Þór/KA
5
0
Grindavík
Anna Rakel Pétursdóttir '43 1-0
Sandra María Jessen '48 2-0
Lára Einarsdóttir '57 3-0
Sandra María Jessen '65 4-0
Sandra Mayor '89 5-0
17.07.2018  -  18:00
Þórsvöllur
Pepsi-deild kvenna
Aðstæður: 13 stiga hiti, logn og sól
Dómari: Vilhelm Adolfsson
Áhorfendur: 394
Maður leiksins: Anna Rakel Pétursdóttir
Byrjunarlið:
Johanna Henriksson
4. Bianca Elissa
8. Lára Einarsdóttir
9. Sandra Mayor
10. Sandra María Jessen (f) ('68)
10. Anna Rakel Pétursdóttir
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir ('58)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
25. Helena Jónsdóttir (m)
25. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
5. Ariana Calderon
14. Margrét Árnadóttir ('68)
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir ('25)

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Ágústa Kristinsdóttir
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Christopher Thomas Harrington

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessari markaveislu er lokið hér á Þórsvellinum með 5-0 sigri Þór/KA. Þær fara á toppinn með þessum sigri en Breiðablik á eftir að spila sinn leik
91. mín
Hröð sókn hjá Grindavík sem endar með fyrirgjöf frá Dröfn en Arna Sif búinn að vera algjör klettur í leiknum og kemur þessu í burtu
90. mín Gult spjald: Steffi Hardy (Grindavík)
Brýtur á Söndru Mayor
89. mín MARK!
Sandra Mayor (Þór/KA)
Stoðsending: Heiða Ragney Viðarsdóttir
Staðan orðinn 5-0 á Þórsvellinum! Nú varð það Sandra Mayor sem klárar færið eftir frekar einfalt spil. Leit ekki vel út fyrir Grindavík hvað þetta var einfalt
89. mín
Grindavík hefur aðeins sótt í sig veðrið síðustu mínútur og ná að halda boltanum aðeins
86. mín
Góð markvarsla hjá Vivane. Margrét með fyrirgjöf á Söndru Mayor sem nær skoti á markið en Viviane gerir vel
86. mín
Grindavík með aukaspyrnu á eigin vallarhelming sem þær setja í átt að teignum en Arna SIf skallar frá
83. mín
Hulda Ósk búinn að vera frábær fyrir Þór/KA í dag og leikur nú á varnarmenn Grindavíkur og chippar svo boltanum inn á Margréti sem nær ekki að klára færið. Geggjaður undirbúningur!
80. mín
María Sól fær fínan bolta inn fyrir vörn Þór/KA en þær koma þessu í innkast.
79. mín
Helga Guðrún liggur eftir og þarf aðhlynningu en er kominn aftur inn á völlinn
76. mín
Fyrsta hornspyrna Grindavík í leiknum. Steffi Hardy stekkur hæst allra og nær skallanum en boltinn yfir markið
74. mín
Margrét reynir hér tvisvar á ná skoti á markið inn í teig Grindavíkur en þær fara fyrir bæði skotinn og koma svo boltanum í burtu
73. mín
Heiða Ragney með skot út í teig en þessi flýgur yfir markið
72. mín
Eftir 70 mínútna leik hefur Grindavík hvorki fengið hornspyrnu né náð skoti á markið
70. mín
Glæsileg sókn hjá Þór/KA sem endar á fjærstönginni þar sem Margrét rennir sér í boltann en er aðeins of sein að ná til boltans
68. mín
Inn:Margrét Árnadóttir (Þór/KA) Út:Sandra María Jessen (Þór/KA)
Sandra búinn að skila góðu dagsverki fyrir sitt lið
65. mín
Inn:Telma Lind Bjarkadóttir (Grindavík) Út:Elena Brynjarsdóttir (Grindavík)
65. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Anna Rakel Pétursdóttir
Þór/KA á aukaspyrnu úti á hægri vægnum. Anna Rakel með sturlaða sendingu fyrir og boltinn dettur fyrir Söndru Jessen sem klárar boltann í netið
63. mín
Linda er kominn aftur inn á
62. mín
Linda Eshun liggur eftir og heldur um höfuð sitt eftir að hafa skallað boltann í burtu, lenti þarna örugglega saman við Söndru Jessen
62. mín
Hulda Björg með frábæran bolta fyrir en Sandra nær ekki til boltans
60. mín
Inn:Madeline Keane (Grindavík) Út:Elísabet Ósk Gunnþórsdóttir (Grindavík)
58. mín
Inn:Ágústa Kristinsdóttir (Þór/KA) Út:Lillý Rut Hlynsdóttir (Þór/KA)
Ágústa fær síðasta hálftímann
57. mín MARK!
Lára Einarsdóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Anna Rakel Pétursdóttir
Þriðja markið komið!! Eftir hornspyrnu nær Hulda Björg skalla á markið sem er varið á línu en Lára er fyrst að átta sig og kemur þessum yfir línuna
56. mín
Þór/KA með áttundu hornspyrnu sína í þessum leik
53. mín
María Sól kemst svo inn í sendingu og keyrir í átt að marki Þór/KA en Arna Sif nær að stoppa hana
52. mín
Eftir þessi síðustu skrif nær Grindavík að halda boltanum vel innan liðsins og koma sér upp allan völlinn. Koma boltanum fyrir en ná ekki að gera sér meira mat úr því
51. mín
Seinni hálfleikur byrjar eins og sá fyrri, þetta er mikill einstefna og Grindavík á erfitt með að halda boltanum innan liðsins. Þór/KA er alltaf búið að ná boltanum
49. mín
Fjórar mínútur búnar af þessum seinni hálfleik og Þór/KA á þriðju hornspyrnu sína í þessum hálfleik en Arna Sif skallar þennan framhjá
48. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Lára Einarsdóttir
Lára með hornspyrnu beint á kollinn á Söndru sem sendur hann frábærlega í fjærhornið
47. mín
Frábær bolti inn fyrir Huldu Björg þar sem Sandra Jessen tekur frábært hlaup og nær skotinu en er varið
45. mín
Hulda Björg á fyrsta skot seinni hálfleiksins en það er langt framhjá
45. mín
Leikurinn að hefjast aftur og heimakonu byrja með boltann í þessum síðari hálfleik
45. mín
Það er komið á hreint af hverju markið var dæmt af hér áðan en fáir tóku eftir. Boltinn fer í höndina á Mayor inn í teig. Hins vegar er fólk að tala um framkvæmdina á þessu hjá Vilhelm dómara, það tóku fáir eftir því af hverju hann dæmir markið af. Dómurinn réttur en Vilhelm ekki nógu skýr af hverju hann dæmir markið af, dæmir en bendir samt í átt að miðjunni.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur á Þórsvellinum. Þessi fyrri hálfleikur hefur verið algjör einstefna hjá Þór/KA. Grindavík hefur ekki ennþá náð skoti
44. mín
Grindavík keyrir á Þór/KA í kjölfar marksins og ná flottri og hættulegri sókn. Þær þurfa að gera meira af þessu ef þær ætla að fá eitthvað út úr þessum leik
43. mín MARK!
Anna Rakel Pétursdóttir (Þór/KA)
Það bara hlaut að koma að þessu!
Þór/KA á flotta sókn og eftir daðraðadans í teignum berst boltinn út til Önnu Rakelar sem smellhittir boltann, þessi var alltaf á leiðinni inn
41. mín
Sandra Jessen með sendingu fyrir beint á kollinn á Söndru Mayor sem stóð alein en skallinn í slánna. Boltinn berst út fyrir vítateig þar sem annar góður bolti kemur inn fyrir vörn Grindavíkur og nú er það Hulda Ósk sem nær skoti en beint á Viviane
39. mín
María Sól nær fínum spretti inn á vallarhelming Þór/KA en Lillý vinnur varnavinnuna sína og kemur þessu í innkast
38. mín
Flott samspil Söndru Jessen og Láru Einarsdóttir sem endar með bolta fyrir en Grindavíkur stúlkur eru fyrri til og ná að skalla hann í burtu
37. mín
Þór/KA með aðra hornspyrnu og í þetta skiptið er boltinn sendur út á Önnu Rakel sem kemur með góðan bolta fyrir en hann dettur dauður í teignum. Rannsóknarefni af hverju enginn réðst á þennan bolta í hvorugu liðinu.
34. mín
Þór/KA á hornspyrnu sem er skallað frá. Leikmaður Grindavíkur liggur eftir og heldur um höfuðið og þarf aðhlynningu

Linda Eshun var það en hún er kominn inn á aftur
32. mín
Útspark frá marki Grindavíkur en því miður fyrir þær þá er alltaf sama uppskriftin. Þór/KA er alltaf á undan í boltann og keyrir á þær
30. mín
Frábær tilþrif frá Söndru Jessen upp við hornfána, kemur boltanum á Láru Einars sem settur hann fyrir en boltinn ekki á samherja
29. mín
Þór/KA á hornspyrnu en Grindavík skallar frá
26. mín
Þór/KA hefur sótt látlaust frá fyrstu mínútu og Grindavík virðist hafa lítill svör við því
25. mín
Inn:Heiða Ragney Viðarsdóttir (Þór/KA) Út:Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
Andrea Mist lá á vellinum og þurfti aðhlynningur en hún settist sjálf niður og þarf á endanum skiptingu
17. mín
Markið hins vegar dæmt af og við vitum ekki af hverju hér í blaðamannastúkunni, það er ennþá 0-0
16. mín
Fyrsta mark leiksins er komið að ég hélt!

Allt byrjaði þetta á frábærri sendingu frá Önnu Rakel í gegnum vörn Grindavíkur þar sem Lillý er fyrst á boltann en nær ekki nógu góðu skoti en uppsker hornspyrnu.

Hornspyrnan fer svo yfir pakkann en Sandra Mayor nær fyrst til hans og kemur með góða sendingu á kollinn á Huldu Björg sem skallar hann niðri alveg við stöng en af einhverjum ástæðum er markið dæmt af
14. mín
Það var eins og Elísabet hafi heyrt í mér, hún kemur með geggjaða sendingu í gegnum vörn Þór/KA upp á Elena á vinstri kantinum en hann er aðeins of fastur fyrir Elena sem rétt missir af honum
13. mín
Þór/KA að ná góðu spili ítrekað. Mjög mikið að gera hjá varnarlínu Grindavíkur hér á fyrstu mínútum. Þær verða að fara á ná að halda í boltann lengur, ná engu spili eins og er.
11. mín
Lillý með frábæran bolta upp kantinn þar sem Sandra Mayor tekur við honum og leikur á vörn Grindavíkur en nær ekki skotinu
10. mín
Sandra Mayor með góðan bolta fyrir en Grindavík kemur þessu í burtu og nælir í fyrstu aukaspyrnuna á sínum vallarhelming en boltinn yfir allan völlinn og í fangið á Johanna
7. mín
Fyrstu hornspyrna leiksins á Þór/KA
Viviane í markinu grípur þennan bolta og ekkert verður úr spyrnunni
5. mín
Grindavík kemst ekki lengra með boltann en yfir miðju og þá eru þær búnar að missa hann til Þór/KA sem ná hröðum og góðum sóknum aftur og aftur á þessum fyrstu mínútum leiksins
4. mín
Hulda Björg skýtur fyrir utan teig en það er laflaust og beint á Viviane
3. mín
Hörkufæri sem Lára Einars fær inn í teig Grindarvíkur, fær flottan bolta frá Huldu Björg en settur hann framhjá.
2. mín
Sandra Jessen fær fínan bolta upp í hornið þar sem hún leikur á tvær og nær skotinu en það er beint á Viviane í markinu
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er að hafið á Þórsvellinum

Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Liðin hita hér upp við frábærar aðstæður. 13 stiga hiti, logn og sólin skín. Allir til í fótbolta í svona flottu veðri.

Freddy Mercury og félagar í Queen hljóma í græjunum, allt í toppstandi!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru kominn.

Það er ein breyting á liði Þór/KA frá sigrinum á Stjörnunni í síðustu umferð. Lára Einarsdóttir kemur inn í stað Ariönu Catrina Calderon sem er í liðstjórn í dag.

Tvær breytingar eru á liði Grindavíkur frá tapinu á móti FH í síðustu umferð. Steffi Hardy og Elena Brynjarsdóttir koma inn í lið Grindavíkur. Margrét Hulda Þorsteinsdóttir fer á bekkinn og Rilany Aguiar Da Silva er ekki í hóp.
Fyrir leik
Í heildina hafa þessi lið spilað 9 sinnum gegn hvort öðru. Þór/KA hefur unnið sex sinnum, Grindavík hefur unnið tvisvar sinnum og einu sinni hafa þau skilið jöfn.
Fyrir leik
Í síðustu fjórum leikjum sem þessi lið hafa leikið gegn hvort öðru hefur Þór/KA sigrað þrisvar sinnum en Grindavík einu sinni.

Liðin spiluðu gegn hvort öðru 5. maí síðastliðinn í Grindavík en það var fyrsta umferð deildarinnar og þar vann Þór/KA 0-5 sigur.
Fyrir leik
Seinni hluti deildarinnar að fara af stað með þessari tíundu umferð og mikill spenna er í deildinni. Það er stutt á milli bæði í toppbaráttunni og í botnbaráttunni og því eiginlega ekki í boði að misstíga sig fyrir hvorugt liðið hér í dag.
Fyrir leik
Grindavík er í sjöunda sæti deildarinnar með 9 stig en þrjú stig skilja að niður í fallsæti. Með sigri í dag getur Grindavík hoppað upp í 5. sætið verði úrslit úr öðrum leikjum dagsins þeim hagstæð.
Fyrir leik
Þór/KA situr í öðru sæti deildarinnar með 23 stig. Stigi minna en Breiðablik sem er með toppsætið í höndunum. Þór/KA hefur ekki tapað leik í deildinni en hefur hins vegar gert tvö markalaus jafntefli, annars vegar gegn Val og hins vegar gegn Selfoss.
Fyrir leik
Velkominn í beina textalýsingu frá leik Þór/KA og Grindavíkur í 10. umferð Pepsí-deildar kvenna. Leikurinn fer fram á Þórsvellinum á Akureyri.
Byrjunarlið:
1. Viviane Holzel Domingues (m)
3. Linda Eshun
6. Steffi Hardy
7. Elena Brynjarsdóttir ('65)
8. Guðný Eva Birgisdóttir (f)
9. Rio Hardy
11. Dröfn Einarsdóttir
15. Elísabet Ósk Gunnþórsdóttir ('60)
16. Ísabel Jasmín Almarsdóttir (f)
17. María Sól Jakobsdóttir
22. Helga Guðrún Kristinsdóttir

Varamenn:
12. Dagbjört Ína Guðjónsdóttir (m)
2. Bríet Rose Raysdóttir
9. Margrét Hulda Þorsteinsdóttir
10. Una Rós Unnarsdóttir
14. Margrét Fríða Hjálmarsdóttir
18. Ása Björg Einarsdóttir
20. Áslaug Gyða Birgisdóttir
21. Telma Lind Bjarkadóttir ('65)
26. Kristín Anítudóttir Mcmillan
26. Madeline Keane ('60)

Liðsstjórn:
Nihad Hasecic (Þ)
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Tinna Dögg Kristjánsdóttir
Aleksandar Cvetic

Gul spjöld:
Steffi Hardy ('90)

Rauð spjöld: