Magni
1
1
Fram
Bjarni Aðalsteinsson '17 1-0
1-1 Tiago Fernandes '60
25.05.2019  -  16:00
Grenivíkurvöllur
Inkasso deildin - 1. deild karla
Aðstæður: Glampandi sól en nokkur norðanátt, svo það blæs aðeins á annað markið.
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
Maður leiksins: Bjarni Aðalsteinsson
Byrjunarlið:
23. Aron Elí Gíslason (m)
Frosti Brynjólfsson ('77)
Gauti Gautason
3. Þorgeir Ingvarsson ('88)
8. Arnar Geir Halldórsson
9. Gunnar Örvar Stefánsson ('73)
9. Guðni Sigþórsson
17. Kristinn Þór Rósbergsson
18. Ívar Sigurbjörnsson
26. Viktor Már Heiðarsson
29. Bjarni Aðalsteinsson

Varamenn:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
23. Steinar Adolf Arnþórsson (m)
4. Sveinn Óli Birgisson
11. Tómas Veigar Eiríksson
15. Hjörvar Sigurgeirsson ('77)
18. Jakob Hafsteinsson ('88)
19. Marinó Snær Birgisson
99. Angantýr Máni Gautason

Liðsstjórn:
Páll Viðar Gíslason (Þ)
Bergvin Jóhannsson
Andrés Vilhjálmsson
Anton Orri Sigurbjörnsson
Áki Sölvason
Helgi Steinar Andrésson

Gul spjöld:
Gauti Gautason ('51)
Guðni Sigþórsson ('55)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Liðin skipta stigunum á milli sín, takk fyrir samfylgdina í dag!
90. mín
DAUÐAFÆRI SEM KRISTINN KLÚÐRAR! Bjarni slapp einn í gegn en eltur af varnarmanni, ákvað að leggja hann til hliðar á Kristinn sem tók einni snertingu of mikið og gaf Ólafi tíma til að rjúka út og loka skotfærinu. Kristinn setti boltann beint í Ólaf í kjölfarið. Magnamenn mega vera svekktir eftir þetta!
88. mín
Inn:Jakob Hafsteinsson (Magni) Út:Þorgeir Ingvarsson (Magni)
86. mín
Inn:Orri Gunnarsson (Fram) Út:Már Ægisson (Fram)
86. mín
Bjarni neglir í vegginn og setur frákastið í varnamenn, og Fram hreinsar.
85. mín
Magni fær aukaspyrnu hægra megin við D-bogann. STÓR hættulegur staður, Bjarni stillir sér upp.
84. mín
Ná Magnamenn að halda þetta út? Þeir eru aðeins að færa sig uop á skaftið aftur.
79. mín
Loksins komst Magni í góða sókn og það var frábært færi fyrir Kristinn Þór að prjóna sig í gegnum vörnina eftir sendingu frá Bergvini en það tókst ekki. Frábær varnarleikur Fram kom í veg fyrir mark þarna!
77. mín
Inn:Hjörvar Sigurgeirsson (Magni) Út:Frosti Brynjólfsson (Magni)
75. mín
Inn:Alex Freyr Elísson (Fram) Út:Hilmar Freyr Bjartþórsson (Fram)
Augun brugðust mér áðan, það var nr. 18, Alex Freyr sem kom inná en ekki nr. 10, Orri.
73. mín
Inn:Bergvin Jóhannsson (Magni) Út:Gunnar Örvar Stefánsson (Magni)
72. mín
Hilmar Freyr með ágætis skot frá vítateigshorninu vinstra megin en beint á Aron Elí.
70. mín
Fred með skot rétt fyrir utan teig en boltinn fer hátt yfir.
69. mín
Allt spil hefur verið á vallarhelmingi Magna, en heimamenn hafa varla náð þremur sendingum í röð í seinni hálfleik og komast ekki langt upp völlinn þegar það tekst þó.
68. mín
Már reynir skot rétt fyrir utan teig en skýtur í hælana á Viktori Má.
66. mín
Ólafur Íshólm leikur sér að eldinum! Fékk sendingu til baka og Gunnar Örvar pressaði, Ólafur hitti ekki boltann í móttökunni en tók svo gabbhreyfingu sem sendi Gunnar í grasið og Ólafur gat sent út á kant. Svellkaldur.
64. mín
Aron stingur við, en heldur áfram.
64. mín
Aron Elí liggur, lenti í einhverju klafsi þarna beint eftir markið þegar Framarar vildu sækja boltann og svo aftur í næstu sókn. Fær aðhlynningu.
63. mín
Þetta var samkvæmt gangi leiksins, verður að segjast. Magnamenn hafa varla verið með í seinni hálfleik.
60. mín MARK!
Tiago Fernandes (Fram)
Stoðsending: Haraldur Einar Ásgrímsson
Fór hér mannavillt, biðst afsökunar á því. Tiago setur boltann auðveldlega framhjá Aroni, eftir að hann fékk frábæra stungusendingu innfyrir frá Haraldi. Kom í kjölfar þungrar sóknar Fram!
60. mín
Ívar brýtur á Fred alveg úti við hliðarlínu. Hann sendir boltann fyrir úr spyrnunni en ekkert skapast.
57. mín
Magni skapar svo ekkert úr aukaspyrnunni og Fram fer aftur fram.
57. mín
Loksins kemst Magni upp völlinn, fá aukaspyrnu.
55. mín Gult spjald: Guðni Sigþórsson (Magni)
Fyrir brot, reyndar braut Viktor Már líka á Fred og á það er dæmd aukaspyrna, en hitt var fyrir brot þar sem hagnaði var beitt.
53. mín
ÓTRÚLEG SENA! Kristinn Þór ætlar að hreinsa boltann á miðjum vallarhelmingi Magna, kingsar svona líka svakalega og boltinn fer mjög hátt og í átt að marki Magna. Þar reynir Aron að grípa boltann, missir hann aftur fyrir sig á línuna en er snar í snúningum og rétt nær að stoppa boltann áður en hann fer innfyrir. Þetta hefði verið sjálfsmark aldarinnar.
52. mín
Úr aukaspyrnunni reynir Fram fyrirgjöf, sem fer í gegnum pakkann á teignum og í hornspyrnu. Sú spyrna fór svo í hliðarnetið.
51. mín Gult spjald: Gauti Gautason (Magni)
Brýtur á sóknarmanni Fram en mér fannst hann nú fara í boltann fyrst. Gunnþór ekki sammála því.
50. mín
Guðni gerir vel í að koma sér upp völlinn, á stungusendingu á Frosta en hann er vel rangstæður. Hafði samt alla línuna fyrir framan sig, átti að gera betur.
47. mín
Helgi skallar boltann, mjög undarlega, útaf.
47. mín
Og aftur kemst Fram í sókn, reyna langskot en boltinn fer í varnarmann. Hornspyrna á hættulegum stað.
47. mín
Fyrsta sókn Framara er einmitt löng stunga inn fyrir, þar sem vindurinn blæs boltanum samt aðeins of langt og til Arons í markinu.
45. mín
Leikur hafinn
Þá snúast leikar við og Fram er með vindinn í bakið. Magni náði að nýta sér hann í fyrri hálfleik, leika gestirnir það eftir?
45. mín
Hálfleikur
44. mín Gult spjald: Jökull Steinn Ólafsson (Fram)
Pirringsbrot á Guðna, sem hafði tæklað hann löglega rétt áður.
43. mín
Guðni virtist sloppinn inn fyrir vörn Fram en var rangstæður, réttur dómur sýnist mér.
42. mín
Hilmar Freyr klúðrar ágætis færi, hittir ekki boltann í vítateig Magna. Boltinn datt þar inn eftir svolítið klafs og pressu Framara, þarna átti Hilmar að gera betur!
40. mín
Helgi hamrar í vegginn og Hilmar Freyr gerir það sama með frákastið.
39. mín
Gauti brýtur á Má Ægissyni á slæmum stað, nú á Fram enn betra skotfæri en áður rétt utan við D-bogann, hægra megin.
37. mín
Í tvígang hefur Aron Elí gripið inn í sóknartilraunir Framara, sem hafa kannski ekki verið mjög líklegar en í það minnsta líklegri en áður í dag.
33. mín
Helgi Guðjóns virtist sloppinn í gegn en var flaggaður rangstæður. Framarar eru að vakna til lífsins í sókninni.
31. mín
Gott skot, en Aron Elí gerir enn betur í markinu og grípur boltann!
31. mín
Fram á aukaspyrnu á hættulegum stað, Ívar brýtur klaufalega á Hilmari Frey. Af 30 metrum, en að vísu á móti vindi.
29. mín
Magnamenn hafa gefið aðeins eftir og við erum aftur komin í miðjumoð, en nú eru það frekar Framarar sem hafa stjórn á leiknum ef eitthvað er.
23. mín
Gunnar Örvar hefur orðið fyrir smá hnjaski og fær aðhlynningu, lítur ekki út fyrir að vera alvarlegt.
23. mín
Fred með frábæra stungusending inn á Helga sem er nálægt því að ná skoti, en varnarmenn Magna eru vel vakandi.
22. mín
Tiago brýtur á Bjarna á miðjum vallarhelmingi Framara og fær tiltal frá Gunnþóri. Úr aukaspyrnunnni verður til hálffæri en Ólafur Íshólm grípur vel inn í.
20. mín
Fred Saraiva lætur sig falla hér með tilþrifum rétt fyrir utan teig, eftir baráttu við Gauta en fær ekki aukaspyrnu.
17. mín MARK!
Bjarni Aðalsteinsson (Magni)
Það þarf ekki að vera fast! Bjarni nýtir vindinn vel og setur boltann út fyrir varnarvegginn og niðri í hægra hornið, alls ekki fast en á hárréttan stað!
17. mín
Magnamenn eru aðgangsharðir þessa stundina og eiga aukaspyrnu af 30 metrum.
12. mín
Kristinn Þór með frábæra fyrirgjöf frá hægri kanti og hittir á pönnuna á Gunnar Örvari, sem setur boltann rétt yfir. Fyrsta alvöru færið í dag!
10. mín
Leikurinn fer svona sæmilega rólega af stað, mikið miðjumoð og klafs, en Gunnþór dómari lætur leikinn ganga án þess að flauta of mikið.
8. mín
Viktor Már nær skalla að marki eftir spyrnuna, en boltinn fer vel yfir markið.
7. mín
Magni fær sína fyrstu hornspyrnu.
3. mín
Framarar fá fyrstu hornspyrnuna, en sú sókn rennur út í sandinn.
2. mín
Byrjar með látum! Frosti Brynjólfs kemst einn í gegn eftir laglegt samspil Bjarna Aðalsteins og Gunnar Örvars, en fer afskaplega illa að ráði sínu og reynir sendingu sem mislukkast, í stað þess að skjóta.
1. mín
Leikurinn er farinn af stað, gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Fyrir leik
Liðin eru komin inn á völlin og veifa til áhorfenda. Byrjum þetta gaman!
Fyrir leik
Stefnt er að því að sýna leikinn í beinni á YouTube rás Magna, venju samkvæmt, en einhverjir tæknilegir örðugleikar eru á útsendingunni núna. Þið verðið þá bara að sætta ykkur við ljóslifandi lýsinguna hjá mér í staðinn.
Fyrir leik
Aðstæður eru með besta móti í dag, heiðskírt en þo nokkuð norðanátt sem gæti haft einhver áhrif á gang leiksins. Hún blæst beint á annað markið, svo við gætum átt von á einhverjum langskots-tilraunum.
Fyrir leik
Fram er búið að vinna einn, gera eitt jafntefli og tapa einum. Þeir töpuðu fyrsta leiknum gegn Keflavík en unnu svo sterkan sigur á Fjölni í næstu umferð. Þeir gerðu jafntefli gegn Haukum í síðasta leik, þar sem þeir voru einum manni færri síðasta hálftímann. Það stefnir vonandi í ágætis viðureign hér í dag!
Fyrir leik
Stemmningin verður allt önnur í þessum leik en hún var í fyrra, Magni hefur ekki farið vel af stað í sumar og tapað öllum þremur leikjum sínum. Þeirra stærsta vandamál er hriplek vörnin, en liðið hefur fengið á sig 11 mörk í þessum þremur leikjum. Liðið fékk reyndar annað eins af mörkum á sig í tapi gegn Breiðabliki í bikarnum, svo þeir þurfa að spýta í lófana.
Fyrir leik
Liðin unnu bæði sinn heimaleik gegn hvort öðru í fyrra, Fram vann góðan 3-1 sigur á Laugardalsvelli en á æsilegum endaspretti Magna í deildinni í fyrra náðu þeir í góðan 2-1 sigur hér á Grenivík, í síðasta heimaleiknum. Sá sigur gaf Magna von um að halda sér uppi, sem þeir og gerðu með æsilegum sigri í lokaleiknum gegn ÍR.
Fyrir leik
Góðan dag og verið velkomin í beina textalýsingu frá fyrsta heimaleik Magna á Grenivík í sumar! Fram-arar eru fyrstu gestir sumarsins.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
Matthías Kroknes Jóhannsson
5. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Helgi Guðjónsson
10. Fred Saraiva
11. Jökull Steinn Ólafsson
14. Hlynur Atli Magnússon (f)
16. Arnór Daði Aðalsteinsson
20. Tiago Fernandes
22. Hilmar Freyr Bjartþórsson ('75)
23. Már Ægisson ('86)

Varamenn:
5. Sigurður Þráinn Geirsson
10. Orri Gunnarsson ('86)
11. Magnús Þórðarson
17. Alex Freyr Elísson ('75)

Liðsstjórn:
Jón Sveinsson (Þ)
Daði Guðmundsson
Marteinn Örn Halldórsson
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Hilmar Þór Arnarson
Magnús Þorsteinsson
Kristinn Steinn Traustason

Gul spjöld:
Jökull Steinn Ólafsson ('44)

Rauð spjöld: