Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 22. febrúar 2008 08:40
Magnús Már Einarsson
Hörður Snævar Jónsson
Fótboltinn minn: Ceres 4 (Merzedes Club)
Gaz-Man, Ceres 4, Gillzenegger og Partý Hans.
Gaz-Man, Ceres 4, Gillzenegger og Partý Hans.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
<i>,,Ein, Zwei, Drei.....
,,Ein, Zwei, Drei.....
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Gaz Man með Ceres 4 í fanginu
Gaz Man með Ceres 4 í fanginu
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Gaz Man og Ceres 4.
Gaz Man og Ceres 4.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Ceres 4 eða Hlynur Áskelsson er söngvari Merzedes Club sem mun á morgun keppa í undankeppni Eurovision en þá kemur í ljós hvaða lag fer fyrir Íslands hönd í keppnina í Serbíu í maí.

Lagið "Ho ho ho we say hey hey hey" hefur vakið mikla athygli að undanförnu en eins og fyrr segir er Ceres 4 söngvari Merzedes Club í laginu.

Það vita það hins vegar ekki allir að Ceres 4 er mikill fótboltaáhugamaður og Þróttari. Hann var aðstoðarþjálfari Þróttar 2005 og 2006 en núna þjálfar hann yngri flokka hjá Haukum í Hafnarfirði.

Við á Fótbolti.net fengum hann því til að svara nokkrum fótboltatengdum spurningum í liðnum "Fótboltinn minn."

Aðrir sem hafa setið fyrir svörum í "Fótboltinn minn"


Hvernig var fótboltaferill þinn? Hann hófst í Þrótti og þaðan fór ég til Eskifjarðar þar sem ég spilaði í fimm ár með Austra, í 6-4.flokki. Síðan var ég frá fjórða upp að meistaraflokki í Þrótti. Ég hætti þegar ég var að komast inn fyrir þröskuldinn í meistaraflokki. Það kom lægð í Þrótti og þeir féllu í 3.deild, þetta er langt síðan um 1990 og þá fór ég að lyfta lóðum og spila fótbolta með félögunum.

Ég spila ennþá alltaf fótbolta að minnsta kosti einu sinni í viku, innanhúsfótbolta sem er eiginlega sér íþrótt út af fyrir sig. Ég er rosalega góður innanhúsfótboltamaður, ég er eiginlega betri innanhúsfóboltamaður en utanhúsfótboltamaður.

Ég hef alltaf haldið mikilli tryggð við Þrótt, verið í meistaraflokksráði, verið liðsstjóri og ég var aðstoðarþjálfari með Atla Eðvalds 2005-2006. Núnar er kominn þjálfaraferill hjá mér þar sem ég er farinn að þjálfa hjá Haukum í Hafnarfirði með Frey Sverrissyni sem þjálfar yngri landsliðin með Luka Kostic, hann er frábær þjálfari. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vinna með mörgum frábærum þjálfurum. Willum þegar hann var hjá Þrótti, Ásgeiri heitnum Elíassyni, Atla Eðvalds og nú síðast Frey Sverris.

Hvaða stöðu spilaðir þú í boltanum? Ég var Hans-Peter Briegel í vörninni, ég var varnarjaxl. Ég er jafngamall og Rúnar Kristins, Heimir Guðjóns og Þormóður Egils og við vorum alltaf að kljást við KR. Þeir voru alltaf skrefinu framar, rosalega bráþroska og ég var alltaf að kljást við þá, það eru sætustu minningarnar úr æskufótboltanum.

Í dag er með mig eins algengt er með Þróttara, þeir færa sig yfir í listina. Jón Ólafsson píanóleikari er mikill Þróttari og fótboltamaður. Eyjólfur Kristjánsson hefur farið út í Eurovision með Nínu þar sem Jón Ólafs var stjórnandi, Eiki Hauks fór sællar minningar með Gleðibankann og nú síðast ég les úr lófa þínum og mér finnst sjálfsagt að ég fái að feta í þeirra stóru og þykku fótspor og vera þriðji Þróttarinn sem fer út fyrir Íslands hönd í Eurovision, það yrði frábært.

Hvernig líst þér á komandi sumar hjá Þrótti? Mér finnst Gunni Odds vera að gera mjög skemmtilega hluti. Þetta gekk mjög vel í fyrra og liðið átti gott "run," þetta hikstaði aðeins í lokin en þetta reddaðist. Ég heyri bara jákvæðar fréttir núna úr herbúðum Þróttar, ég fylgist alltaf með þeim úr fjarlægð en ég er mikið í Hafnarfirði þar sem krakkastarfið hjá Haukum á hug minn allan þessa stundina. En það eru að koma mikið af nýju leikmönnum til Þróttar og ég er bjartsýnn enda bjartsýnn maður að eðlisfari.

Fylgist þú vel með boltanum í dag? Ég fylgist mikið með þýska fótboltanum, ég hef verið trúlofaður þýska landsliðinu og ekkert annað komist að þar. Menn vita það að ég er hálfur Þjóðverji enda er ég fenginn í þessu lagi til að telja á þýsku. Ein, Zwei, Drei.....

Mín tenging við enskan fótbolta er þannig að ég held með þeim liðum sem Íslendingar eru að sprikla í. Ég er góðvinur Heiðars Helgusonar og þegar hann var í Watford hélt ég alltaf með Watford en ég hélt reyndar alltaf með þeim í gamla daga. Ég var lengi mikill aðdáandi Wimbledon þegar að Vinnie Jones og það brjálaða gengi var þar. Ég hef alltaf laðast að liðum sem hafa verið í svipaðri stöðu og Þróttur, í baráttusætum. Verið að falla og komast upp síðan.

Síðan hélt ég mikið með Stoke og samdi meira segja um þá lag sælla minninga, "Stoke er Djók." Það var engin illkvittni, mér leist ekkert á viðskiptahugmyndina sem slíka og það var kveikjan að textanum, ekki það að ég hefði eitthvað á móti Stoke og ég óska þeim alls hins besta. Eins þegar ég samdi West Ham lagið, það var þeim til heilla. Ég sótti um styrk hjá Landsbankanum til að gera myndband við það lag en ég fékk ekki krónu og bjargaði allt úr eigin vasa.

Hver eru þín lið í dag? Núna held ég með West Ham í ensku og síðan held ég alltaf með Hamburg í þýsku. Ég held líka alltaf með þýska landsliðinu, það er mitt lið og ef ég held með einhverju liði þá er það þýska landsliðið í fótbolta.

Hvenar fórst þú síðast á völlinn? Ég hef ekkert farið á fótboltavöll á þessu ári en ég sótti völlinn grimmt í fyrra. Ég tók unglingadómararéttindi og fékk því aðgönguskírteni og ég nýtti það alveg í ræmur. Ég fylgdist einnig mikið með EM hjá U19 kvenna og sá marga leiki með þýsku stelpunum. Mér fannst þær líka mjög sætar og íslensku stelpurnar voru líka geðveikar. Síðan sá ég þegar Þróttur fór upp og þegar að Valur lagði FH í Hafnarfirði, það er eftirminnilegur leikur.

Áttu einhverja skemmtilega sögu/r af fótboltaferli þínum? Ég var einu sinni uppi í Breiðholti að spila við ÍR. Mér var eitthvað illt í maganum og bað um skiptingu að því að það kom brúnt í brók.
Slapp
banner
banner