Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Í dag er komið að því að kíkja á stemninguna hjá Þrótti Vogum en Marteinn Ægisson formaður þeirra svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemningin hjá Þrótti þessa dagana? Hún er ótrúlega góð þessa daganna, enda spilum við á einum besta grasvelli landsins. Völlurinn er líka ekki kallaður dúkurinn fyrir ekki neitt. Hópurinn nær vel saman og góður mórall.
Svo má ekki gleyma að Þórir Hauks er meiddur og við það lagaðist mórallinn til mikilla muna. Enda kappinn frá næstu 4-6 vikurnar.
Er mikill fótboltaáhugi í Vogum? Já, hann hefur aukist til mikilla muna sérstaklega eftir að Eiður Smári tók bensín á N1 STÖÐINNI Í Vogum árið 2006. Þá urðum við að gera eitthvað og úr varð að við fórum í 3.deildina 2008. Eins erum við með yngriflokka starf. Bæði karla og kvenna, og má með sanni segja að framtíðin sé björt í Vogunum. Stefnan er að byrja með oldboys 2010 en það er líka bara vegna þess að við erum að reyna fá Gunna Helga til að hætta.
Er stuðningurinn við liðið góður? Hann er mjög góður, bæjarbúar fylgjast vel með og við eigum góða stuðningsmenn. Eins erum við með góða að td. heitir heimavöllur okkar Nesbyggðarvöllur. Fyrirtækin í Vogunum eru mjög góð gagnvart okkur. Án þessara fyrirtækja gætum við ekki verið að standa í þessu. Erum mjög þakklátir fyrir stuðninginn.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar? Já og nei, við erum ekki sáttir að vera ekki búnir að vinna á heimavelli. En það var eitthvað sem við ætluðum að laga í sumar. En útivalla árangurinn er mjög góður hjá okkur. Það er nóg eftir af mótinu og allir eru að taka stig af öllum. Við munum koma sterkir til baka og gera atlögu að fyrstu 2.sætunum í riðlinum.
Hver er helsti styrkleiki ykkar? Því miður þá gefum við það ekki upp. Fólk verður bara mæta á völlinn til að sjá það. Engar hernaðarupplýsingar gefnar upp. Það er Jakob sem bannar allt slíkt.
Það vita reyndar flestir um Óla Jó og það er ekkert leyndarmál lengur. Svo er ákveðinn styrkleiki að þjálfari okkar tekur 300 kg. í bekk !!!
Hver eru markmið ykkar fyrir sumarið? Ná 25 stigum og sjá hverju það skilar okkur. Heimavöllurinn hefur verið að stríða okkur og það er eitthvað sem við ætlum að laga. Næsti leikur er gegn Álftanes heima , þeir eru með eitt af betri 3.deildarliðunum í ár. Eru mjög líklegir að fara alla leið í sumar. Við munum sýna það í næsta leik að við getum unnið þá bestu heima , og við ætlum að vera fyrsta liðið sem leggur þá að velli í sumar. Annars erum við að vinna eftir 5 ára prógrammi sem hannað er af Louis Van Gal þeim Hollenska. Það er uppbyggingarstarf í gangi. Við erum mjög jákvæðir og það mun fleyta okkur langt í okkar uppbyggingar starfsemi. Við erum með fleiri markmið í gangi td.að fjölga áhorfendum á heimaleikjunum.
Hvað hefur komið þér mest á óvart í byrjun deildarinnar? Það getur allt gerst í þessari deild. Reyndar hafa KFR komið á óvart, áttum ekki von á að þeir væru með svona sterkt lið. Ungir strákar og greinilegt að Viktor hefur verið að gera rétta hluti í uppeldisstarfinu fyrir austan. Það verður gaman að sjá hvert þetta lið verður komið eftir 2-3 ár.
Það eru allir að taka stig af öllum í riðlinum . Held reyndar að KFS eiga eftir að vera sterkari og þegar önnur lið fara komast í betra form þá fara Álftanes að tapa leikjum. En þeir eru klárlega það lið sem er í besta forminu. Verð að hrósa Álftnesingum fyrir heimavöllinn þeirra, svipar mjög til heimavallar okkar. Okkar riðill er hvað jafnastur í 3.deildinni. Ég segi það að hið óvænta eigi ennþá eftir að gerast.
Hvaða lið telur þú að séu sigurstranglegust í 3.deildinni í sumar? Ég skipti þessu í 3.hluta Hamar, Völsungur og Álftanes er hvað mest líklegust að fara upp.Svo koma Ýmir,KV,KFS,Hamrarnir/vinir . Svo kæmi manni ekkert á óvart ef Skallagrímur, Berserkir, Ægir jafnvel Einherji myndu stríða líklegri liðunum eitthvað.
Kæmi mér ekki á óvart að það muni koma liðunum til góða sem fara uppúr B-riðlinum. Riðilinn er svo jafn. Þegar við byrjum að hala inn stigin á heimavelli þá ættum við að geta farið alla leið.
Eitthvað að að lokum?
Þegar gestliðin koma á Nesbyggðarvöll. Muna hita ekki upp í teignum. Við höfðum mikið fyrir því að koma vellinum í það frábæra ástand sem hann er í. Ef andstæðingar okkar verða reiðir og pirraðir. Ekki láta það bitna á auglýsingaspjöldunum.
Fótboltastelpur ATH Arnar Arnórs 690-3609 er á lausu "gangandi kjötstykki með bullandi tilfinningar", myndir af kauða inná throtturv.net , þær sem búa í miðbænum eiga meiri séns þar sem kauði er bíllaus þessa daganna. Hann er einnig með facebook.
Eldra úr liðnum "Hvað er að frétta?"
1.deild:
Fjarðabyggð (10.júní)
ÍR (29.maí)
KA (15.maí)
Leiknir R. (29.maí)
Víkingur Ólafsvík (26.mars)
Þór (15.maí)
2.deild:
BÍ/Bolungarvík (29.apríl)
Grótta (16.júní)
Hamar (21.apríl)
Hvöt (24.júní)
ÍH/HV (17.apríl)
Reynir Sandgerði (3.apríl)
Víðir Garði (21.maí)
3.deild:
Álftanes (17.júní)
Árborg (14.maí)
Berserkir (1.maí)
Draupnir (25.mars)
Einherji (16.apríl)
Huginn (29.maí)
KB (11.júní)
KFG (10.júní)
KFK (20.maí)
KFR (31.mars)
KFS (30.apríl)
Leiknir Fáskrúðsfirði (12.júní)
Léttir (8.maí)
Skallagrímur (11.júní)



