Þór
1
1
Grindavík
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson '27
Jewook Woo '94 1-1
Thiago Dylan Ceijas '97
Alfreð Elías Jóhannsson '98
20.05.2022  -  19:30
SaltPay-völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og blíða!
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Orri Sigurjónsson ('46)
3. Birgir Ómar Hlynsson
7. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('67)
8. Nikola Kristinn Stojanovic
11. Harley Willard
15. Kristófer Kristjánsson
18. Elvar Baldvinsson
21. Sigfús Fannar Gunnarsson ('46)
23. Ásgeir Marinó Baldvinsson ('74)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m)
2. Elmar Þór Jónsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('46)
5. Jordan Damachoua
6. Sammie Thomas McLeod ('67)
9. Jewook Woo ('46)
10. Aron Ingi Magnússon ('74)

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Elín Rós Jónasdóttir
Gestur Örn Arason
Páll Hólm Sigurðarson
Jónas Leifur Sigursteinsson

Gul spjöld:
Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('55)
Hermann Helgi Rúnarsson ('83)

Rauð spjöld:
@danielmagg77 Daníel Smári Magnússon
Skýrslan: Woo til bjargar í Þorpinu
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar neituðu að gefast upp þó að stigin virtust ætla að detta Grindavíkurmegin. Grindvíkingar höfðu varist vel í síðari hálfleik, en samskiptaleysi í vörninni olli því að Jewook Woo gafst færi á að jafna leikinn sem að Kóreumaðurinn þáði með þökkum.
Bestu leikmenn
1. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
Var flottur í dag. Í fyrri hálfleik fór flest allt í gegnum hann og hann kláraði færið sitt vel.
2. Hermann Helgi Rúnarsson
Kom með mikið Þórshjarta inn í lið heimamanna þegar að Þorlákur skipti honum inná í hálfleik. Mikil yfirferð á honum og hann lét finna vel fyrir sér.
Atvikið
Jöfnunarmark Woo og það sem á eftir fylgdi. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar að Woo jafnaði leikinn. Grindvíkingum fannst vera brotið á Örvari Loga stuttu áður en að boltanum er lúðrað upp völlinn til Woo, en Sigurður Hjörtur var ekki á sama máli. Eftir að fyrirliði Grindavíkur, Sigurjón Rúnarsson, hafði fengið aðhlynningu hélt leikurinn áfram og það var greinilegt að það sauð á Grindvíkingum. Thiago Dylan Ceijas missti algjörlega hausinn og henti sér í fáránlega tæklingu sem að uppskar verðskuldað rautt spjald. Þá lét annar skapstór Grindvíkingur skapið hlaupa með sig í gönur og lét það bitna á varamannaskýli liðsins. Við það fékk Alfreð Elías, þjálfari liðsins, rautt spjald. Alvöru vitleysa.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar eru nú með 4 stig eftir þrjá leiki og fara næst til Ísafjarðar og etja þar kappi við Vestra. Grindvíkingar eru með stigi meira og ennþá taplausir. Þeir eiga næst heimaleik gegn Fylki. Mótið er ungt og nóg á eftir að ganga á.
Vondur dagur
Sóknir liðanna munu eiga betri leiki en í kvöld. Það komst lítill taktur í spil og leikfléttur og úr varð smá kraðak. Grindavík ofan á í fyrri, en Þórsarar voru talsvert öflugri í þeim síðari. Lítið um færi, en ekkert vantaði uppá baráttuna.
Dómarinn - 7
Fannst Sigurður hafa ágæt tök á þessum leik.
Byrjunarlið:
Vladimir Dimitrovski
1. Aron Dagur Birnuson
5. Nemanja Latinovic ('77)
6. Viktor Guðberg Hauksson
7. Thiago Dylan Ceijas
11. Símon Logi Thasaphong
11. Tómas Leó Ásgeirsson ('67)
12. Örvar Logi Örvarsson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('89)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Kenan Turudija

Varamenn:
8. Hilmar Andrew McShane
9. Josip Zeba ('89)
14. Kristófer Páll Viðarsson ('77)
15. Freyr Jónsson
23. Aron Jóhannsson ('67)

Liðsstjórn:
Alfreð Elías Jóhannsson (Þ)
Marinó Axel Helgason
Maciej Majewski
Milan Stefán Jankovic
Hjörtur Waltersson
Vladimir Vuckovic
Óttar Guðlaugsson

Gul spjöld:
Símon Logi Thasaphong ('23)
Kenan Turudija ('34)
Nemanja Latinovic ('76)

Rauð spjöld:
Thiago Dylan Ceijas ('97)
Alfreð Elías Jóhannsson ('98)