Þá er komið að hinni hliðinni hér á Fótbolta.net en að þessu sinni er það Moritz Volz leikmaður Fulham í ensku úrvalsdeildinni sem sýnir á sér hina hliðina.
Volz sem er 24 ára Þjóðverji fór til Arsenal árið 2000 og var á mála hjá þeim til ársins 2004 en þá gekk hann til liðs við Fulham.
Hjá Fulham hefur Volz leikið 99 leiki og skorað tvö mörk en hann getur leikið allsstaðar í vörninni og á miðjunni. Kíkjum á hina hliðina á Volz sem er skemmtileg aflestrar.
Fullt nafn: Moritz Volz
Gælunafn: Volzy
Aldur: 24
Giftur/sambúð: Einhleypur
Börn: Ekki ennþá
Hvað eldaðir þú síðast? Kartöflumús
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Skinku, ananas og sveppi
Hvernig gemsa áttu? Það veltur á því hver vill vera styrktaraðili minn
Uppáhaldssjónvarpsefni? Match of the day
Besta bíómyndin? Meet the parents
Hvaða tónlist hlustar þú á? Rokk og kvöldverðartónlist
Uppáhaldsútvarpsstöð? Virgin eða 5live
Uppáhaldsdrykkur? Vatn
Uppáhaldsvefsíða? Itunes
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Já, ég er alltaf í skópari í leikjum
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Vera bestur á vellinum þá hugsa allir "Hver í fjandanum er þetta?"
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Ragass Rovers
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Kærasti systur minnar
Erfiðasti andstæðingur? Arjen Robben
EKKI erfiðasti andstæðingur? Mikki Mús
Sætasti sigurinn? 1-0 gegn Chelsea á þarsíðustu leiktíð
Mestu vonbrigði? Síðasta tímabil
Uppáhalds lið í enska boltanum áður en þú byrjaðir að spila þar? Ég horfði aldrei á ensku úrvalsdeildina sem krakki þannig að það var Arsenal eftir að það varð fyrsta liðið mitt á Englandi.
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Það var Zinedine Zidane
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Heiðar Helguson fyrir að geta hoppað og hangið í loftinu eins og þyrla
Efnilegasti knattspyrnumaðurinn? Cesc Fabregas
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Klárlega ekki Tevez
Grófasti leikmaður deildarinnar? Það eru allir aumingjar í úrvalsdeildinni
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Hann er farinn núna en það var Mark Crossley
Hefurðu skorað sjálfsmark? Ég var þekktur fyrir að skora fleiri sjálfsmörk en venjuleg mörk en ég gerði það ekki á síðasta tímabili
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Fagn Heiðars Helgusonar gegn Watford á síðustu leiktíð var skemmtilegt
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Ég spilaði FIFA manager mikið á sínum tíma en þessir leikir eru alltof ávanabindandi
Hvenar byrjaðir þú að æfa fótbolta? Sex ára gamall ef þú telur það æfingu að byggja sandkastala
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Gera mörkin tvisvar sinnum stærri svo ég geti skorað og láta andstæðingana ákveða vítaskyttuna hjá hinu liðinu ef það fær vítaspyrnu
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Lionel Ritchie
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hitta upp, fara yfir föst leikatriði og skokka sig niður
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Félagi minn Patch sem spilar í hljómsvetinni Vantramp. Þið þurfið að hlusta á þá.
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? London
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? 20 mínútur
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Pete Sampras
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Það kemur fyrir að ég fylgist með körfubolta
Hver er uppáhalds platan þín? Lögin í sjónvarpsþættinum The O.C.
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Ástralía - Danmörk í London í mars síðastliðnum, borgaði 20 pund
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Á síðustu leiktíð spilaði ég í Nike en ég hef ekki ákveðið hvað ég geri á þessari leiktíð
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Handavinnu. Ég var með tvær vinstri hendur og ógnaði öryggi samnemanda minna
Hvað ætlaru að gera þegar að fótboltaferlinum lýkur? Það yrði heimskulegt að gerast ekki umboðsmaður!! Ef ég næ að gera köku með bananakremi og grænu te sem ég hef verið að þróa þá gæti ég orðið kokkur.




