Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Tindastóll
3
2
Völsungur
Stefan Antonio Lamanna '20 1-0
Sigvaldi Þór Einarsson '59
1-1 Elvar Baldvinsson '67
Stefan Antonio Lamanna '72 2-1
Stefan Antonio Lamanna '76 3-1
3-2 Sæþór Olgeirsson '80
22.09.2018  -  14:00
Sauðárkróksvöllur
2. deild karla
Aðstæður: Blautt, hálfskýjað og 4 gráður
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
Byrjunarlið:
1. Santiago Fernandez (m)
Konráð Freyr Sigurðsson
Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson
4. Sverrir Hrafn Friðriksson ('46)
5. Nile Walwyn
6. Fannar Örn Kolbeinsson
10. Stefan Antonio Lamanna
14. Jónas Aron Ólafsson (f)
15. Arnar Skúli Atlason ('82)
21. Arnar Ólafsson ('92)
23. Jón Gísli Eyland Gíslason

Varamenn:
12. Atli Dagur Stefánsson (m)
11. Eysteinn Bessi Sigmarsson
13. Óðinn Smári Albertsson ('92)
22. Hólmar Daði Skúlason
23. Jóhann Daði Gíslason ('82)
24. Gabríel E Midjord Jóhannsson
25. Ágúst Friðjónsson

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Guðni Þór Einarsson (Þ)

Gul spjöld:
Arnar Ólafsson ('33)
Jónas Aron Ólafsson ('79)
Santiago Fernandez ('90)

Rauð spjöld:
95. mín
Síðustu mínútur einkenndust að Völsungsmenn voru í sókn og reyndu að jafna leikinn. Tindastóll náði að koma sér í skyndisóknir en leituðu með boltann upp í horn til að tefja.
Skemmtilegur leikur hér á Sauðárkróksvelli þar sem mikið var um að vera. Völsungsmenn sýndu mikinn vilja en erfitt að spila einum færri síðustu 30 mín. Tindastólsmenn fagna ákaft í leikslok með sínum stuðningsmönnum.
Leik lokið!
92. mín
Inn:Óðinn Smári Albertsson (Tindastóll) Út:Arnar Ólafsson (Tindastóll)
90. mín Gult spjald: Santiago Fernandez (Tindastóll)
Gult spjald fyrir töf. Of lengi að taka útsparkið.
85. mín
Mikið að gerast í leiknum síðustu mínútur. Pirringur í mönnum, mótmæli og hrindingar sem orsaka gult spjald. Liðin skiptast á að sækja og hafa tvö síðustu mörk komið eftir fallegar fyrirgjafir sem lenda hjá framherjunum og enda í netinu
82. mín
Inn:Jóhann Daði Gíslason (Tindastóll) Út:Arnar Skúli Atlason (Tindastóll)
82. mín
Inn:Halldór Mar Einarsson (Völsungur) Út:Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Völsungur)
80. mín MARK!
Sæþór Olgeirsson (Völsungur)
Stoðsending: Elvar Baldvinsson
Völsungur minnkar muninn. Fallegt spil og fyrirgjöf frá hægri sem finnur Sæþór sem setur hann í netið.
79. mín Gult spjald: Jónas Aron Ólafsson (Tindastóll)
Jónas fær tæklingu frá Völsungsmanni sem hann er ekki sáttur með og stendur upp og ýtir honum. Verðskuldað gult spjald.
76. mín MARK!
Stefan Antonio Lamanna (Tindastóll)
Stoðsending: Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson
Glæsileg sókn hjá Tindastól. Nú komu þeir upp hægra megin. Enn og aftur endar fyrirgjöf í lappirnar á Stefan Antionio sem leggur boltann í netið. Frábært spil hjá Stólunum.
72. mín MARK!
Stefan Antonio Lamanna (Tindastóll)
Stoðsending: Jón Gísli Eyland Gíslason
Glæsilegt samspil upp vinstri kantinn. Jón Gísli sendir boltann fyrir og beint í lappirnar á Stefan Antonio sem leggur hann í nær hornið.
67. mín MARK!
Elvar Baldvinsson (Völsungur)
Hornspyrna hjá Völsung sem berst út í teiginn og þar er Elvar Baldvinsson sem setur hann í netið.
65. mín Gult spjald: Guðmundur Óli Steingrímsson (Völsungur)
Gult spjald fyrir mótmæli.
63. mín
Búnar að vera mjög líflegar síðustu mínútur.
Völsungur lá í sókn og fékk þrjár hornspyrnur í röð sem allar enduðu í miklum darraðadansi inn í teig Tindastóls. Eftir þriðju hornspyrnuna náðu Tindastólsmenn að hreinsa út úr teignum og boltinn lenti beint í lappirnar á Stefan Antonio sem geystist af stað upp völlinn og stakk vörnina af. Sigvaldi var aftasti maður og sá ekkert annað í stöðunni en að brjóta og uppskar rautt spjald.
63. mín
Dauðafæri hjá Tindastól.
Enn og aftur er Stefan Antonio kominn einn innfyrir vörn Völsungs en hann komst ekki fram hjá markmanni Völsungs að þessu sinni
60. mín
Aukaspyrna rétt fyrir utan teig Völsungs en hún fer hátt yfir
59. mín Rautt spjald: Sigvaldi Þór Einarsson (Völsungur)
Rautt Spjald!
Stefan Antonio kominn einn innfyrir vörn Völsungs og Sigvaldi er rétt á eftir honum. Sigvaldi dregur Stefan niður og fær rautt spjald
57. mín
Inn:Ólafur Jóhann Steingrímsson (Völsungur) Út:Eyþór Traustason (Völsungur)
Skipting hjá Völsung
49. mín
Spyrnan endar í veggnum og Tindastóll fer í skyndisókn. Stefan Antonio leikur sér með boltann rétt fyrir utan vítateig skýtur en skotið er varið en Benjamín nær frákastinu skýtur framhjá.
49. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað.
Völsungur á aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateik Tindastóls
46. mín
Leikur hafinn að nýju
46. mín
Inn:Óskar Smári Haraldsson (Tindastóll) Út:Sverrir Hrafn Friðriksson (Tindastóll)
Breyting í hálfleik.
46. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur leikur hér á Sauðárkróksvelli. Heimamenn búnir að vera betri aðilinn í leiknum heilt yfir en Völsungur hefur sótt í sig veðrið síðustu mínútur fyrir hálfleik og verið líklegri til að skora.
45. mín
Völsungur á síðustu sókn fyrir hálfleik. Flott fyrirgjöf og skalli sem endar rétt framhjá markinu.
43. mín
Allt annað að sjá til Völsungs. Þeir eru búnir að ógna mun meira og eiga glimrandi flott færi. Tvær hornspyrnur í röð en ná ekki að koma sér í skotstöðu.
38. mín
Santiago Fernandez, markmaður Tindastóls, fær aðvörun frá dómara leiksins fyrir að tefja. Valdi að elta bolta sem skotið var framhjá í staðin fyrir að fá boltann frá boltastrákunum sem stóðu nær honum
35. mín
Völsungsmenn að vakna og búnir að eiga ágætar sóknir sem enda þó ekki með marktækifæri. Vantar herslu muninn hjá þeim.
33. mín Gult spjald: Arnar Ólafsson (Tindastóll)
Arnar Ólafsson of seinn í boltann og tekur Berg Jónmundsson niður.
28. mín
Tindastóll heldur áfram að ógna marki gestanna. Stefan lék vel upp hægri kannt og hristi af sér tvo. Sendi svo út í teyginn en Arnar Ólafsson náði ekki að halda skotinu niðri og flaug boltinn hátt yfir.
24. mín
Gott marktækifæri hjá Völsung!
Bjarki Baldvinsson á gott skot rétt fyrir utan teig sem endar rétt fram hjá stönginni. Markspyrna fyrir Tindastól
20. mín MARK!
Stefan Antonio Lamanna (Tindastóll)
Mikið búið að gerast á stuttum tíma. Völsungur fær horn sem er hreinsað úr teignum og endar með aukaspyrnu sem Tindastóll fær. Aukaspyrnan tekin snöggt og Stefan stingur sér innfyrir vörn Völsungs og setur boltann fram hjá markmanni Völsungs.
19. mín Gult spjald: Travis Nicklaw (Völsungur)
Stuggar við markmanni stólanna í hornspyrnu og uppsker gult spjald
18. mín Gult spjald: Eyþór Traustason (Völsungur)
Eyþór er fyrstur í bókina fyrir brot á miðjunni. Óþarfa brot þar sem lítið var að gerast.
14. mín
Tindastóll byrjar leikinn að krafti og hefur verið meira ógnandi aðilinn í leiknum. Völsungur hefur þó reynt að nýta sér stungur inn fyrir vörn Tindastóls en hefur ekki skilað marktækifæri enn.
6. mín
Tindastóll fær dauðafæri. Benjamín Jóhannes með gott skot en Aron Dagur markmaður Völsungs sér við honum
1. mín
Leikur hafinn
Gunnþór Steinar hefur flautað leikinn á. Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn og í hljóðkerfinu hljóma leikmannakynningar.
Fyrir leik
Þessi leikur er mikilvægur fyrir bæði lið. Lið Tindastóls er í botnbaráttunni og þarf á stigum að halda til tryggja veru sína í deildinni á næsta keppnistímabili. Mikið hefur verið fjallað um Völsung síðustu daga. Eftir úrslit úr leiknum gegn Huginn á Völsungur ennþá möguleika á að koma sér upp um deild. Það má því búast við hörku leik hér á Sauðárkróksvelli.
Fyrir leik
Góðan dag kæru lesendur.
Senn fer að hefjast leikur Tindastóls og Völsungs í 2. deild karla hér á Sauðárkróksvelli. Veðrið er frekar milt, skýjað, 4 gráður og logn.
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('82)
Bjarki Baldvinsson
Elvar Baldvinsson
3. Freyþór Hrafn Harðarson
6. Travis Nicklaw
7. Guðmundur Óli Steingrímsson
8. Eyþór Traustason ('57)
13. Sigvaldi Þór Einarsson
22. Sæþór Olgeirsson
27. Bergur Jónmundsson

Varamenn:
12. Halldór Árni Þorgrímsson (m)
19. Stefán Óli Hallgrímsson (m)
10. Ásgeir Kristjánsson
11. Ólafur Jóhann Steingrímsson ('57)
23. Halldór Mar Einarsson ('82)
92. Daníel Már Hreiðarsson

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Gunnar Sigurður Jósteinsson
Arnþór Hermannsson
Jónas Halldór Friðriksson
John Henry Andrews
Björn Elí Víðisson
Einar Már Þórólfsson

Gul spjöld:
Eyþór Traustason ('18)
Travis Nicklaw ('19)
Guðmundur Óli Steingrímsson ('65)

Rauð spjöld:
Sigvaldi Þór Einarsson ('59)