Fylkir 4-0 Keflavík
1-0 Peter Gravesen (2)
2-0 Albert Brynjar Ingason (16)
3-0 Albert Brynjar Ingason (40)
4-0 Albert Brynar Ingason (67)
1-0 Peter Gravesen (2)
2-0 Albert Brynjar Ingason (16)
3-0 Albert Brynjar Ingason (40)
4-0 Albert Brynar Ingason (67)
Fylkir tók á móti Keflavík í sautjándu umferð Landsbankadeildar karla í dag. Fyrir leikinn áttu Fylkir ennþá möguleika á Evrópusæti fyrir næsta tímabil en Keflvíkingar voru hins vegar um miðja deild og áttu hvorki möguleika á Evrópusæti né að falla niður um deild.
Leikurinn fór af stað með látum og strax á 2. mínútu fengu heimamenn vítaspyrnu þegar brotið var á Páli Einarssyni innan vítateigs. Það var Daninn Peter Gravesen sem tók spyrnuna og skoraði af miklu öryggi, í vinstra hornið framhjá markmanninum Bjarka Guðmundssyni.
Leikurinn var nokkuð fjörugur eftir markið og það var hinn ungi Einar Orri Einarsson sem átti hættulegasta tækifærið á 15. mínútu en varnarmaður Fylkis náði að koma í veg fyrir skot hans. Það voru hins vegar Fylkismenn sem bættu við marki á 16. mínútu þegar Albert Brynjar Ingason afgreddi langa sendingu Kristjáns Valdimarssonar.
Heimamenn voru hins vegar ekki hættir og stuttu síðar slapp Christian Christansen inn fyrir vörn Keflvíkinga en skot hans fór hárfínt framhjá stönginni. Þrátt fyrir að Fylkismenn voru komnir í 2-0 þá sagði það ekki endilega allt um gang leiksins á þeim tímapunkti.
Tíu mínútum síðar var Albert Brynjar aftur kominn í gott færi. Gravesen átti fína fyrirgjöf sem Bjarka tókst að ekki að kýla í burtu. Boltinn féll beint fyrir framan lappirnar á Alberti Brynjari sem hitti einfaldlega ekki knöttinn. Fylkismenn héldu áfram að vaða í færum og nú var það Christian Christiansen sem hitti ekki knöttinn af stuttu færi.
Gestirnir áttu einnig sín tækifæri og tólf mínútum fyrir leikslok prjónaði Guðmundur Steinarsson sig í gegnum vörn Fylkismanna en skot hans var beint á markvörðinn Fjalar Þorgeirsson. Fylkismenn voru þó ekki hættir og bættu við þriðja markinu fimm mínútum fyrir leikslok. Það var Albert Brynjar Ingason sem fór framhjá varnarmönnunum Hallgrími Jónassyni og Kenneth Gustafsson og þrumaði boltanum framhjá Bjarka. Staðan 3-0 í hálfleik.
Keflvíkingar komu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og sóttu stíft á upphafsmínútunum þar sem Magnús Sverrir Þorsteinsson átti gott skot sem lenti ofan á þverslánni. Á 67. mínútu fullkomnaði Albert Brynjar síða þrennuna sína. Páll Einarsson átti langa bolta inn fyrir vörn gestanna og þar kom Albert á fleygiferð og setti boltann undir Bjarka Guðmundsson. Þetta er aðeins önnur þrennan sem skoruð er í Landsbankadeildinni í sumar en hina skoraði Ásgeir Gunnar Ásgeirsson hjá FH.
Lítið gerðist á síðustu tuttugu mínútum leiksins, það markverðasta þegar Bjarki Guðmundsson varði vel hörkuskalla frá Peter Gravesen. Lokatölur því 4-0 og Fylkismenn eiga enn möguleika á Evrópusæti fyrir nsæta tímabil. Keflvíkingar hafa hins vegar ekki ennþá unnið leik í seinni umferðinni og hafa aðeins fengið þrjú stig í síðustu átta leikjum.
Fylkir: Fjalar Þorgeirsson, Kristján Valdimarsson, Guðni Rúnar Helgason, Peter Gravesen, Páll Einarsson (Kjartan Andi Baldvinsson 85), Andrés Már Jóhansson, David Hannah, Halldór Hilmisson (Hermann Aðalgeirsson 78), Christian Christiansen (Ólafur Ingi Stígsson 60), Albert Brynjar Ingason, Valur Fannar Gíslason.
Ónotaðir varamenn: Jóhann Ólafur Sigurðsson, Jóhann Ólafur Sigurðsson, Haukur Ingi Guðnason, Freyr Guðlaugsson, Björn Orri Hermannsson.
Keflavík: Bjarki Guðmundsson, Guðjón Árni Antoníusson, Kenneth Gustafsson, Jónas Guðni Sævarsson, Nicolai Jörgensen, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Guðmundur Steinarsson (Milos Tanasic 37), Einar Orri Einarsson, Hallgrímur Jónasson, Sigurbjörn Hafþórsson (Högni Helgason 60), Marco Kotilainen (Sigurbergur Elíasson 71).
Ónotaðir varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Sigurbergur Elíasson, Branislav Milicevic, Garðar Eðvaldsson, Árni Freyr Ásgeirsson, Pétur Heiðar Kristjánsson.
Dómari: Kristinn Jakobsson
Áhorfendur: 789
Aðstæður:Völlurinn ekki alveg upp á sitt besta en veðrið fínt, smá kuldi.
Maður leiksins: Albert Brynjar Ingason
Gul spjöld: Valur Fannar Gíslason (6), Guðjón Árni Antoníusson (28),
◘Fylkir – Keflavík
Skot: 11 - 11
Skot á mark: 3 - 7
Hornspyrnur: 6 - 3
Rangstæður: 2 - 0


