Þá er komið að liðnum fótboltinn minn þar sem þekktur einstaklingur úr þjóðfélaginu segir okkur frá fótboltaferli sínum og svarar nokkrum spurningum um fótbolta. Að þessu sinni er það veðurfræðingurinn geðþekki Sigurður Þ. Ragnarsson sem situr fyrir svörum.
Sigurður eða Siggi Stormur eins og hann er oft kallaður var lítið í boltanum á sínum yngri árum en hann fylgist vel með í dag.
Aðrir sem hafa setið fyrir svörum í "Fótboltinn minn"
Hvernig var fótboltaferill þinn? Fótboltaferillinn minn var ekki merkilegur í sjálfu sér. Ég hef aldrei getað neitt í fótbolta og þetta snerist meira um að við strákarnir værum að leika okkur í fótbolta.
Ég var reyndar í Haukum af því að ég átti heima á því svæði í Hafnarfirði en ég náði aldrei að spila neitt með þeim, ég æfði raunverulega ekki fótbolta en ég æfði handbolta.
Í seinni tíð fór ég að halda með FH og það gerir stór hluti minnar ættar og fjölskyldu. Ég fylgist mjög náið með FH-ingunum og þykir gaman að fylgjast með þeirra leik en ég sjálfur er ekki mikill fótboltamaður, það er ljóst.
Þú fylgist vel með boltanum í dag? Já ég fylgist ágætlega með. Ég á fjórtán ára strák sem hefur gríðarlegan áhuga á fótbolta og við erum saman í þessu.
Fylgist þú líka með boltanum erlendis? Já ég er svolítil alæta hvað það varðar. Mér finnst skemmtilegast að fylgjast með spænska boltanum en svo er náttúrulega enski boltinn líka. Það eru fyrst og fremst þessir og kannski ítalski boltinn líka.
Hver eru þín uppáhaldslið erlendis? Ég myndi segja að í spænska boltanum er það Barcelona, ég er nokkuð hrifinn af þeim. Það er efnilegt lið og tæknilega gott, ég er mjög hrifinn af þeim.
Í enska boltanum hefur verið svolítið flökkt á mér, ég er ekki algjör United maður, Liverpool maður eða eitthvað slíkt. Ég hélt alltaf með Everton í gamla daga og það blundar alltaf í mér. Það er alltaf stutt í það þó að þeim gangi kannski ekki alltaf sem best.
Hver er uppáhaldsfótboltamaðurinn þinn í heiminum? Það eru margir mjög flottir og ég get eiginlega ekki gert upp á milli allra. Ég vil eiginlega ekki nefna nein nöfn því það er enginn einn, það eru margir góðir.
Hvenar fórst þú síðast á völlinn? Ég hef ekkert farið á þessari leiktíð í íslenska boltanum en ég fór á leiki með FH í fyrra.
Áttu einhverja skemmtilega sögu/r af fótboltaferli þínum? Það er engin sérstök uppákoma, mér finnst alltaf gaman að fara á leiki og taka þátt í stemmingunni sem þar er, finna skriðþungann og kraftinn.
Þó að það eigi ekki við í dag þá var gaman einu sinni þegar að FH og Haukar mættust á sautjánda júní til hátíðarbrigða. Þá voru fyrst og fremst tvö lið í Hafnarfirði. Það var oft gaman að fylgjast með þeim leikjum þegar allt varð vitlaust og bestu vinir urðu óvinir í stúkunni. Það var mikill rígur á milli.




