Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Valur
4
0
FH
Elín Metta Jensen '5 1-0
Hlín Eiríksdóttir '36 2-0
Hlín Eiríksdóttir '84 3-0
Hlín Eiríksdóttir '89 4-0
07.09.2018  -  19:15
Origo völlurinn
Pepsi-deild kvenna
Dómari: Guðgeir Einarsson
Maður leiksins: Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Byrjunarlið:
12. Sandra Sigurðardóttir (m)
7. Elísa Viðarsdóttir ('60)
10. Elín Metta Jensen
11. Hallbera Guðný Gísladóttir (f)
13. Crystal Thomas
14. Hlín Eiríksdóttir
17. Thelma Björk Einarsdóttir
21. Arianna Jeanette Romero
22. Dóra María Lárusdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir ('66)
40. Málfríður Erna Sigurðardóttir

Varamenn:
2. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
6. Mist Edvardsdóttir
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir ('60)
20. Hallgerður Kristjánsdóttir
23. Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('66)
25. Lea Björt Kristjánsdóttir
26. Stefanía Ragnarsdóttir
27. Hanna Kallmaier

Liðsstjórn:
Pétur Pétursson (Þ)
Ásta Árnadóttir
Rajko Stanisic
Thelma Guðrún Jónsdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Andri Steinn Birgisson

Gul spjöld:
Elín Metta Jensen ('64)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið, FH spilar í Inkasso deild kvenna á næsta tímabili (Staðfest).
92. mín
HVAÐ VAR ÞETTA!?

Elín Metta sendir boltann fyrir og Andrea hamrar í slánna á eigin marki, þá verður darraðadans í teignum sem endar með að Málfríður Anna er alein fyrir opnu marki en skýtur í stöngina!
89. mín MARK!
Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Stoðsending: Elín Metta Jensen
MARK!

Skyndisókn eftir hornið hjá FH, Elín kemur boltanum á Hlín sem tekur sprettinn upp völlinn og er með Guggu með sér en klárar sjálf og innsiglar þrennuna!
89. mín
FH fær horn, Helena skokkar að boltanum...
87. mín
Elín Metta í dauðafæri, fer frá vinstri yfir á hægri og aftur til baka og hamrar með vinstri en Aníta ver í horn.
86. mín
Guðrún í færi en með boltann skoppandi og þrjá leikmenn í kringum sig, kemur sér í erfitt skot beint á Anítu.
84. mín MARK!
Hlín Eiríksdóttir (Valur)
MARK!

Hlín kemst hér inn á teiginn eftir mikið harðfylgi og hamrar boltanum framhjá Anítu í markinu.
81. mín
Helena er hér með vonlaust skot hátt yfir markið...
80. mín
FH fær hér horn...

ANDREA! - Setur hann innanfótar yfir markið, alein í teignum...
78. mín
Inn:Birta Georgsdóttir (FH) Út:Nadía Atladóttir (FH)
76. mín
DAUÐAFÆRI!

Elín Metta gerir fáránlega vel og sendir Hlín upp í hornið, Hlín finnur Guðrún Karítas inní teignum sem hefur nægan tíma en skýtur beint á Anítu...

Þarna átti Guðrún að skora!
74. mín
Inn:Rannveig Bjarnadóttir (FH) Út:Eva Núra Abrahamsdóttir (FH)
72. mín
Hlín finnur Guðrúnu í lappir inní teignum en Gugga er of lengi að koma sér í skotið en sækir horn.

Hallbera mundar löppina og Valsarar fá annað horn.
66. mín
Inn:Guðrún Karítas Sigurðardóttir (Valur) Út:Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Tímabær skipting, Fanndís ekki sést mikið í þessum leik og Pepsisexy kemur inná!
65. mín Gult spjald: Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir (FH)
Melkorka fer aftan í Mettuna sem kemur boltanum þó á Crystal og hún hamrar boltanum í hliðarnetið, Guðgeir spjaldar Melkorku þegar boltinn fer afturfyrir.
64. mín Gult spjald: Elín Metta Jensen (Valur)
Pirringsbrot hjá Mettunni.
63. mín
Elín Metta er vinstra megin í teignum og kemur sér á hægri fótinn og smellir boltanum í fjærstöngina!

Þetta hefði verið fallegt mark.
62. mín
Þórey leggur boltann hér útúr teignum á Jasmín sem hamrar boltanum í Thelmu, þess hefði sennilega endað inni ef Thelma hefði ekki verið fyrir!
61. mín
Helena fær séns til að koma sér í færi eftor flott spil upp völlinn hjá FH með Evu og Jasmín í aðalhlutverkum, en Helena tekur lélegt touch útaf vellinum.
60. mín
Inn:Þórey Björk Eyþórsdóttir (FH) Út:Diljá Ýr Zomers (FH)
60. mín
Inn:Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur) Út:Elísa Viðarsdóttir (Valur)
58. mín
Thelma sendir geggjaðan bolta í hlaupið hjá Hlín sem er komin ein gegn Anítu sem mætir henni og tekur Hlín niður en Guðgeir dæmir ekki neitt!

Þarna fannst mér Valur eiga að fá víti.
54. mín
Crystal fær boltann úti vinstra megin, hleypur meðfram teignum og bombar rétt framhjá, þetta var fast!
53. mín
FÆRI!

Eva Núra kemur boltanum til hægri á Nadíu sem er með nægan tíma og hamrar boltanum beint á Söndru, hefði getað klárað þetta!
49. mín
FÆRI!

Landsliðsvinkonurnar að vinna saman, Hallbera með sendingu út í teiginn ás Fanndísi sem smellir boltanum í slánna!
48. mín
Elín Metta með sendingu á Crystal sem er í mjög góðu færi en Aníta fer frábærlega!
46. mín
Þetta er komið af stað aftur!
45. mín
Kristín Ýr spilar hérna sitt eigið lag í græjunum, fáir sem púlla það en djöfull er hún hörð!

Klædd í leddara á leiðinni á Októberfest eftir leik.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur, FH komið á óvart en hafa ekki náð að skora, Valur sýnt sín gæði minni hluta hálfleiks en uppskera tvö mörk á móti vindinum.
45. mín
Megan með flotta fyrirgjöf á fjær þar sem Nadía er í færi en skallar framhjá, hefði mátt gera betur þarna Nadía vinkona mín.
38. mín
FÆRI!

Nadía kemur boltanum fyrir á Evu Núru sem reynir að taka boltann með sér en Málfríður hendir sér fyrir boltann, hann dettur fyrir Jasmín sem er með þrjá varnarmenn fyrir framan sig og kemur skotinu ekki í gegnum pakkann.

Þarna hefði FH getað minnkað muninn.
37. mín
Diljá laumar boltanum í flott hlaup hjá Helenu sem skýtur í fyrsta með vinstri, beint á Söndru í markinu.
36. mín MARK!
Hlín Eiríksdóttir (Valur)
Stoðsending: Dóra María Lárusdóttir
MARK!

Þetta er copy paste af fyrsta markinu, Dóra María sendir Hlín í gegn sem er alein gegn Anítu og rennir boltanum í vinstra hornið.
35. mín
Thelma með frábæra sendingu inn á teiginn þar sem Elín getur bæði klárað í fyrsta eða drepið boltann fyrir framan sig en tekur touchið frá markinu og eyðileggur færið!

Þarna á Mettan að gera betur.
33. mín
Crystal Thomas tekur hérna lauflétta chippu sem Aníta blakar í slánna og niður!

Þarna munaði ekki miklu.
32. mín
Eva Núra tekur skot hérna fyrir utan teig en það fer yfir, ég er ánægður með kraftinn í FH stelpunum hérna, þær líta ekki út eins og liðið sem er á botninum.
31. mín Gult spjald: Erna Guðrún Magnúsdóttir (FH)
Erna togar Crystal hérna niður og fær réttilega gult.
29. mín
FH fær hornspyrnu og Helena smelliir boltanum á kollinn á Melkorku sem skallar framhjá.
27. mín
Elísa Viðars af öllum skorar eftir aukaspyrnu utan af velli en er dæmd rangstæð!
26. mín
Crystal kemst í færi með boltann skoppandi á vinstri en hamrar honum í Valsmerkið á stigatöflunni.
21. mín
Elín finnur Hlín upp í hornið með geggjaðri sendingu, fyrirgjöfin frá Hlín í varnarmann og afturfyrir.

Hallbera tekur hornið beint í hliðarnetið.
17. mín
Fanndís drillar og drillar hérna inní vítateig FH, sendir svo á Crystal og fær boltann aftur en er rangstæð, hefði átt að vera búin að taka skotið.
15. mín
DAUÐAFÆRI!

Crystal Thomas smellir boltanum fyrir inn á markteiginn þar sem Fanndís er alein og skallar boltann nokkurnveginn beint á Anítu sem þarf samt að gera rosalega vel til að verja þetta og halda boltanum!

Samt galið að skora ekki úr þessu færi.
12. mín
ANDREA!

Settu hausinn í þetta stelpa, þarna átti hún að stanga boltann inn eftir hornspyrnu en reyndi eitthvað að taka hann með kassanum...
12. mín
Horn eftir horn eftir horn hjá FH.

Þær þurfa að fara að nýta þessa sénsa.
11. mín
Andrea Marý fær boltann skoppandi í teignum og hamrar honum rétt yfir!

Þetta var séns.
10. mín
FH fær hér enn eina hornspyrnuna, þær eru að spila vel þessar fyrstu 10!
8. mín
Valur reynir að spila stutt hérna og FH pressar og gerir það vel, setur Söndru í vesen.
7. mín
FH fær hornspyrnu sem Valur kemur burt en ekki langt, svo kemur skot af löngu færi en framhjá markinu.
5. mín MARK!
Elín Metta Jensen (Valur)
MARK!

Eftir frábærar upphafsmínútur hjá FH þá þarf ekki nema ein mistök og gæði Valsara refsa.

Elín fær boltann í gegn, er ekki rangstæð og alein á móti Anítu í markinu með nóg pláss og tíma, klárar vel í nærhornið.
2. mín
JÁ! Jasmín finnur Diljá í lappir sem nær snúning fyrir utan teiginn og lætur vaða og Sandra þarf að hafa sig alla við að verja þetta! Slær boltann í horn.

Stórhætta skapast við mark Valsara uppúr horninu og fær FH annað horn!

Líf og fjör í gestunum til að byrja með.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!

FH sækir með vind í átt að Hringbraut.
Fyrir leik
Liðin labba hér út á völl og Kristín Ýr grípur í mækinn, hún er að leysa af og lætur fólkið í stúkunni vita af því að vallarþulurinn í kvöld sé af dýrari gerðinni.

Ég má til með að benda fólki á að Kristín Ýr var að gefa út lag í dag en hún á 208 leiki og 130 mörk á meistaraflokksferlinum, mestmegnis fyrir Val.
Fyrir leik
Það eru 10 mínútur í leik og liðin eru komin inn.

Ég er umkringdur legendum hérna í blaðamannastúkunni, Kristbjörg Ingadóttir, Edda Garðars og Kristín Ýr eru í góðum gír hérna.
Fyrir leik
Liðin eru komin hér út að hita, Pétur og Andri Steinn standa við miðjuna að spjalla, Rajko er með Söndru og Auði í markmannsupphitun og svo er einhver maður sem er ekki einusinni á leikskýrslu Vals að stýra upphitun, skrítið en skemmtilegt...
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn hér til hliðar.

Lítið óvænt í þessu, landsliðsstelpurnar okkar í Val byrja allar.

Hjá FH er Nadía Atladóttir í byrjunarliðinu en hún var á láni hjá Fjölni fyrri hluta sumars en var kölluð til baka á lokadegi gluggans.
Það vantar Guðný Árna í liðið hjá FH og svo er Maria Selma meidd.
Fyrir leik
Sumarið hjá FH hefur verið gríðarleg vonbrigði miðað við væntingar fyrir mót og hvernig liðinu gekk í fyrra.

Varnarleikurinn hefur verið helsti hausverkur Orra þjálfara en FH hefur fengið á sig langflest mörk, 51 talsins en hafa hinsvegar skorað 18 mörk sem er meira en Selfoss, KR og Grindavík, einnig einu marki minna en ÍBV hefur skorað svo það er ekkert alslæmt, FH skorar í nánast hverjum einasta leik, en það er erfitt að vinna fótboltaleiki ef maður fær alltaf á sig fleiri en maður skorar sjálfur.
Fyrir leik
Þessi leikur hefur ekkert rosalega þýðingu fyrir Val í kvöld annað en að spila upp á stoltið, þær eru ekki í neinni baráttu nema kannski um 3. sætið við Stjörnuna.

Hinsvegar hefur þessi leikur mikla þýðingu fyrir Hafnafjarðarstúlkur, tapi þær í kvöld eru þær fallnar úr Pepsi deildinni, geri þær jafntefli eru þær einnig svo gott sem fallnar þar sem markahlutfallið er mjög lélegt en vinni þær þá eiga þær ennþá séns!

Ég vona að FH leggji allt í sölurnar í kvöld og gefi okkur bráðskemmtilegan fótboltaleik á móti góðu Valsliði.
Fyrir leik
Góða kvöldið gott fólk og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og FH í Pepsi deild kvenna.
Byrjunarlið:
25. Aníta Dögg Guðmundsdóttir (m)
Erna Guðrún Magnúsdóttir
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir
5. Megan Elizabeth Buckingham
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
8. Jasmín Erla Ingadóttir
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir
16. Diljá Ýr Zomers ('60)
20. Eva Núra Abrahamsdóttir ('74)
22. Nadía Atladóttir ('78)
23. Andrea Marý Sigurjónsdóttir

Varamenn:
1. Þóra Rún Óladóttir (m)
8. Valgerður Ósk Valsdóttir
9. Rannveig Bjarnadóttir ('74)
15. Birta Stefánsdóttir
21. Þórey Björk Eyþórsdóttir ('60)
22. Lovísa María Hermannsdóttir
28. Birta Georgsdóttir ('78)

Liðsstjórn:
Orri Þórðarson (Þ)
Halla Marinósdóttir
Hafdís Erla Gunnarsdóttir
Maria Selma Haseta
Daði Lárusson
Silja Rós Theodórsdóttir
Hákon Atli Hallfreðsson

Gul spjöld:
Erna Guðrún Magnúsdóttir ('31)
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir ('65)

Rauð spjöld: