Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   fim 05. júní 2008 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnuakademíu Íslands með fótboltaskóla á Selfossi
Mynd: Knattspyrnuakademían
Vikuna 9. – 13. júní mun Knattspyrnuakademía Íslands vera með opið fótboltanámskeið á Selfossi fyrir 9 til 14. ára stráka og stelpur. Er námskeiðið bæði hugsað fyrir krakka frá Selfossi og annarsstaðar af landinu.

Þjálfarar á námskeiðinu verða Richard Stevens aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Coventry City akademíunni, Aaron Danks þjálfari hjá West Bromvich Albion akademíunni, Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari meistaraflokks Vals og Margrét Lára Viðarsdóttir leikmaður Vals og Íslands.

Mikill áhugi er fyrir námskeiðinu bæði á Suðurlandi og annarsstaðar af landinu, enda eitt áhugaverðasta fótboltanámskeiðum sem í boði er þessa dagana.

Verður námskeiðið þannig uppbyggt að á morgnana frá kl: 09.00 til 12.00 verða æfingar fyrir níu til ellefu ára og eftir hádegi frá kl: 13.00 til 16.00 verða æfingar fyrir tólf til fjórtán ára.

Þátttökugjald er 12.900 kr. (innifalið í því eru 15. tímar af toppþjálfun, hressing á æfingunum og æfingabolir), greiðist við upphaf námskeiðsins.

Hægt er að fá allar nánari upplýsingar um námskeiðið á knattspyrnuakademian.is og hjá Sævari í síma: 863-8299.

Hægt er að skrá á námskeiðið með því að senda tölvupóst á [email protected]

Þeir sem koma að verkefninu fyrir utan Knattspyrnuakademíu Íslands og Knattspyrnudeild Selfoss er: Fótbolti.net, Vífilfell, Jói Útherji, Toyota Selfossi, Hótel Selfoss, Icelandair, Landsbankinn og Vodafone.
Slapp
banner
banner