Joao Pedro í forgangi hjá Liverpool - Man Utd setur verðmiða á Rashford - Real Madrid missir vonina gagnvart Davies
Breiðablik
5
0
BÍ/Bolungarvík
Petar Rnkovic '12 , víti 1-0
Sverrir Ingi Ingason '15 2-0
Davíð Kristján Ólafsson '44 3-0
Haukur Baldvinsson '62 4-0
Guðmundur Pétursson '68 5-0
08.06.2012  -  19:15
Kópavogsvöllur
Borgunarbikarinn
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Byrjunarlið:
Olgeir Sigurgeirsson
2. Gísli Páll Helgason
4. Damir Muminovic
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('33)
18. Finnur Orri Margeirsson
19. Kristinn Jónsson
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
10. Árni Vilhjálmsson
15. Davíð Kristján Ólafsson ('33)
17. Elvar Páll Sigurðsson ('75)
77. Þórður Steinar Hreiðarsson

Liðsstjórn:
Sigmar Ingi Sigurðarson

Gul spjöld:
Damir Muminovic ('35)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Skástrikið auðveldur munnbiti Blika
Breiðablik átti ekki í vandræðum með BÍ/Bolungarvík í bikarnum í kvöld. Þegar þessi lið mættust í Lengjubikarnum vann Kópavogsliðið sjö marka sigur og voru yfirburðirnir svipaðir í þessum leik.

5-0 stórsigur Breiðabliks gegn slöku liði BÍ/Bolungarvíkur.

Blikar skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleiknum en með réttu hefðu þau átt að vera svona helmingi fleiri. Gestirnir voru ákaflega máttlausir og varnarlína þeirra leit vægast sagt mjög illa út.

Blikar fengu góða æfingu í að halda boltanum innan liðs og sækja. Auk markanna þriggja fóru þeir illa með dauðafæri, létu bjarga frá sér á línu ásamt því að eiga skalla í slá.

Skástrikið virtist einfaldlega ekki hafa trú á verkefninu og lenti undir eftir tólf mínútur þegar Petar Rnkovic skoraði af öryggi úr vítaspyrnu sem hann krækti í sjálfur.

Þremur mínútum síðar skoraði miðvörðurinn ungi Sverrir Ingi Ingason með skalla þegar hann hirti frákastið eftir markvörslu Þórðar Ingasonar.

Rétt fyrir hálfleik skoraði Rafn Andri Haraldsson þriðja markið í kjölfarið á hornspyrnu eftir skammarlegan varnarleik Skástriksins.

Seinni hálfleikurinn var á sömu nótum. Breiðablik með alla stjórn á leiknum og Kristinn Jónsson klúðraði dauðafæri áður en hann lagði upp fjórða markið sem Haukur Baldvinsson skoraði.

Lokaorðið átti varamaðurinn Guðmundur Pétursson sem var að skora sitt fyrsta mark á tímabilinu. Hann skoraði með skalla eftir frábæra fyrirgjöf en Guðmundur er að koma til baka eftir erfið meiðsli.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/game.php?action=view_article&id=353#ixzz1xF2TZWyT
Byrjunarlið:
4. Hafsteinn Rúnar Helgason
9. Andri Rúnar Bjarnason ('66)
10. Alexander Veigar Þórarinsson
13. Pétur Georg Markan
16. Daniel Osafo-Badu
21. Dennis Nielsen
23. Gunnlaugur Jónasson ('78)

Varamenn:
12. Bjarki Pétursson (m)
6. Gunnar Már Elíasson ('70)
7. Sigurgeir Sveinn Gíslason
15. Nikulás Jónsson ('66)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Ingimar Elí Hlynsson ('70)

Rauð spjöld: