Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni kíkjum við Norður og skoðum stemninguna hjá Dalvík/Reyni.
Viktor Már Jónasson fyrirliði liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemmningin hjá Dalvík/Reyni þessa dagana?
Stemmningin er fín en árangur mætti vera örlítið betri og um leið og hann kemur verður stemmningin í hæstu hæðum.
Hvernig er leikmannahópurinn uppbyggður?
Leikmannahópurinn er aðallega uppbyggður af Dalvíkingum og einnig nokkrum frá Akureyri en hafa þeir flestir ef ekki allir spilað með okkur í nokkur ár og er maður farinn að líta á þá sem hálfgerða Dalvíkinga. Hópurinn er líka mjög aldursskiptur sem er mjög jákvætt og eru margir reysnluboltar sem og ungir og efnilegir leikmenn sem verður að teljast mjög góð blanda.
Er mikill fótboltaáhugi á Dalvík og Árskógsströnd?
Hann er því miður ekki jafn mikill og á árum en núna er mikið farið að leggja upp úr yngri flokka starfinu sem vonandi skilar sér á komandi árum og þjálfararnir þar eiga hrós skilið fyrir framúrskarandi metnað sem þeir leggja í þjálfunina.
Jóhann Hreiðarsson, Hermann Albertsson og þjálfarinn Örlygur Helgason hafa allir reynslu úr úrvalsdeild. Hafa þeir hjálpað liðinu mikið?
Þetta eru allt toppleikmenn og frábærir félagar og þeir hafa gert góða hluti bæði innan sem utan vallar. Þeir eiga samt allir mikið meira inni á vellinum og vita það vel sjálfir.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Alls ekki 7 stig úr fyrstu 5 leikjunum er óviðunandi og erum við stálheppnir hvað stigin hafa dreifst á öll liðin svo við erum ennþá í hörkubaráttu!
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Breiddinn auk þess sem liðið er nánast eingöngu uppbyggt af heimamönnum
Hvert er markmið liðsins í sumar?
Fara upp um deild, höfum hópinn til þess og kominn tími til.
Hefur eitthvað komið þér á óvart í upphafi 3.deildarinnar?
Í rauninni ekki. liðin sem maður bjóst við að væru sterkust er á toppi í sínum riðlum.
Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í deildinni?
Hamrarnir/Vinir eru með virkilega sterkt lið og þeir verða að teljast nokkuð líklegir. Við höfum líka hæfileikaríkt lið og með sterkan hóp, annars eru mörg önnur lið sem eiga góða möguleika og það kemur bara í ljós hverjir það eru
Eitthvað að lokum?
Ég vil nota tækifærið og auglýsa nýjan aðdáendaklúbb sem fer á stað í næsta heimaleik og hafa nokkrir nú þegar staðfest þátttöku sína í klúbbnum og þeir sem eru áhugasamir og vilja ganga í klúbbinn hafa samband við Magna Þór í síma 8479849.
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)
2.deild:
Afturelding (4.júlí)
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
ÍR (4.júlí)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Spyrnir (1.júlí)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)




