Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 12. maí 2007 19:45
Tómas Þór Þórðarson
Umfjöllun: FH sigraði baráttuglaða Skagamenn
ÍA 2 - 3 FH
Daði Lárusson markvörður FH horfir á eftir boltanum framhjá markinu en Andri Júlíusson liggur eftir.
Daði Lárusson markvörður FH horfir á eftir boltanum framhjá markinu en Andri Júlíusson liggur eftir.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Matthías Guðmundsson átti frábæran leik í liði FH en þetta var hans fyrsti deildarleikur fyrir félagið.  Guðjón Heiðar Sveinsson er hér til varnar en hann kom sterkur inn í liðið eftir að hafa lítið spilað á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla.
Matthías Guðmundsson átti frábæran leik í liði FH en þetta var hans fyrsti deildarleikur fyrir félagið. Guðjón Heiðar Sveinsson er hér til varnar en hann kom sterkur inn í liðið eftir að hafa lítið spilað á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir þjálfuðu ÍA á síðari hluta síðasta tímabils en léku sinn fyrsta deildarleik fyrir FH í dag. Hér er mynd af þeim í leiknum en hægra megin við þá má sjá Bjarna Guðjónsson sem skoraði fyrra mark ÍA.
Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir þjálfuðu ÍA á síðari hluta síðasta tímabils en léku sinn fyrsta deildarleik fyrir FH í dag. Hér er mynd af þeim í leiknum en hægra megin við þá má sjá Bjarna Guðjónsson sem skoraði fyrra mark ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
0-1 Tryggvi Guðmundsson (Víti) (20)
0-2 Arnar Bergmann Gunnlaugsson (30)
1-2 Bjarni Guðjónsson (Víti) (44)
1-3 Matthías Guðmundsson (51)
2-3 Þórður Guðjónsson (58)
Rautt spjald: Árni Thor Guðmundsson (ÍA) (24)

Meistarar FH byrjuðu titilvörn sína með sigri í dag þegar þeir lögðu Skagamenn á Skaganum í fjörugum opnunarleik Íslandsmótsins. ÍA voru einum færri mest allan leikinn eftir að hafa misst mann út af með rautt spjald.

FH með Skagatvíburana Arnar- og Bjarka Gunnlaugssyni báða í byrjunarliðinu byrjuðu betur og skoraði Tryggvi Guðmundsson strax á 10. mínútu leiksins en markið réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

Hafnfirðingar réðu lögum og lofum í upphafi leiks og uppskáru vítaspyrnu á 20. mínútu þegar Árni Thor Guðmundsson varnarmaðurinn sterki beitti hendinni til að stöðva skot FH-inga að marki. Á punktinn fór Tryggvi Guðmundsson sem skoraði auðveldlega fram hjá Páli Gísla Jónssyni í markinu.

Það syrti svo enn í álinn hjá ÍA á 24. mínútu þegar Árni Thor sem hafði fengið gula spjaldið fyrir hendina fyrr í leiknum braut viljandi á Matthíasi Guðmundssyni sem var kominn á fljúgandi ferð að marki. Jóhannes Valgeirsson mjög góður dómari leiksins gaf Árna réttilega sitt annað gula spjald og þar með það rauða.

Það bætti svo ekki úr skák fyrir ÍA þegar meistararnir bættu við öðru marki á 30. mínútu. Páll Gísli varði langskot Tommy Nielsen beint fyrir framan fætur Arnars Gunnlaugssonar sem gat ekki annað gert en að setja boltann í tómt markið.

Skagamenn fengu þó smá líflínu rétt fyrir lok hálfleiksins þegar Sverrir Garðarsson braut á Jóni Vilhelm Ákasyni inn í teig og dæmt var víti. Bjarni Guðjónsson fór á punktinn og sendi Daða Lárusson vítabana í rangt horn.

Skagamenn byrjuðu betur síðari hálfleik og eftir aðeins fjórar mínútur átti Þórður Guðjónsson hörkuskot, viðstöðulaust fyrir utan teig sem Daði Þurfti að hafa sig allan við að verja í horn.

Það voru þó FH sem skoruðu tveimur mínútum eftir það og var þar annar nýr liðsmaður Hafnfirðinga að verki. Tryggvi Guðmundsson fékk boltann úti á kanti vinstra meginn og átti fullkomna fyrirgjöf inn á markteig þar sem var mættur Matthías Guðmundsson sem skallaði boltann í netið.

Leikmenn ÍA gerðu allt annað en að gefast upp í þessari stöðu og minnkuðu muninn á 58. mínútu. Þórður Guðjónsson elti þá langa fyrirgjöf inn í teiginn og skaut viðstöðulaust bananabolta yfir Daða í markinu og fór boltinn í slánna, stöngina, slánna og út en í millitíðinni fór knötturin yfir línuna og dæmt var mark.

Heimamenn héldu áfram að pressa og sendu langa bolta með vindinum inn í teig FH-inga og voru nálægt því að skora eða réttara sagt var varamaður FH, Matthías Vilhjálmsson ekki langt frá því að skalla boltann í sitt eigið net á 80. mínútu en til lukku fyrir hann fór boltinn í horn.

Þar við sat og sigruðu FH því opnunarleikinn á Íslandsmótinu líkt og í fyrra en það verður að hrósa ÍA mikið fyrir frammistöðu sína einum færri í 76 mínútur.




ÍA: Páll Gísli Jónsson, Ellert Jón Björnsson, Árni Thor Guðmundsson, Heimir Einarsson, Guðjón Heiðar Sveinsson (Kári Steinn Reynisson 72); Dean Martin (Andri Júlíusson 46), Jón Vilhelm Ákason, Helgi Pétur Magnússon, Bjarni Guðjónsson, Þórður Guðjónsson, Björn Bergmann Sigurðarson.
Ónotaðir varamenn: Skarphéðinn Magnússon, Arnar Már Guðjónsson, Ragnar Leóson, Guðmundur Böðvar Guðjónsson, Gísli Freyr Brynjarsson.

FH: Daði Lárusson, Guðmundur Sævarsson, Sverrir Garðarsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason; Davíð Þór Viðarsson, Sigurvin Ólafsson, Bjarki Bergmann Gunnlaugsson (Dennis Siim 86); Matthías Guðmundsson (Matthías Vilhjálmsson 79), Arnar Bergmann Gunnlaugsson (Atli Guðnason 70), Tryggvi Guðmundsson.
Ónotaðir varamenn: Róbert Örn Óskarsson, Ólafur Páll Snorrason, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Allan Dyring.

Tölfræði:
Skot: ÍA 6 (3 á markið), FH 11 (7 á markið)
Horn: ÍA 5, FH 7
Rangstaða: ÍA 0, FH 8

Maður Leiksins: Matthías Guðmundsson (FH)
Dómari: Jóhannes Valgeirsson. Frábær
Aðstæður: Völlurinn frábær. Sól en mikið rok.

Slapp
banner
banner
banner