Liðin í 3.deild karla eru þessa dagana að ljúka undirbúningi sínum fyrir mót en fyrstu leikirnir í deildinni fara fram í vikunni.
Í gær unnu Þróttur Vogum lið Skallagríms 2-1 í æfingaleik á grasvellinum í Vogum en Arnar Arnórsson skoraði þar tvívegis úr vítaspyrnu.
Þá unnu Hamrarnir/Vinir lið KFG 3-2 í æfingaleik sem fram fór á fimmtudagskvöld.
Þróttur-Skallagrímur 2-1
0-1 Almar Björn Viðarsson 44.mín
1-1 Arnar Arnórsson 59.mín víti
2-1 Arnar Arnórsson 79.mín víti
KFG 2 -3 Hamrarnir/Vinir
Mörk Hamranna/Vina: Gunnar Konráðsson 2 og Heimir Björnsson
Mörk KFG: Sindri SIgurþórsson 2.



