Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
HK/Víkingur
1
0
KR
Þórhildur Þórhallsdóttir '38 1-0
02.05.2019  -  19:15
Kórinn
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson
Maður leiksins: Fatma Kara
Byrjunarlið:
Karólína Jack
Halla Margrét Hinriksdóttir
2. Gígja Valgerður Harðardóttir
3. Kristrún Kristjánsdóttir
5. Fatma Kara ('85)
6. Tinna Óðinsdóttir (f)
7. Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir ('79)
11. Þórhildur Þórhallsdóttir
15. Eva Rut Ásþórsdóttir ('70)
17. Arna Eiríksdóttir
19. Eygló Þorsteinsdóttir

Varamenn:
4. Brynhildur Vala Björnsdóttir ('85)
9. Margrét Eva Sigurðardóttir
10. Isabella Eva Aradóttir ('70)
14. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir ('79)
24. María Lena Ásgeirsdóttir
28. Vigdís Helga Einarsdóttir

Liðsstjórn:
Þórhallur Víkingsson (Þ)
Rakel Logadóttir (Þ)
Milena Pesic
Ísafold Þórhallsdóttir
Sandor Matus
Alma Rún Kristmannsdóttir

Gul spjöld:
Karólína Jack ('29)
Þórhildur Þórhallsdóttir ('69)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Lokaniðurstaða 1-0 fyrir HK/Víkingum, sem var spáð neðsta sæti deildarinnar. Dýrmæt stig í hús!
91. mín
KR stúlkur búnar að liggja svolítið á HK/Víkingum síðustu mínúturnar og ná nokkrum skotum en HK/Víkingur henda sér fyrir hvert einasta. Þær ætla ekki að tapa stigum hér í kvöld.
85. mín
Inn:Brynhildur Vala Björnsdóttir (HK/Víkingur) Út:Fatma Kara (HK/Víkingur)
82. mín
Rólegt yfir leiknum síðustu mínútur, liðin skiptast á að vera með boltann en lítið af færum.

Stuttu seinna eiga KR hornspyrnu sem þær skalla framhjá.
81. mín
Inn:Gréta Stefánsdóttir (KR) Út:Hugrún Lilja Ólafsdóttir (KR)
79. mín
Inn:Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir (HK/Víkingur) Út:Ragnheiður Kara Hálfdánardóttir (HK/Víkingur)
73. mín
Fatma með skot af frekar löngu færi en beint á Hrafnhildi.
70. mín
Inn:Isabella Eva Aradóttir (HK/Víkingur) Út:Eva Rut Ásþórsdóttir (HK/Víkingur)
69. mín Gult spjald: Þórhildur Þórhallsdóttir (HK/Víkingur)
HK/Víkings-stúlkur orðnar frekar pirraðar. Þórhildur togar hér í leikmann KR sem vann boltann af henni.
61. mín
Grace með skot langt utan af velli. Halla Margrét í engum vandræðum.
58. mín
Inn:Ingunn Haraldsdóttir (KR) Út:Betsy Doon Hassett (KR)
Lenti í samstuði við Gígju og endar út á hlaupabraut. KR því búnar að missa tvær útaf vegna meiðsla, ekki góðar fréttir fyrir þær.
51. mín
Skot frá Grace rétt utan við vítateig. KR mun hressari hér í þessum seinni hálfleik.
46. mín
Besta færi KR! Guðmunda vinnur baltann af Tinnu Óðins á miðjum velli og gefur hann yfir á Söndru sem er alein! Halla gerir hinsvegar frábærlega í markinu, kemur út á móti og ver.

Stúkan vill meina að Sandra hafi verið rangstæð en ég sá ekki betur en að hún hafi verið réttstæð.
45. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
HK/Víkingur fer inn í hálfleikinn með verðskuldaða forystu. KR verður að gefa í ætli þær að fá eitthvað út úr þessum leik.
45. mín
Inn:Þórunn Helga Jónsdóttir (KR) Út:Hlíf Hauksdóttir (KR)
Líklega hefur Hlíf orðið fyrir einhverjum meiðslum, sat eftir inn í eigin vítateig og bað strax um skiptingu sýndist mér.
44. mín
Hrafnhildur ver!

Ég sá ekki alveg hverjar áttu í hlut þarna en HK/Víkingur var komið í ágætis sókn sem endar með einhverju klafsi fyrir framan markið. Hrafnhildur gerir vel og nær boltanum að lokum.
42. mín
Rangstaða! Hlíf sendir inn fyrir á Guðmundu sem var alein, en réttilega dæmd rangstæð.
38. mín MARK!
Þórhildur Þórhallsdóttir (HK/Víkingur)
Stoðsending: Fatma Kara
Loksins kom markið!

Fatma gefur fyrir frá hægri og Þórhildur fær boltann við vítapunkt og klárar örugglega!
36. mín
KR stúlkur aðeins að sækja í sig veðrið. Ágætis sókn sem endar með þrumu skoti frá Hlíf Hauksdóttir. Arna hendir sér fyrir en virðist hafa meitt sig við höggið. Vonum að það sé ekki alvarlegt.
34. mín
Þórhildur Þórhallsdóttir með fínt hlaup en klárar svo með laflausu skoti á markið.
29. mín Gult spjald: Karólína Jack (HK/Víkingur)
Togar hér í leikmann KR eftir að hafa misst boltann klaufalega á miðjunni.
25. mín
Eva Rut vinnur boltann af miðjumanni KR og lætur vaða, en skotið fer framhjá.
23. mín
Fatma með skot lengst utan af velli en skotið ekkert sérstakt og fer framhjá.
20. mín
Eygló stálheppin að fá ekki spjald þarna. Reif Betsy niður á miðjum vellinum.
20. mín
HK/Víkingar eiga aukaspyrnu á fínum stað sem Eva Rut tekur, en KR á ekki í neinum vandræðum með að koma boltanum frá.
16. mín
Það styttist í markið hjá HK/Víkingum! Nú var það fyrirgjöf frá hægri en Fatma náði ekki til boltans. Mun sprækari hér fystu mínúturnar.
13. mín
HK/Víkingur nálægt því að skora í tvígang en KR stúlkur náðu að verjast á síðustu stundu!

Karólína stal þarna boltanum af varnarmanni KR og í skotfæri en KR vörnin henti sér fyrir.
12. mín
Fatma með skot lengst utan af velli í þverslánna. Hörku skot!
6. mín
HK/Víkingar hafa byrjað ögn betur og eiga hér fyrsta skotið á markið. Það var Karólína Jack sem átti skotið.
Fyrir leik
Leikur hafinn
KR byrjar með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár, þau má sjá hér til hliðar.

Athyglisvert er að Hrafnhildur Agnarsdóttir stendur á milli stanganna hjá KR en sú staða hefur verið spurningamerki í fjarveru Ingibjargar sem meiddist nýlega. Birna, sem kom til KR frá Stjörnunni í vetur, er einnig að jafna sig á meiðslum.
Fyrir leik
Báðum liðum tókst að halda sér uppi í deild þeirra bestu á síðasta tímabili og endaði HK/Víkingur í 7. sæti deildarinnar með 18 stig en KR í því 8. með 17 stig.

Liðin mættu síðast í B-deild lengjubikarsins þar sem KR sigraði 2-1. Það má því búast við hörku leik hér í kvöld!
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá Kórnum í Kópavogi.

1. umferð í Pepsi Max deild kvenna hófst fyrr í dag í Eyjum og lýkur á morgun með stórleik Vals gegn Þór/KA. En hér í kvöld ætlum við að fylgjast með leik HK/Víkings og KR sem hefst kl 19:15.
Byrjunarlið:
1. Hrafnhildur Agnarsdóttir (m)
Hugrún Lilja Ólafsdóttir ('81)
2. Kristín Erla Ó Johnson
3. Sandra Dögg Bjarnadóttir
4. Laufey Björnsdóttir
7. Guðmunda Brynja Óladóttir
9. Hlíf Hauksdóttir ('45)
10. Betsy Doon Hassett ('58)
14. Grace Maher
16. Lilja Dögg Valþórsdóttir
22. Íris Sævarsdóttir

Varamenn:
23. Birna Kristjánsdóttir (m)
3. Ingunn Haraldsdóttir ('58)
8. Katrín Ómarsdóttir
10. Margrét Edda Lian Bjarnadóttir
11. Gréta Stefánsdóttir ('81)
15. Sigríður Kristjánsdóttir
20. Þórunn Helga Jónsdóttir ('45)

Liðsstjórn:
Bojana Besic (Þ)
Guðlaug Jónsdóttir
Sædís Magnúsdóttir
Ásta Kristinsdóttir
Gísli Þór Einarsson
Ragna Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: