Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Leiknir F.
1
0
Höttur
Arkadiusz Jan Grzelak '24 1-0
Carlos Carrasco Rodriguez '96
29.06.2018  -  19:15
Fjarðabyggðarhöllin
2. deild karla
Dómari: Atli Haukur Arnarsson
Maður leiksins: Arek Jan
Byrjunarlið:
1. Robert Winogrodzki (m)
5. Ingvi Ingólfsson
5. Almar Daði Jónsson
6. Carlos Carrasco Rodriguez
6. Hilmar Freyr Bjartþórsson
7. Arkadiusz Jan Grzelak (f)
11. Sæþór Ívan Viðarsson
16. Unnar Ari Hansson
18. Jesus Guerrero Suarez
21. Darius Jankauskas
23. Dagur Ingi Valsson

Varamenn:
12. Bergsveinn Ás Hafliðason (m)
2. Guðmundur Arnar Hjálmarsson
3. Garðar Logi Ólafsson
6. Jón Bragi Magnússon
10. Marteinn Már Sverrisson
21. Emil Þór Guðmundsson
22. Ásgeir Páll Magnússon

Liðsstjórn:
Viðar Jónsson (Þ)
Atli Dagur Ásmundsson
Svanur Freyr Árnason
Hlynur Bjarnason
Guðbjörg Rós Guðjónsdóttir

Gul spjöld:
Viðar Jónsson ('90)

Rauð spjöld:
Carlos Carrasco Rodriguez ('96)
96. mín
Gleymdi að skrá skiptingarnar. Garðar Logi og Hlynur Bjarnason komu inná fyrir Almar Daða og Sæþór ívan hjá leikni.

Hrafn Aron kom inná fyrir Leikmann númer 23 hjá Hetti.
96. mín Rautt spjald: Carlos Carrasco Rodriguez (Leiknir F.)
Carlos Carrasco fær hér beint rautt spjald eftir leik. Sá ekki hvað hann gerði en það hlýtur að hafa verið einhvað slæmt, hann á það til að missa hausinn.
Leik lokið!
Leik lokið með fínum 1-0 sigri Leiknis á Hetti. Hattarar geta verið svekktir með færanýtinguna sem og Leiknir... Leiknir hefðu getað skorað fleiri og Hattarar hefðu getað sett mörk líka með sma heppni.
93. mín
Þetta virðist vera renna út hér, Hattarar reyna langa bolta inná teig leiknis en leiknismenn eru búnir að vera grimmari í boxinu í þessum leik.
93. mín
Dagur aftur með geggjaðan sprett upp vinstri kantinn og rennir boltanum fyrir markið en enginn leiknismaður mættur.
90. mín Gult spjald: Viðar Jónsson (Leiknir F.)
Viddi fær spjald fyrir kjaft og Svanur aðstoðarmaður Vidda líka.
86. mín
Suarez keyrir í bakið á Steinari Aron og hattarar vilja fá víti en fá aukaspyrnu á stórhættulegum í staðinn og petar tekur spyrnuna og robert ver vel. nauðvörn hjá leikni þessar mínútur og hattarar leita að marki!
83. mín
Horn sem leiknir fær þegar 7 mín eru eftir af venjulegum leiktíma. En þeir spila stutt og ekkert gerist.
82. mín
Leikurinn í járnum hérna þessar mínútur. Liðin skiptast á sóknum.
78. mín
þarna munaði engu að hattarar myndu jafna!! Taka aukasspyrnu hratt útá kanti og koma honum upp kantinn boltinn berst inní teiginn á Steinar aron sem á skot en leiknir bjarga á línu!
76. mín
Dagur ingi enn og aftur með geggjaðan sprett sem skapar næstum því mark en hattarar sleppa enn og aftur.
74. mín
Carlos Carrasco leikmaður leiknis er frábær fótboltamaður en losar boltann eiginlega aldrei frá sér sem er leiðinnlegt fyrir samherja hans oft á tíðum.
73. mín
Francisco Javier með máttlaust skot sem robert ver auðveldlega.... held að hattarar verði að taka skotæfingu í næstu viku og það nokkrar!
70. mín
Aukaspyrna hjá hetti rétt fyrir utan teig, Brynjar árna tók spyrnuna og spyrnir boltanum rétt yfir vegg leiknismanna og boltinn fer rétt framhjá!
69. mín
Leikurinn jafn að vissu leyti... en leiknir skapa sér miklu betri færi þegar þeir sækja... hattarar reyna bara skot fyrir utan sem eru oftast léleg.
67. mín
Leiknir með mjög góða sókn! sem endar þannig að carlos carrasco er kominn í góða stöðu inní vítateig hattar, reynir fasta sendingu fyrir sem fer í gegnum allan pakkan og almar rétt missti af honum!
65. mín
Dagur ingi með góðan kross frá vinstri á fjær á sæþór ívan sem skallar framhjá máttlausum skalla.
63. mín
ignacio gonzalez með skot fyrir utan teig en beint á robert sem grípur vel.
59. mín
Almar Daði liggur meiddur hérna útí horni en stendur upp og bítur á jaxlinn...... Ekki það að ég hafi búist við öðru frá honum. Enda ljónharður.
56. mín
Eins og ég sé leikinn þá er eins og hattarar séu ekki með neitt leikplan, vona bara það besta þegar þeir fara í sókn. tilviljunarkennt hjá þeim.
54. mín
Dagur ingi með geggjaðan sprett upp kantinn og fer illa með varnarmenn hattar, keyrir síðan inná teiginn og leggur hann út á carlos carrasco sem skýtur í varnarmann og yfir fer boltinn. Hattarar Heppnir þarna.
51. mín
Brynjar árnason með skot fyrir utan teig sem robert ver vel í marki leiknis.
50. mín
Seinni hálfleikur fer rólega af stað...
48. mín
Máttlaust skot frá Halldóri Bjarka sem fer framhjá markinu.
45. mín
Seinni byrjaður!
45. mín
Hálfleikur
hálfleikur! 1-0 fyrir leikni, höttur eru samt að sækja í sig veðrið
45. mín
Hattarar vilja hendi á leiknismenn og víti! Þori ekki að dæma um það úr sjónarhorni mínu!
43. mín
Svanur liðstjóri leiknis hoppar hæð sína yfir dómgæslunni, virðist ósáttur, vil þó að það komi fram að svanur er mjög geð góður maður yfirleitt.
42. mín
Leiknir aftur stálheppnir! Brynjar árna skyndilega komin í gott færi inní teig leiknismanna en hann skóflar honum yfir!
38. mín
Þarna voru Leiknismenn stálheppnir, Steinar Aron gerir vel snýr á varnarmann leiknis og skýtur með vinstri en róbert rétt nær að verja til hliðar.... þar var hattari sem ætlaði að fylgja á eftir en náði ekki til boltans!
35. mín
Hattarar reyna að sækja en gengur lítið sem ekkert hjá þeim. Leiknir gjörsamlega með þá í vasanum.
34. mín
Höttur nálægt því að sleppa í gegn en robert vel á verði í markinu og kemur út og handsamar boltan
32. mín Gult spjald: Halldór Bjarki Guðmundsson (Höttur)
Tekur dag inga niður og stoppar skyndisókn
28. mín
Höttur fengu aukaspyrnu rétt fyrir utanteig en boltinn í vegginn og í horn frá brynjari árnasyni. Ekkert varð þó úr horninu.
26. mín
Leiknir stjórna leiknum frá A til ö og fannst öllum á vellinum leiknir eiga að fá víti þegar sæþór ívan er klipptur niður! sá þetta ekki nógu vel..
24. mín MARK!
Arkadiusz Jan Grzelak (Leiknir F.)
Arek á hérna geggjaðan sprett upp allan völlinn nánast og endar á því að setja hann fallega uppí fjærhornið. Glæsilegt mark frá góðum dreng!
22. mín Gult spjald: Miroslav Babic (Höttur)
En fær svo strax spjald fyrir tuð að mér sýndist.
20. mín
Allt brjálað hérna á vellinum eftir ljóta tæklingu frá miroslav babic á Carlos carrasco, en dómarinn sleppur honum með tiltal!
16. mín
Höttur hafa átt nokkrar sóknir en endar alltaf með fyrirgjöf sem leiknir skallar auðveldlega í burtu.
13. mín
Leiknir með góða skyndisókn eftir að höttur reyndu fyrirgjöf, skallað frá og endar með skoti frá hilmari freyr yfir markið. leiknir töluvert sprækari
10. mín
Sæþór ívan tekinn niður rétt fyrir utan teig hattar. Darius tók spyrnuna en boltinn fer yfir markið.
9. mín
leiknir stjórna leiknum þessa stundina og Carlos carrasco átti skot í varnarmann sem fer rétt framhjá! Hattarar aftur heppnir þarna.
7. mín
Leiknir sprækir núna og þjarma að hötturum... fá horn og hattarar bjarga á línu eftir skalla frá leiknismönnum! þarna sluppu hattarar.
4. mín
Ekkert varð úr aukaspyrnunni og robert spyrnir frá marki leiknis
4. mín
Hattarar eiga aukaspyrnu útá kanti... sjáum hvað gerist...
3. mín
þetta byrjar sem hálfgert miðjumoð.... hattarar reyna skot sem endar í innkasti!
1. mín
Leikur hafinn
þetta er farið af stað hér!
Fyrir leik
Liðin fara að ganga hér inná. þetta fer að bresta á... spennið beltin.
Fyrir leik
Leiknir er án povilas krasnovkis sem er að mínu mati búinn að standa uppúr hjá leikni þetta sumarið. En gamla klisjan það kemur maður í manns stað!
Fyrir leik
Liðin eru að koma hér í upphitun, Tónlistinn í botni hér í Fjarðabyggðarhöllinni og einbeytinginn skín úr andlitum leikmanna

Leiknir þurfa á 3 stigum að halda hér í kvöld, Leiknir eru einunigs með 6 stig á meðan höttur er með 9 stig. Leiknir geta jafnað þá á stigum með sigri hér í kvöld.
Fyrir leik
Hér mun fara fram bein textalýsing frá leik Leiknis F og hattar, eins og flestum er kunnugt er þetta nágrannaslagur og verður ekkert gefið eftir. Leikurinn hefst 19:15 og hvetur undirritaður fólk að fjölmenna og gera stemningu!
Byrjunarlið:
12. Aleksandar Marinkovic (m)
2. Petar Mudresa
4. Kristófer Einarsson
5. Francisco Javier Munoz Bernal
6. Gísli Björn Helgason
7. Halldór Bjarki Guðmundsson
8. Miroslav Babic
9. Steinar Aron Magnússon
10. Brynjar Árnason (f)
11. Marteinn Gauti Kárason
23. Ignacio Gonzalez Martinez

Varamenn:
3. Jakob Jóel Þórarinsson
9. Daníel Steinar Kjartansson
13. Heiðar Logi Jónsson
16. Brynjar Þorri Magnússon
17. Hrafn Aron Hrafnsson
19. Arnar Eide Garðarsson
24. Sæbjörn Guðlaugsson

Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Andri Þór Ómarsson

Gul spjöld:
Miroslav Babic ('22)
Halldór Bjarki Guðmundsson ('32)

Rauð spjöld: