Keflavík 1-0 Fylkir
1-0 Símun Samuelsen (61)
1-0 Símun Samuelsen (61)
Keflavík tók á móti Fylkismönnum í þriðja leik áttundu umferðar í kvöld. Heimamenn hafa farið vel af stað í deildinni og eru með fjórtán stig í öðru sæti en Fylkir eru með ellefu stig í fimmta sæti. Þeir gátu hins vegar farið upp að hlið Keflvíkinga með sigri í kvöld.
Smelltu hér til að sjá fleiri myndir úr leiknum í kvöld á vef Víkurfrétta
Sænska varnartröllið Kenneth Gustafsson var ekki með þeim bláklæddu í leiknum vegna meiðsla en hinum megin voru þeir Hrafnkell Helgason, Kjartan Ágúst Breiðdal og Þórir Hannesson ekki með Fylkismönnum sem fyrr vegna meiðsla.
Leikurinn fór frekar rólega af stað þar sem baráttann var í fyrirrúmi. Baldur Sigurðsson átti fyrsta hættulega marktækifærið á 19. mínútu þegar hann átti góðan skalla í átt að marki Fylkismanna eftir fyrirgjöf Símun Samuelsen en Fjalar Þorgeirsson varði vel frá honum. Stuttu síðan vildu Keflvíkingar fá vítaspyrnu en Egill Már dæmdi hana ekki.
Baldur var aftur á ferðinni þremur mínútum síðan eftir að Guðmundur Steinarsson sendi hann inn fyrir vörnina með löngu innkasti. Aftur varði Fjalar vel frá honum en færið var orðið frekar þröngt. Eftir þetta sóttu Fylkismenn í sig veðrið án þess þó að skapa sér marktækifæri. Símun Samuelsen átti hins vegar ágætis skottilraun á 42. mínútu og nokkrum sekúndum síðar komst Þórarinn Kristjánsson í fínt marktækifæri en skot hans fór í innkast!
Það var fátt um fína drætti hjá báðum liðum í byrjun seinni hálfleiks, alveg þangað til að Guðni Rúnar Helgason átti hörkuskot af 25 metra færi sem Ómar Jóhannsson neyddist til þess að slá í horn. Ekkert varð hins vegar úr hornspyrnunni og staðan því enn markalaus.
Fyrsta mark leiksins leit hins vegar dagsins ljós nokkrum mínútum síðar þegar Jónas Guðni lyfti boltanum yfir vörn Fylkismanna og þar kom Símun Samuelsen á sprettinum og lagði boltann laglega framhjá Fjalari í markinu. Símun var þarna kominn í framlínuna með Guðmundi Steinarssyni í stað Þórarins Kristjánssonar sem fór af leikvelli í hálfleik.
Fylkismenn reyndu nú hvað þeir gátu til þess að jafna metin. Þegar sjö mínútur voru til leiksloka fékk Daninn Christian Christiansen frían skalla af stuttu færi en hann reyndist laflaust og Ómar Jóhansson varði nokkuð örugglega. Hinum megin slapp Símun inn fyrir vörn þeirra appelsínugulu, fór framhjá Fjalari í markinu en því miður fyrir hann fór hann of langt með boltann og ekkert varð úr færinu.
Þá fékk Páll Einarsson einnig fínt skallafæri af stuttu færi eftir sendingu frá Hauk Inga Guðnasyni en lengra komust Fylkismenn ekki og lokatölur 1-0 fyrir Keflavík, sem eru nú í öðru sæti deildarinnar sem fyrr með 17 stig en núna aðeins tveimur stigum á eftir FH.
Keflavík (4-4-2) Ómar Jóhannsson, Guðjón Árni Antoníusson, Guðmundur Mete, Hallgrímur Jónasson, Branislav Milicevic, Marco Kotilainen, Baldur Sigurðsson, Jónas Guðni Sævarsson, Símun Samuelsen, Þórarinn Kristjánsson (Nicolai Jörgensen 46), Guðmundur Steinarsson (Högni Helgason 90).
Ónotaðir varamenn: Bjarki Guðmundsson, Bjarki Þór Frímansson, Einar Orri Einarsson, Þorsteinn Atli Georgsson, Sigurbjörn Hafþórsson.
Fylkir (4-2-3-1): Fjalar Þorgeirsson, Kristján Valdimarsson, Ólafur Stígsson (Páll Einarsson 80), Peter Gravesen, Víðir Leifsson, Andrés Már Jóhansson (Haukur Ingi Guðnason 61), Mads Bierholm (Halldór Arnar Hilmisson 22), David Hannah, Christian Christansen, Valur Fannar Gíslason.
Ónotaðir varamenn: Jóhann Ólafur Sigurðsson, Páll Einarsson, Hermann Aðalgeirsson, Freyr Guðlaugsson, Arnar Þór Úlfarsson.
Maður leiksins: Símun Samuelsen (Keflavík)
Aðstæður: Völlurinn góður en smá vindur setti strik í reikninginn
Dómari: Egill Már Markússon
Áhorfendur: 1350




