Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Í dag kíkjum við á stemninguna á Ísafirði og í Bolungarvík hjá liði BÍ/Bolungarvíkur.
Sigurgeir Sveinn Gíslason svaraði nokkrum spurningum og afrasksturinn er hér að neðan.
Hvernig er stemmningin hjá BÍ/Bolungarvík þessa dagana? Stemningin hjá BÍ/Bolungarvík þessa dagana er frábær, við höfum átt góðu gengi að fagna hingað til á sumrinu, og mórallinn hefur sjaldan verið betri. Liðið er byrjað að sýna glimrandi fótbolta, og með þessu áframhaldi, þá verður erfitt að stoppa strákana.
Hvernig er leikmannahópurinn uppbyggður? Hópurinn er byggður á mestmegnis ungum strákum sem hafa bara verið að safna reynslu í 3 deildinni síðustu 2-4 ár, aldurinn er frá 15-24 ára, það eru margir horfnir á braut frá því í fyrra og er leikmannahópurinn mjög breyttur í ár, en það er ekki grátið þá sem vildu prófa e-ð annað, því það kemur maður í manns stað. við erum með 2 útlendinga sem hafa verið frábær viðbót við hópinn sem fyrir var, en fyrir utan þá, þá eru þetta bara ungir heimalingar.
Er mikill fótboltaáhugi á Ísafirði og í Bolungarvík? Já, áhuginn er til staðar og hefur verið mikill stígandi í honum síðustu 3 ár, þá sérstaklega eftir sameiningu félaganna. En hefur legið í nokkrum dvala og oft er útlit fyrir að bæjarbúar átti sig ekki á hversu mikill efniviður liggur í fótboltanum hérna, en eins og ég segi, þá er áhuginn til staðar og hann hefur farið vaxandi, það vantar stundum bara að hann sé áþreifanlegri.
Ertu sáttur við gengi ykkar í sumar? Ég er gríðarlega sáttur með gengi okkar í sumar, og þó að væntingarnar hafa verið háar fyrir tímabilið, þá erum við samt að spila fram úr mínum vonum. En það má einmitt þakka samheldninni í hópnum fyrir það, það segir svo margt þegar allir í hópnum eru gríðarlega góðir félagar, því þá þjappast hópurinn mun meira fyrir vikið, og liðið hefur verið að uppskera því sem sáð er á æfingasvæðinu.
Hver er helsti styrkleiki ykkar? Það er erfitt að benda á einn styrkleika nú í ár, því öllum inná vellinum hjá okkur, gengur í samræmi við hvernig öðrum gengur, semsagt ef að við erum að eiga slappan leik í sókninni þá er vörnin að gera lítið betur, en ef ég þarf að benda á eitt, þá er sóknarleikurinn farinn að skína, einnar snertingar fótbolti upp völlinn, það á engin break.
Hvaða leikmenn hafa staðið upp úr hjá BÍ/Bolungarvík þar sem af er tímabili?
Allt liðið hefur verið að spila glimrandi fótbolta, margir strákar sem eru að koma inn eftir langa hvíld frá boltanum og hafa verið að skila sínu mjög vel, en Andri Rúnar Bjarnason er búinn að eiga toppsumar, búinn að setja 8 stykki og þónokkrar stoðsendingar, og svo Goran Vujic, þú getur alltaf slappað aðeins af ef hann er með boltann, því það tekur bara enginn boltann af honum.
Hvert er markmið liðsins í sumar? Markmiðið er ekki flókið, við vorum svo nálægt því í fyrrasumar, en það var þetta litla sem vantaði, en í ár er það einfalda upp um deild. Að vinna kannski deildina væri svo kannski ekkert svo slæmt.
Hefur eitthvað komið þér í fyrri hlutanum í 3.deildinni?
Nei í sjálfu sér ekki, flest liðin eru að skila því frá sér sem ég bjóst við af þeim.
Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í deildinni?
Ég veit ekkert of mikið um hina riðlana, en ég gæti trúar Borgnesingum til að gera eitthvað og svo einnig Dalvík/Reynir, en ég þarf auðvitað ekki að taka það fram að BÍ/Bolungarvík ætlar sér sigur í deildinni í ár, sjáum bara hvernig það fer.
Eitthvað að lokum?
Þið sjáið BÍ/Bolunarvík í 2. Deild að ári.
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Leiknir R. (15.júlí)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)
2.deild:
Afturelding (4.júlí)
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
ÍR (4.júlí)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
Dalvík/Reynir (11.júlí)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Spyrnir (1.júlí)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)



