Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Í dag er ferðinni heitið í Breiðholti þar sem litið er á stemninguna hjá Leikni.
Halldór Kristinn Halldórsson varnarmaður liðsins sá um að svara nokkrum spurningum.
Hvernig er stemmningin hjá Leikni þessa dagana?
Stemningin hjá Leikni er alltaf góð. Sérstaklega núna eftir að við höfum náð tveimur sigrum í röð og komist upp úr fallsæti. Í gær földum við bílinn hjá Gæja þjálfara sem sýndi leti sína með því að leggja bílnum við hlið æfingasvæðisins. Við færðum hann fyrir aftan girðinguna og hann fann bílinn ekki fyrr en um hálftíma eftir æfinguna.
Er mikill fótboltaáhugi í Efra-Breiðholti?
Já ég myndi segja það. Ég er til dæmis að starfa við knattspyrnuskólann hjá Leikni núna og er pakkfullt á hverju námskeiði. Svo á félagið dyggan kjarna stuðningsmanna sem eru duglegir að fylgja liðinu í leiki. Stuðningsmannahópurinn Leifi stendur alltaf fyrir sínu þó ýmsir dómarar reyni að leggja stein í götu hans með því að reyna að koma í veg fyrir stuðninginn. Aðrir dómarar taka hinsvegar virkan þátt eins og sá sem dæmdi síðasta leik.
Er leikmannahópurinn mikið breyttur frá því í fyrra?
Já hann er talsvert breyttur. Ellismellirnir Freyr Alexandersson, Gunnar Jarl Jónsson og Helgi Pjetur Jóhannsson fóru að snúa sér að fjölskyldulífinu og lögðu skóna á hilluna eftir langa og farsæla ferla. Hilmar Trausti Arnarsson var með spaðagang og fór heim í Hafnarfjörðinn og þá var tröllið og hefillinn Elínbergur Sveinsson að halda í sveitasæluna þar sem hann mun stunda búskap með knattspyrnuferlinum.
Í stað þeirra höfum við fengið prýðispilta. Umboðsmaðurinn Jakob Spangsberg benti okkur á Rune Koertz sem hann hafði fylgst grannt með í marga mánuði. Svo fengum við gulldrenginn úr Fossvoginum, Kára Einarsson og Einar Pétursson kom á lánssamningi frá Fylki. Svo stigu Ólafur Jónsson og Aron Fuego Daníelsson upp úr KB.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Nei það er ég ekki. Byrjunin var langt undir okkar væntingum, í raun og veru alveg afleit. Seinni hluta móts erum við ákveðnir í að sýna hvað við höfum upp á að bjóða og að við séum með leikmannahóp sem eigi alls ekki heima í botnbaráttunni. Það er mjög erfitt að byrja illa en við erum loksins núna að ná að rífa okkur upp úr því.
Liðið náði ekki í stig í fyrstu fimm umferðunum, hvað hefur breyst eftir það?
Menn eru farnir að sýna sitt rétta andlit og farnir að berjast fyrir hvorn annan. Sjálfstraustið sem var lítið sem ekkert í byrjun móts er komið í góðan gír og menn eru farnir að þora að spila ekta samba-bolta á nýjan leik.
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Á góðum degi tel ég okkur geta spilað betri bolta en flest önnur lið í deildinni. Því miður hafa þessir góðu dagar verið of fáir í sumar. Við erum með ungt lið eins og oft áður hjá Leikni og erum alltaf að bæta okkur. Samheldnin er mikil og þá höfum við sterka miðju og fína breidd á miðsvæðinu.
Hvert er markmið liðsins í sumar?
Við náðum sjötta sætinu í fyrra og markmiðið fyrir tímabilið núna var að gera betur. Það eru þrjú stig í sjötta sætið í dag og allur seinni helmingurinn eftir. Það er því vissulega möguleiki á því að ná því markmiði þó byrjun okkar hafi verið sorglega slök. Núna er samt efst í huga okkar að taka gömlu klisjuna, taka einn leik fyrir í einu og ná að slíta okkur almennilega frá botninum.
Hvaða leikmenn hafa staðið uppúr hjá Leikni það sem af er tímabili?
Það er bara þannig að flestir leikmenn okkar hafa verið að spila undir getu á heildina litið. Það er staðreynd. Rune Koertz hefur þó komið sterkur inn og svo hefur Guðlaugur Andri Axelsson líklega verið okkar stöðugasti leikmaður á tímabilinu. Gulli hefur staðið sig virkilega vel og er með flest M frá Morgunblaðinu af leikmönnum Leiknis. Aron Fuego Daníelsson hefur komið skemmtilega á óvart og verið virkilega ógnandi í sókninni. Hann hefur skemmt áhorfendum á Ghetto-ground og sýnt að hann er framtíðarleikmaður.
Hefur eitthvað komið þér á óvart í fystu deildinni í sumar?
Já klárlega. Hvað er Selfoss að gera í öðru sætinu? Svo kom mjög á óvart að ÍBV skyldi tapa leik. Svo kemur á óvart að við séum svona neðarlega.
Nú eru Leiknir loksins að eignast alvöru félagsheimili, er mikil tilhlökkun fyrir það?
Mjög mikil. Það er skemmtilegt að fylgjast með framkvæmdunum og þeir sem komu inn í gamla Leikniskofann vita hve rosaleg breyting þetta verður fyrir okkur. Húsið verður hreint glæsilegt og við munum hafa nánast allt til alls. Sem stendur er búnings-aðstaðan okkar í Fellaskóla svo það verður stórt stökk að eignast okkar eigin klefa.
Félagssvæðið er að verða eitt það glæsilegasta í Reykjavík. Umgjörðin í kringum aðalvöllinn er með því allra besta sem gerist í 1. deild og nýja stúkan hefur reynst frábærlega fyrir Leifa og félaga. Fyrir nokkrum árum sá maður þetta ekki fyrir en þegar boltinn byrjaði að rúlla þá stækkaði hann ört.
Næsti leikur gegn ÍBV á fimmtudag, hvernig leggst hann í þig?
Vel. Við höfum mætt ÍBV tvisvar í sumar og tapað báðum leikjunum. Þeir hafa reyndar báðir verið í Vestmannaeyjum en ÍBV fær ekkert gefins á Ghetto-ground. Við ætlum okkur þrjú stig. Gæi verður jakkafataklæddur á bekknum sem mun gefa okkur ákveðið forskot. Fyrir leikinn gegn KS/Leiftri lofaði hann því að klæðast hvítum jakkafötum og vera í bleikri skyrtu á bekknum gegn ÍBV ef okkur tækist að ná sigri. Nú er bara spurning hvort hann standi ekki við stóru orðin.
Eitthvað að lokum?
Ég vil hvetja alla til að mæta á leikinn á fimmtudag og mæta bara sem oftast á leiki í Breiðholtinu. Aðstaðan fyrir áhorfendur er frábær á Leiknisvelli og Oscar Clausen er með góð tilboð í sjoppunni. Svo eru alltaf mörk í Leiknisleikjum, nema þegar við mætum Víkingi Ólafsvík. Áfram Leiknir!
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)
2.deild:
Afturelding (4.júlí)
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
ÍR (4.júlí)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
Dalvík/Reynir (11.júlí)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Spyrnir (1.júlí)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)



