Margrét Lára og Guðbjörg bestar
Valsstúlkur slógu í gegn í innanhúsfótboltamóti sem haldið var í Þýskalandi um helgina og þóttu spila langskemmtilegasta boltann á mótinu þó þær hafi að lokum endað í fjórða sæti. Valsliðið náði svo miklum vinsældum á mótinu að hluti af 900 manns í stúkunum studdu liðið með ráðum og dáð og sungu ,,Valur" í salnum.
Margrét Lára Viðarsdóttir var valin leikmaður mótsins og Guðbjörg Gunnarsdóttir valin markvörður mótsins og var þannig valin á undan Nadine Angerer markverði Heimsmeistara Þýskalands. Leikirnir á þessu móti gætu hafa verið síðustu leikir þeirra beggja fyrir Val því þær hafa báðar hug á að leika erlendis.
Valur mætti þýska stórliðinu Potsdam í leiknum um fjórða sætið í mótinu og eftir að staðan hafði verið 3-3 eftir venjulegan leiktíma tapaði Valur í vítaspyrnukeppni. Potsdam hafði komist yfir í leiknum um þriðja sætið en Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði á ótrúlegan hátt. Hún tók boltann þá beint úr miðju og þrumaði föstu skoti á markið og staðan 1-1.
Fulltrúi Fótbolta.net á mótinu var hollendingur sem er fulltrúi vinsællar fótboltasíðu í Evrópu. Hann var að sjá Valsstúlkur spila í fyrsta sinn og hans fyrstu viðbrögð voru ,,WHAT A TEAM!!!" og ljóst að hann var mikið heillaður. Hann sagði að af 20 bestu félagsliðum heims í dag hafi 8 verið í Jollenbeck á mótinu og þar hafi Valur endað í fjórða sæti.
Hann sagði að Valsstúlkur hafi spilað virkilega skemmtilegan bolta og að Margrét Lára og Guðbjörg hafi verið magnaðar í leikjum liðsins. Hann sagði liðið stundum minna á prúðuleikarana því þær hafi svo smávaxna leikmenn innanborðs en gæði liðsins hafi verið virkilega góð enda væri þetta eitt besta lið heims í dag.
Riðlakeppnin:
Bad Neuenahr 2-3 Valur
Valur 1- 1 Potsdam
Kolbotn 2-5 Valur
Valur 2-1 Bad Neuenahr
Potsdam 5-0 Valur
Valur 2-2 Kolbotn
Staðan eftir riðlakeppnina.
1. 1. FFC Turbine Potsdam - 26:4 - 16
2. Valur Reykjavik – 11:13 - 8
3. SC 07 Bad Neuenahr – 12:15 - 6
4. Kolbotn IL - 9:23 - 4
Milliriðlar:
Duisburg 3-2 Valur Reykjavik
Leikurinn um þriðja sætið:
Potsdam (3-3) 6-5 Valur:
1-0 Kaurin
1-1 Margrét Lára Viðarsdóttir
1-2 Margrét Lára Viðarsdóttir
1-3 Guðný Björk Óðinsdóttir
2-3 Kaurin
3-3 Schiewe
Lokastaðan 6-5 eftir vítaspyrnukeppni




