Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 26. ágúst 2007 23:05
Tómas Þór Þórðarson
Umfjöllun: Auðveldur Fram sigur í Laugardalnum
Fram 3 - 1 HK
Gunnleifur kýlir boltann frá marki sínu í kvöld.
Gunnleifur kýlir boltann frá marki sínu í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Theodór Óskarsson kominn upp að marki HK.
Theodór Óskarsson kominn upp að marki HK.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Stefán Jóhann Eggertsson sækir að Alexander Steen.
Stefán Jóhann Eggertsson sækir að Alexander Steen.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Framari liggur flatur.
Framari liggur flatur.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
1-0 Alexander Steen (´8)
2-0 Thedór Óskarsson (´30)
3-0 Hermann Geir Þórsson (´63, sjálfsmark)

Með frábærum úrslitum í síðustu tveimur leikjum gátu HK-ingar svo gott sem tryggt veru sína í Landsbankadeildinni á næsta ári með sigri á Fram í kvöld. Þeim varð þó ekki kápan úr klæðinu því Fram voru betri á öllum sviðum fótboltans í kvöld og sigruðu verðskuldað með þremur mörkum gegn engu.

HK voru með óbreytt lið þriðja leikinn í röð en hjá Fram fékk Theodór Óskarsson tækifæri í byrjunarliðinu vegna leikbanns Óðins Árnasonar.

Framarar komu af miklum krafti inn í leikinn og strax á fyrstu mínútunni fékk Theodór Óskarsson dauðafæri þegar boltinn barst honum inn í teig eftir varnarmistök Ásgríms Albertssonar en Gunnleifur Gunnleifsson í marki HK var kominn langt út á móti og varði vel.

Heimamenn héldu áfram pressunni sem skilaði sér á 8. mínútu þegar Alexander Steen skoraði fyrsta markið. Henrik Eggerts sem átti frábæran leik í dag gaf þá fallega sendingu inn fyrir vörn HK sem Gunnleifur virtist ætla að ná til en hann misreiknaði boltann og missti hann framhjá sér. Steen lét ekki bjóða sér það tvisvar og renndi knettinum í tómt netið.

Heimamenn voru alltaf líklegri til að bæta við heldur en HK að jafna og það gerðu þeir svo þegar hálftími var liðinn af leiknum. Aftur var varnarleikur HK slakur og rataði einföld sending Jónasar Grana inn fyrir vörnina á Theodór Óskarsson sem lék á Gunnleif með einni snertingu og renndi knettinum eins og í fyrsta markinu í tómt netið.

HK-ingar komu í seinni hálfleikinn staðráðnir í að reyna að setja mark. Það var þó ekki til að hjálpa gífurlega slökum sóknarleik þeirra að framherjinn Oliver Jaeger þurfti að fara út af í hálfleik meiddur. HK voru meira með boltann og dunduðu sér mikið fyrir framan vítateig Fram en ákvarðanir og sendingar á síðustu metrunum voru ekki til mikillar eftirbreytni.

Gestirnir sáu svo um að klára leikinn sjálfir fyrir Fram þegar varnarmaðurinn Hermann Geir Þórsson skoraði slysalegt sjálfsmark. Jónas Grani fékk þá allan þann tíma sem hann vildi til að gefa fyrir markið af stuttu færi, beint á kollinn á Hjálmari sem skallaði boltann í Hermann með fyrrgreindum afleiðingum.

Framarar hafa nú skorað átta mörk í síðustu þremur leikjum og ef þeir byggja ofan á þennan varnarleik sem þeir sýndu í kvöld eru þeir til alls líklegir á lokasprettinum.




Fram (4-5-1): Hannes Þór Halldórsson (M), Ingvar Þór Ólason, Reynir Leósson, Daði Guðmundsson, Hans Yoo Mathiesen, Alexander Steen, Henrik Eggerts (Ívar Björnsson ´66), Hjálmar Þórarinsson, Theodór Óskarsson (Patrik Ted Redo ´47), Jónas Grani Garðarsson.
Ónotaðir varamenn: Gunnar Líndal Sigurðsson, Grímur Björn Gímsson, Kjartan Sigurðsson, Guðmundur Magnússon, Jón Orri Ólafsson..

HK (4-5-1): Gunnleifur Vignir Gunnleifsson (M), Stefán Jóhann Eggertsson, Ásgrímur Albertsson, Finnbogi Llorenz Izaguirre, Hermann Geir Þórsson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Rúnar Páll Sigmundsson (Almis Cosic ´82), Þórður Birgisson, Calum Þór Bett (Kristján Ari Halldórsson ´73), Jón Þorgrímur Stefánsson, Oliver Jaeger (Ólafur Valdimar Júlíusson ´46).
Ónotaðir varamenn: Beitir Ólafsson (M), Þorlákur Helgi Hilmarsson, Finnur Ólafsson, Hörður Már Magnússon.

Tölfræði:
Fram - HK
Skot: 4 - 6
á mark: 3 - 4
Horn: 7 - 3
Rangstaða: 7 - 2
Aukaspyrnur fengnar: 15 - 13
Gul spjöld: Fram – Ingvar Þór Ólason (´36). HK – Hermann Geir Þórsson (´60), Hólmar Örn Eyjólfsson (´62), Ásgrímur Albertsson (´76), Ólafur V. Júlíusson (´89).

Maður leiksins: Henrik Eggerts (Fram)
Dómari: Eyjólfur M. Kristinsson
Aðstæður: Ljúft og milt veður, völlurinn góður.
Áhorfendur: 979
Slapp
banner
banner