Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni er ferðinni heitið á Blönduós og kíkt á stemninguna hjá Hvöt í 2.deildinni.
Jens Elvar Sævarsson spilandi þjálfari Hvatar svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemningin hjá Hvöt þessa dagana?
Stemningin er bara mjög góð, hópurinn vel samstilltur, menn að leggja sig fram og hafa gaman af og njóta þess að spila fótbolta. Það að sjálfsögðu spilar stórt inn að við höfum byrjað mótið með ágætum, og skemmtilegur hópur með mikið af vitleysingum, þó á jákvæðan hátt, sem hafa tekið vel á móti erlendu leikmönnunum okkar og þeir sem komu til okkar hafa smollið vel inn í okkar leik.
Er mikill fótboltaáhugi á Blönduósi?
Það er mikill áhugi hjá þeim sem mæta, og mér finnst vera aukning þar á. Við sjáum fleiri og fleiri andlit með hverjum leiknum og það spilar inn í að við erum með mikla skemmtikrafta og skemmtilega karaktera í okkar liði sem ég er nokkuð viss um að séu að trekkja að ákveðna hópa á völlinn.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Já ætli ég verði ekki að segja það ég sé nokkuð sáttur með okkar leiki þó maður vilji alltaf meira en ef einhver hefði rétt mér ávísun fyrir mótið á annað sætið að loknum 1/3 af mótinu þá hefði ég nú alveg tekið því. En ég neita því ekki að ég er frekar ósáttur við ákveðin töpuð stig í sumar og leikmenn okkar eru fullmeðvitaðir um þau stig.
Hefur verið erfitt að móta liðið eftir miklar breytingar í vetur?
Já og nei, okkur gekk svona þokkalega í vetur í deildarbikarnum og vorum að spila ágætis bolta þannig lagað. Við skoðuðum marga leikmenn í vetur og fengum þónokkra til liðs við okkur sem hafa smollið vel inn í liðið hjá okkur. Annars vorum við mikið að gefa mönnum sénsa og undirbúa okkur fyrir íslandsmótið með þessum vorleikjum og vitað var að við fengjum 2 erlenda menn seint inn sem væri ákveðið lotto og það má segja að við höfum unnið 7.faldapottinn í lottoinu. Annars er nú ekki flókið að byðja menn um að leggja sig fram og hafa gaman af að hlaupa á eftir tuðrunni.
Hvernig kannt þú vi þig sem þjálfari og hvernig hafa fyrstu mánuðirnir gengið í þessari nýju stöðu?
Ég kann bara mjög vel við mig í þessari stöðu, það þarf auðvitað margt að ganga upp til þess að allir séu bæði sáttir með mig í starfi og að standa í mikilli keyrslu í alla þessa leiki umm alla landsbyggðina. Ég er með mjög mikið af frábæru fólki á bakvið mig sem redda öllu sem beðið er um. Gengið hefur verið fínt á fyrstu mánuðunum, fórum í undaúrslit í deildarbikar, spiluðum fullt af æfingaleikjum sem gengu þokkalega og svo höfum við byrjað mótið með miklum ágætum og komumst 32-úrslit þar sem við spiluðum fínan og skemmtilegan leik geng ungu og spræku blikaliði.
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Einn okkar styrkleika er klárlega samstaða og mjög samstilltur leikmannahópur sem vinnur hver fyrir annan svo við getum notið þess að spila fótbolta og náð í leið góðum úrlsitum. Fleiri styrkleikar verða ekki gefnir upp hér á veraldarvefnum:)
Hver eru markmið ykkar fyrir sumarið?
Við settum okkur markmið sem við ákváðum að hafa útaf fyrir okkur og vinna að þeim í sameiningu, en að sjálfsögðu erum við ekkert öðruvísi en önnur lið með það að gera að við förum í alla leiki til þess að vinna þá, það er ekkert flóknara en það, en á móti gerum við okkur grein hvar við þurfum að passa okkur.
Hvað hefur komið þér mest á óvart í byrjun 2.deildarinnar?
Það hefur í sjálfu sér lítið komið á óvart þannig lagað Reynis menn hafa byrjað með látum og það er kanski það sem kemur smá á óvart að þeir séu komnir með smá forskot svo snemma, eins kemur það frekar á óvart að við skulum vera búnir að ná þessum úrslitum án okkar besta leikmanns og yfirburðar sóknarmanns en menn hafa leyst það mjög vel og við eigum hann inni.
Hvaða lið telur þú að séu sigurstranglegust í 2.deildinni í sumar?
Ég myndi nú telja það ”yfirmenn” hjá Gróttu og Reyni í sandgerði hefðu eitthvað með það að segja ef þeirra lið færu ekki upp með þessa leikmanna hópa og þá aura sem fleygt hefur verið í leikmenn. Eins tel ég Njarðvíkingana fyrirfram mjög sterka ásamt fleiri liðum og þegar liðið hefur á mótið hefur það sýnt sig að flest lið geta strítt þeim liðum sem eiga að heita betri þannig að það getur allt gerst.
Eitthvað að að lokum?
Ég hvet alla þó blönduósinga sem vettlingi geta valdið, hvar sem er á landinu, að hópa sig saman og koma og styðja okkur á vellinum og horfa í leiðinni á stórbrotna skemmtikrafta í leik :)
Eldra úr liðnum "Hvað er að frétta?"
1.deild:
Fjarðabyggð (10.júní)
ÍR (29.maí)
KA (15.maí)
Leiknir R. (29.maí)
Víkingur Ólafsvík (26.mars)
Þór (15.maí)
2.deild:
BÍ/Bolungarvík (29.apríl)
Grótta (16.júní)
Hamar (21.apríl)
ÍH/HV (17.apríl)
Reynir Sandgerði (3.apríl)
Víðir Garði (21.maí)
3.deild:
Álftanes (17.júní)
Árborg (14.maí)
Berserkir (1.maí)
Draupnir (25.mars)
Einherji (16.apríl)
Huginn (29.maí)
KB (11.júní)
KFG (10.júní)
KFK (20.maí)
KFR (31.mars)
KFS (30.apríl)
Leiknir Fáskrúðsfirði (12.júní)
Léttir (8.maí)
Skallagrímur (11.júní)


