Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 18. júlí 2008 15:22
Magnús Már Einarsson
Framherji KS/Leifturs átti góðan leik í markinu
Oliver Jaeger fagnar marki fyrr í sumar.
Oliver Jaeger fagnar marki fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Ragnar Hauksson.
Ragnar Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Oliver Jaeger framherji KS/Leifturs varð að bregða sér á milli stanganna þegar að liðið gerði markalaust jafntefli gegn Þór í fyrstu deild í gær.

Þorvaldur Þorsteinsson markvörður KS/Leifturs fékk rauða spjaldið þegar að um tuttugu mínútur voru til leiksloka og þar sem enginn varamarkvörður var á bekknum þá fór Jaeger í markið og varði nokkrum sinnum meistaralega.

,,Ég var mjög heppinn. Ég spilaði í tuttugu mínútur og varði nokkrum sinnum," sagði Oliver skellihlægjandi þegar að Fótbolti.net heyrði í honum í dag.

,,Bróðir minn var markvörður og besti vinur minn í Sviss er líka markvörður. Þegar ég hef verið að leika mér í fótbolta hef ég stundum verið í marki en þetta var í fyrsta skipti sem ég er í marki í alvöru leik," sagði Oliver sem kann vel við sig á Ólafsfirði.

,,Það er mjög gott og vingjarnlegt fólk hér. Þetta er lítill bær en þetta er meiri reynsla fyrir mig og ég er ánægður."

Ragnar Hauksson þjálfari KS/Leifturs ákvað að setja Oliver í markið í gær án þess að vita mikið um markmannshæfileika hans.

,,Ég hafði aldrei séð hann í marki. Ólafsfirðingar voru búnir að segja að þegar hann hefði verið að leika sér í markinu hefði hann verið öflugur og út frá því var þessi ákvörðun tekinn," sagði Ragnar en Oliver sló í gegn í markinu þegar nokkrir leikmenn liðsins voru að æfa skot fyrr í sumar.

,,Fyrir mánuði vorum við fjórir eða fimm á skotæfingu og við höfðum engan markvörð. Ég fór í markið og varði marga bolta. Þeir grínuðust og sögðu að nú væri ég nýji varamarkvörðurinn og í gær var ég beðinn um að fara í markið. Ég var heppinn og við héldum stiginu," sagði Oliver sem er tilbúinn að fara aftur í markið ef sú staða kemur upp.

,,Ef ég get hjálpað liðinu þá geri ég það. Ég er ánægður þegar að ég spila fótbolta og það skiptir ekki máli hvort það er í vörninni, sókninni eða í markinu."

Róbert Örn Óskarsson er farinn frá KS/Leiftri og þar sem Þorvaldur tekur út leikbann í næsta leik er óvíst hver mun standa á milli stanganna gegn Stjörnunni í næstu viku þar sem enginn markvörður er í herbúðum liðsins.

,,Við erum að reyna að græja þessi mál en ef allt þrýtur þá fer Oliver í markið," sagði Ragnar Hauksson léttur í bragði.
Slapp
banner