FH 1 - 1 ÍA
1-0 Tryggvi Guðmundsson (´8, víti)
1-1 Ellert Jón Björnsson (´80)
Það er hlaupin enn meiri spenna í Landsbankadeildina eftir að ÍA náði góðu stigi af Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika í dag. Ellert Jón Björnsson skoraði eitt fallegasta mark sumarsins með þrumufleyg undir lokin en Tryggvi Guðmundsson hafði komið FH yfir úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
1-1 Ellert Jón Björnsson (´80)
Það er hlaupin enn meiri spenna í Landsbankadeildina eftir að ÍA náði góðu stigi af Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika í dag. Ellert Jón Björnsson skoraði eitt fallegasta mark sumarsins með þrumufleyg undir lokin en Tryggvi Guðmundsson hafði komið FH yfir úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Hjá FH voru þrjár breytingar frá bikarsigri þeirra í Eyjum en Sigurvin Ólafsson, Auðun Helgason og Hjörtur Logi Valgarðsson voru á bekknum og í stað þeirra byrjuðu Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Tommy Nielsen og Freyr Bjarnason.
ÍA voru með óbreytt lið fá bikarleik þeirra við Víking nema þá að Páll Gísli var kominn aftur í markið fyrir Trausta Sigurbjörnsson.
Áform Skagamann um að liggja til baka í leiknum fóru út um þúfur strax á 7. mínútu þegar Heimir Einarsson fékk dæmt á sig heldur skrautlegt víti. Þórður Guðjónsson ætlaði þá að hreinsa boltann fram í klafsi við Tryggva Guðmundsson á vinstri kantinum en tókst ekki betur til en svo að hann fór í boga út hægri á Matthías Guðmundsson leikmann FH. Línuvörðurinn þeim meginn sem var greinilega ekki í miklum takt við leikinn flaggaði þá rangstöðu ekki vitandi að boltinn hafði borist augljóslega frá Skagamanni.
Matthías gaf boltann fyrir þar sem Dario Cingel varnarmaður ÍA stöðvaði og minnti þetta svolítið á atvikið með Ívar Ingimarsson gegn Svíium fyrr á árinu. Tryggvi Guðmundsson var vel með á nótunum og sá að Magnús Þórisson dómari leiksins lét leikinn halda áfram, hirti boltann af Dario og ætlaði með hann á milli hans og Heimis Einarssonar sem klemmdu Tryggva og gat Magnús ekkert annað gert en dæmt víti.
Mjög dýrt spaug fyrir Skagamenn og auðvitað áttu þeir að halda leik áfram en aftur á móti er lágmark fyrir línuverði að vera í takt við leikinn en eins og áður segir var mjög augljóst að boltinn barst frá Skagamanni.
Á vítapunktinn fór Tryggvi Guðmundsson og skoraði af öryggi.
Marki undir breyttu ÍA litlu í leik sínum, sátu áfram til baka með fimm manna varnarlínu og reyndu langar sendingar fram sem varnarmenn FH-inga stöðvuðu auðveldlega.
Besta sókn þeirra var eftir rúmann hálftíma leik þegar Bjarni Guðjónsson gaf á bróður sinn Þórð upp vinstri kantinn sem gaf boltann fyrir markið þar sem Jón Vilhelm Ákason var mættur en ágætur skalli hans fór rétt yfir.
FH-ingar voru langtum betri í fyrri hálfleiknum en varnarpakki ÍA var þéttur og þurftu þeir að láta sér fyrirgjafir og langskot nægja sem hvort sem voru enduðu í höndum Páls Gísla í markinu eða skallað burt af Dario Cingel og félögum í vörninni.
Páll Gísli átti svo stórbrotna markvörslu á 50. mínútu en Ásgeir Gunnar Ásgeirsson fékk þá dauðafæri af markteig eftir fallegan samleik Matthíasar og Tryggva en Páll varði glæsilega með löppunum.
Hinum meginn gerði Daði Lárusson frábærlega í að verja skalla Heimis Einarssonar eftir hornspyrnu Þórðar Guðjónssonar. Heimir gerði þá vel í að losa sig við dekkninguna og náði föstum skalla á markið en Daði var snöggur niður og varði vel.
Andri Júlíusson var svo ekki langt frá því að endurtaka leikinn frá bikarleik ÍA við Víking um daginn þegar hann kom þar af bekknum og skoraði strax. Í dag kom hann inn á fyrir Þórð Guðjónsson eftir klukkutíma leik og aðeins tveimur mínútum síðar átti hann skalla sem strauk samskeitin á marki FH.
FH-ingar voru betri aðilinn áfram og út allan leikinn þó Skagamenn færðu sig aðeins ofar á völlinn. Það hinsvegar gékk ekkert hjá þeim fyrir framan markið því aldrei var nokkur maður mættur að skalla þær fjölmörgu fyrirgjafir sem þeir áttu nema varnarmenn ÍA og þá út.
Þeim var svo harðlega refsað á 80. mínútu þegar hægri bakvörðurinn Ellert Jón Björnsson skoraði eitt fallegasta mark sumarsins. Boltinn barst þá til hans fyrir miðju marki FH og lét hann skotið ríða af tæplega 30m og endaði knötturinn í markinu óverjandi fyrir Daða Lárusson.
Heimamenn gerðu allt hvað þeir gátu til að landa sigri síðustu mínúturnar en allt kom fyrir ekki. Atli Guðnason kom inn á fyrir Arnar Gunnlaugsson sem áður hafði komið inn sem varamaður sjálfur og átti hann ágætis fyrirgjöf á Tryggva Guðmundsson sem fékk tvö færi til að skora en varnarmenn ÍA komust fyrir í bæði skiptin.
Gott stig hjá ÍA í hús en það höfðu ekki margir búist við þessum úrslitum í dag. Þetta er þó enn betra fyrir Keflavík og Val sem geta minnkað forystu Íslandsmeistaranna meira á morgun og hinn.
FH (4-3-3): Daði Lárusson (M), Guðmundur Sævarsson, Sverrir Garðarsson, Tommy Fredsgaard Nielsen, Freyr Bjarnason, Davíð Þór Viðarsson Dennis Michael Siim, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (Bjarki Bergmann Gunnlaugsson´ 65), Matthías Guðmundsson, Tryggvi Guðmundsson, Matthías Vilhjálmsson (Arnar Bergmann Gunnlaugsson ´76 - Atli Guðnason ´85)
Ónotaðir varamenn: Róbert Örn Óskarsson (M), Auðun Helgason, Sigurvin Ólafsson, Hjörtur Logi Valgarðsson.
ÍA (5-4-1): Páll Gísli Jónsson (M), Ellert Jón Björnsson, Árni Thor Guðmundsson, Dario Cingel, Heimir Einarsson, Guðjón Heiðar Sveinsson (Kári Steinn Reynisson ´80), Þórður Guðjónsson (Andri Júlíusson ´61), Bjarni Eggerts Guðjónsson, Helgi Pétur Magnússon, Jón Vilhelm Ákason, Vjekoslav Svadumovic.(Björn Bergmann Sigurðarson ´70).
Ónotaðir varamenn: Trausti Sigurbjörnsson (M), Dean Edward Martin, Arnar Már Guðjónsson, Gísli Freyr Brynjarsson.
Tölfræði:
FH - ÍA
Skot: 16 - 7
á mark: 8 - 3
Horn: 9 - 2
Rangstaða: 6 - 0
Aukaspyrnur fengnar: 23 - 9
Gul spjöld: FH - Tommy Nielsen (´53), Dennis Michael Siim (´90+3). ÍA - Helgi Pétur Magnússon (´40), Björn Bergmann Sigurðsson (´89).
Maður leiksins: Páll Gísli Jónsson (ÍA)
Dómari: Magnús Þórisson
Aðstæður: Frábært veður og völlurinn glæsilegur.
Áhorfendur: 2212



