsson og Arilíus Marteinsson
Þjálfari: Einar Jónsson. Þjálfari af gamla skólanum og harður í horn að taka. Hann þekkir innviðið vel á Selfossi enda heimamaður fram í fingurgóma. Hann þekkir leikmannahópinn vel sem er mikill kostur. Hann á þann draum heitast að koma Selfossi aftur í 1. deild og því þarf hann að nota alla sína reynslu í sumar því baráttan verður hörð um efstu sætin.
Komnir: Sævar Þór Gíslason frá Fylki, Ingólfur Þórarinsson frá Fram, Njörður Steinarsson úr Árborg, Símon Símonarson frá KA.
Farnir: Steingrímur Jóhannesson í KFS, Þorkell Máni Birgisson til Noregs, Liam Manning til Englands.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. Selfoss 141 stig
3. Afturelding 127 stig
4. ÍR 123 stig
5. Höttur 87 stig
6. Völsungur 85 stig
7. KS/Leiftur 70 stig
8. ÍH 42 stig
9. Magni 37 stig
10. Sindri 33 stig




