Grindavík
2
4
Víkingur Ó.
0-1 Harley Willard '5
Josip Zeba '6 1-1
1-2 Bjartur Bjarmi Barkarson '29
1-3 Kareem Isiaka '43
Gabriel Dan Robinson '48 2-3
2-4 Kareem Isiaka '82
18.09.2021  -  14:00
Grindavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: Grenjandi rigning og smá vindur á Grindvískan mælikvarða
Dómari: Valdimar Pálsson
Maður leiksins: Bjartur Bjarmi Barkarson
Byrjunarlið:
Óliver Berg Sigurðsson ('71)
1. Aron Dagur Birnuson
2. Gabriel Dan Robinson
5. Nemanja Latinovic ('63)
6. Viktor Guðberg Hauksson
7. Sindri Björnsson ('84)
8. Tiago Fernandes
9. Josip Zeba
11. Símon Logi Thasaphong
15. Freyr Jónsson ('84)
26. Sigurjón Rúnarsson

Varamenn:
24. Ingólfur Hávarðarson (m)
4. Pálmar Sveinsson ('84)
19. Andri Daði Rúriksson ('71)
27. Luka Sapina ('84)
33. Sigurður Bjartur Hallsson

Liðsstjórn:
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (Þ)
Benóný Þórhallsson
Marinó Axel Helgason
Maciej Majewski
Haukur Guðberg Einarsson
Vladimir Vuckovic
Ólafur Tryggvi Brynjólfsson

Gul spjöld:
Símon Logi Thasaphong ('89)

Rauð spjöld:
@SEinarsson Sverrir Örn Einarsson
Skýrslan: Sundknattleikur á Grindavíkurvelli
Hvað réði úrslitum?
Víkingar virkuðu bara ögn beittari og vildu þetta meira í dag. En aðstæður spiluðu stóra rullu líka sem og fjarvera lykilmanna í liði Grindavíkur. En Víkingar vel að sigrinum komnir.
Bestu leikmenn
1. Bjartur Bjarmi Barkarson
Mark og stoðsendingar í dag. Strákur sem eflaust margir fyrir vestan horfa til að leiða endurreisn Víkinga.
2. Pollurinn
Stoðsending í fyrri hálfleik og fín varnarvinna í þeim seinni hjá pollinum við teiginn norðan megin á Grindavíkurvelli. Spaugilegt að leikmenn hafi þó þrjóskast við í 90 mínútur að reyna að spila í gegnum hann þegar boltinn stöðvaðist um leið og hann kom í pollinn strax á fyrstu mínútum leiksins. En það gerði leikinn skemmtilegan og fyndin áhorfs.
Atvikið
91.mínúta Víkingar sleppa í gegn og eru þrír gegn Aroni Degi en pollurinn með stórbrotinn varnarleik og stöðvar þá. Þeir fá annað tækifæri í teignum og ná skoti en pollurinn aftur með stórfenglega björgun og heimamenn sleppa. Blaðamannastúkan veltist um af hlátri og skemmti sér konunglega.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar enda mótið með sæmd og gefa sér góða ástæðu til þess að fagna í kvöld. Grindvíkingar fara inn í veturinn með vonbrigðatímabil á bakinu og þurfa að ýta á restart með nýjum þjáfara.
Vondur dagur
Ivan Jugovic vallarstjóri Grindavíkur sagði þegar skammt var eftir til leiksloka að hann hlakkaði ekki til að mæta í vinnuna á mánudag. Horfði á rennblautt grasið tætast upp í leiknum og verður vinnan ærleg að undirbúa völlinn fyrir veturinn.
Dómarinn - 7
Valdimar og hans teymi var kalt á vellinum í dag en stóðu sig með prýði fyrir því. Fínasti leikur hjá þeim.
Byrjunarlið:
12. Konráð Ragnarsson (m)
5. Emmanuel Eli Keke
6. Anel Crnac
7. Mikael Hrafn Helgason (f)
10. Bjarni Þór Hafstein
11. Harley Willard
14. Kareem Isiaka
15. Berti Brandon Diau
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
21. Jose Javier Amat Domenech
33. Juan Jose Duco ('55)

Varamenn:
1. Marvin Darri Steinarsson
8. Guðfinnur Þór Leósson ('55)
11. Kristófer Máni Atlason
17. Brynjar Vilhjálmsson
18. Simon Dominguez Colina
19. Marteinn Theodórsson
23. Ísak Máni Guðjónsson

Liðsstjórn:
Brynjar Kristmundsson (Þ)
Guðjón Þórðarson (Þ)
Antonio Maria Ferrao Grave
Kristján Björn Ríkharðsson
Þorsteinn Haukur Harðarson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: