HK 2 - 1 Fram
1-0 Jón Þorgrímur Stefánsson
2-0 Rúnar Páll Sigmundsson
2-1 Jónas Grani Garðarsson
2-0 Rúnar Páll Sigmundsson
2-1 Jónas Grani Garðarsson
Það var mikil eftirvænting fyrir leik HK og Fram á Kópavogsvelli í dag. Leikurinn var sérlega mikilvægur fyrir bæði lið en báðum liðum hefur verið spáð erfiðu sumri enda nýliðar í deildinni. Allar aðstæður voru til fyrirmyndar, veðrið hefði varla geta verið betra og logn. Gunnar Guðmundsson, þjálfari HK, ákvað að gefa tveimur strákum á sautjánda aldursári tækifæri í byrjunarliði HK en þetta voru þeir Hólmar Örn Eyjólfsson og Aaron Palomares.
HK ingar byrjuðu leikinn af krafti og pressuðu stíft á Framara sem urðu fyrir áfalli strax á 8.mínútu þegar Eggert Stefánsson var borinn meiddur af velli. Framarar spörkuðu boltanum strax til baka á Hannes Halldórsson í markinu sem missti boltann frá sér og Þórður Birgisson sóknarmaður HK náði af honum boltanum, boltinn hrökk inn í vítateig Framara þar sem Jón Þorgrímur Stefánsson kom og skoraði í autt mark Framara.
Sóknarleikur Framara var ekki burðugur og áttu Framarar sitt fyrsta skot að marki ekki fyrr en á 24.mínútu þegar aukaspyrna Patrik Redo fór beint á Gunnleif í markinu. HK-ingar fengu svo ágætis tækifæri á 31.mínútu þegar Jón Þorgrímur sendi góðan bolta inn í vítateig Framara, þar sem Aaron Palomares kom á ferðinni en skot hans fór beint á Hannes Halldórsson í marki Fram.
Framarar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik en náðu ekki að skapa sér nein hættuleg færi en annars var síðari hálfleikurinn lengi vel tíðindalaus og ekkert markvert gerðist fyrr en á 73.mínútu þegar Hjálmar Þórarinsson fékk boltann inn í miðjum vítateig HK en varnarmenn náðu að komast fyrir skot hans og hreinsa. Á 75.mínútu áttu Framarar svo ágætis sókn sem endaði með góðu skoti Alexander Steen sem Gunnleifur varði vel í horn.
Á 77.mínútu náðu hins vegar HK ingar góðri sókn. Almir Cosic fékk góða sendingu á hægri kanntinum, hann sendi boltan fyrir þar sem Framarar skölluðu boltann útúr vítateignum, þar var Rúnar Páll Sigmundsson mættur og tók boltann viðstöðulaust með vinstri fæti og boltinn söng í netinu hægra megin. Sannarlega glæsilegt mark hjá HK
Framarar voru hins vegar ekki nema rétt rúma mínútu að minnka muninn. Óðinn Árnason flikkaði boltanum áfram á Jónas Grana Garðasson sem potaði boltanum innfyrir marklínuna. Það mátti því búast við æsispennandi lokamínútum. Á 82.mínútu fékk Jónas Grani svo dauðafæri til að jafna leikinn en hann var of lengi að átta sig og skot hans fór framhjá.
Framarar reyndu að sækja eftir þetta á meðan HK ingar reyndu að halda fengnum hlut sem og þeir gerðu og því verðskuldaður 2-1 sigur HK-inga staðreynd. Framarar áttu sérlega slakan dag og var helst Óðinn Árnason og Kristján Hauksson sem voru þeirra bestu menn en hjá HK voru Aaron Palomares, Þórður Birgisson og Hólmar Örn Eyjólfsson góðir.
HK: Gunnleifur Gunnleifsson – Stefán Eggertsson, Finnbogi Llorens, Ásgrímur Albertsson, Davíð Magnússon – Jón Þorgrímur Stefánsson(Calum Bett 82), Finnur Ólafsson (Almir Cosic 69), Hólmar Örn Eyjólfsson, Rúnar Páll Sigmundsson, Aaron Palomares – Þórður Birgisson(Eyþór Guðnason 87)
Ónotaðir varamenn: Stefán Tandri Halldórsson, Þorlákur Hilmarsson, Ólafur V. Júlíusson, Bjarki Már Sigvaldason
Fram: Hannes Halldórsson – Óðinn Árnason, Reynir Leósson, Eggert Stefánsson (Kristján Hauksson 8), Daði Guðmundsson, - Patrik Redo (Theodór Óskarsson 46), Ingvar Ólason, Alexander Steen, Igor Pesic, Jónas Grani Garðarsson – Hjálmar Þórarinsson (Ívar Björnsson 74)
Ónotaðir varamenn: Gunnar Líndal, Andri Karvelsson, Daníel Einarsson, Jón Orri Einarsson.
Skot: HK 10 - 9 Fram
Á mark: HK 5 - 6 Fram
Aukaspyrnur: HK 15 - 16 Fram
Horn: HK 3 - 5 Fram
Rangstöður: HK 2 - 7 Fram
Maður leiksins: Þórður Birgisson, HK
Dómari : Magnús Þórisson átti mjög góðan dag
Áhorfendur 802




